Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 28
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 201528 Fólk Viðtal
É
g ætlaði bara að leika mér
með dróna, en það vatt held
ur betur upp á sig,“ segir Örv
ar hlæjandi eftir að blaðamað
ur hefur prófað hjá honum
sýndarveruleikahjálminn sem í fram
tíðinni mun koma til með að nýtast til
sýndarferðamennsku sem hann er að
þróa hjá fyrirtæki sínu Console Rym
ur Productions Studios, en verkefnið
sjálft kallast Rymur. Hugmyndin að
sýndarveruleikaferðamennskunni
kviknaði á dánarbeði eiginkonu hans,
Berglindar Guðmundsdóttur, sem lést
úr krabbameini þann 17. október síð
astliðinn, eftir sjö ára baráttu við sjúk
dóminn. En þann sama dag birtist við
hana viðtal í DV, þar sem hún sagði
sögu sína. Berglindi dreymdi um að
ferðast en veikinda sinna vegna gat
hún það ekki. Örvar fékk þá hugmynd
að þróa hugbúnað sem gerði fólki
kleift að ferðast um allan heiminn,
jafnvel þótt það væri rúmliggjandi. Í
kringum þá hugmynd stofnaði hann
Console og atburðarásin síðustu þrjá
mánuði hefur verið lyginni líkust.
Lifði fyrir konuna
En þetta byrjaði bara með einum
dróna, litlu fjarstýrðu loftfari sem
er búið myndavél. „Í ágúst á síðasta
ári kom vinur minn í heimsókn með
dróna og við fórum að leika okkur
með hann. Það var sól úti og Berg
lind fylgdist með okkur úti á palli.
Ég sá strax að það voru þarna mikl
ir möguleikar í myndatöku, því mér
finnst mjög gaman að taka ljósmynd
ir og er skapandi.“
Berglind var orðin mjög veik á
þessum tíma og henni hrakaði hratt.
Skömmu síðar var hún komin inn
á líknardeild og Örvar fylgdi henni
þangað. „Við áttum mjög dýrmætan
tíma þar saman, í rauninni dýr
mætasta tíma sem við höfðum átt frá
upphafi. Við færðumst enn nær hvort
öðru og ég fékk tækifæri til að syrgja
hana fyrir framan hana. Ólíkt öllum
öðrum sem henni tengjast, þá var ég
sá eini sem gerði það. Flestir, ef ekki
allir, eru enn í sorg núna, enda stutt
síðan hún lést.“
Berglind og Örvar áttu til að
mynda einlægt og hreinskilið spjall
síðasta daginn sem hún var með
fullri meðvitund. „Hún sagði við mig:
„Örvar, finndu þér núna góða konu
og hættu að fresta þínu lífi. Það er
betra ef hún á eitt eða tvö börn, því
ég veit þú yrðir góður pabbi. Eina
skilyrðið sem ég set gagnvart þessari
konu er að hún sé hundgóð“,“ segir
Örvar og brosir út í annað þegar
hann rifjar þetta upp. „Ég veit ekki
alveg hvort hún átti við að konunni
þyrfti að líka við hunda eða hvort
hún átti bara að vera góð, en ég leyfði
því að njóta vafans,“ bætir hann við,
en Berglind átti tvo hunda sem hún
hugsaði um líkt og þeir væru börnin
hennar. Hún sagði í viðtalinu í DV að
með því að hafa þá í lífi sínu, þá fengi
hún snert af móðurhlutverkinu sem
hún myndi aldrei upplifa. „Hún sagði
mér að taka bara sénsinn, því ég væri
búinn að vera að lifa fyrir hana í sjö ár
og lítið sem ekkert hugsað um sjálfan
mig. Hún sagði mér að láta drauma
mína rætast.“
Vill hjálpa fólki
Örvar tók Berglindi heldur betur á
orðinu og aðeins nokkrum vikum
eftir að hún dó var hann búinn að
segja upp starfi sínu hjá Lýsingu,
stofna fyrirtæki og farinn til Banda
ríkjanna að kynna það. Fyrirtækið
sérhæfir sig í sýndarferðamennsku
sem gerir fólki kleift að upplifa heim
inn úr stofunni heima hjá sér, fara á
tónleika og stunda ýmiss konar af
þreyingu. Það eina sem til þarf er
sýndarveruleikahjálmur og snjall
sími. En notendur sem skrá sig hjá
fyrirtækinu munu fá ódýrari útgáfu
af hjálminum án endurgjalds, sem og
flest allt afþreyingarefni sem í boði
verður. Örvar segir margt spennandi
vera á teikniborðinu hjá fyrirtæk
inu og samstarfssamningar við stór
fyrirtæki í bígerð. Hann hefur því ekki
áhyggjur af því að fyrirtækið standi
ekki undir sér þótt grunnþjónustan
verði án endurgjalds.
Örvar Friðriksson missti konuna sína, Berglindi Guðmundsdóttur, úr
krabbameini í október síðastliðinn. Eitt af því síðasta sem hún sagði áður en hún
lést var að hann ætti að elta drauma sína. Hann tók hana á orðinu og stofnaði
strax fyrirtæki sem mun sérhæfa sig í sýndaferðamennsku. Viðtökurnar hafa
verið ótrúlegar og allt hefur gengið upp við kynningu verkefnisins. Sumir vilja
meina að Örvar hafi farið of geyst af stað eftir missinn, en hann segist hafa byrj-
að að syrgja löngu áður en konan hans dó. Því séu aðstæður hans afar sérstakar.
Hann var búinn að syrgja drauma þeirra og líf saman. Eftir að Berglind hafði
dáið í örmum hans ákvað að hann fara af stað og reisa henni minnisvarða með
þessum hætti. Með því að að auðvelda fólki að skoða heiminn.
Hún dó
í örmum
mínum
„Ég fór að undir-
búa mig sem
ekkil mánuði áður en
við giftum okkur
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Hún fékk
meðvit-
und, horfði í
augun á mér og
sagði: „Örvar,
ég elska þig.“
Tveimur dögum
síðar dó hún.