Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 19
Fréttir Erlent 19Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
O
pinberar aftökur, loft-
árásir, þvinguð hjóna-
bönd og þvingaðar blóð-
gjafir eru daglegt brauð
fyrir íbúa Raqqa sem er
ein fjölmennasta borg Sýrlands.
Borgin, sem eitt sinn var ein sú
frjálslyndasta í landinu, er nú höf-
uðstaður Íslamska ríkisins, ISIS,
sem stjórnar með harðri hendi.
CNN fjallaði um stöðuna í Raqqa
á dögunum og má segja að auð-
velt sé að komast til borgarinnar. En
þegar fólk ætlar að fara, flýja átök-
in og þær hörmungar sem blasa við,
vandast málið.
Pyntaður og drepinn
„Líf mitt er farið. Skólinn er far-
inn og ég á mér enga framtíð. Þetta
er eitthvað sem ég hefði ekki vilj-
að sjá í borginni minni,“ segir Abu
Ibrahim al-Raqqawi, aðgerðasinni
í borginni. Al-Raqqawi er ekki hans
rétta nafn heldur nafn sem þessi
fyrrverandi læknanemi tók sér
þegar hann stofnaði samtök, RSS,
sem berjast gegn Íslamska ríkinu.
Hafa samtökin meðal annars beint
spjótum sínum að mannréttinda-
brotum liðsmanna Íslamska rík-
isins í Raqqa og birt myndir og
myndbönd af voðaverkum þeirra
í borginni. Al-Raqqawi segir að
samtökin séu þyrnir í augum Ís-
lamska ríkisins og einn liðsmaður
samtakanna hafi verið pyntaður og
drepinn. Íslamska ríkið hafi gefið til
kynna að sömu örlög bíði annarra
liðsmanna þegar þeir finnast.
Vill bjarga borginni
Þrátt fyrir hótanir segir Al-Raqqawi
að hann muni halda starfa sínu
áfram. „Ástandið hér neyðir mig til
þess. Ég hef engan áhuga á að verða
þekktur og ég vil alls ekki að allir viti
hvað ég er að gera. Ég geri þetta fyrir
borgina, fjölskyldu mína og íbúa
borgarinnar. Við erum að reyna að
bjarga þessari borg,“ segir hann.
40 teknir af lífi
Al-Raqqawi segist hafa séð mörg
ódæðisverkin í borginni undanfarin
misseri. Hafa ber í huga að um frá-
sögn Al-Raqqawis er að ræða og er
tekið fram í umfjöllun CNN að ekki
hafi reynst mögulegt að fá stað-
festingu á því sem hann segist hafa
séð. Al-Raqqawi segir að á undan-
förnum tveimur mánuðum hafi 40
manns verið teknir af lífi í Raqqa
fyrir ýmsar sakir. Sumir voru teknir
af lífi fyrir að vera liðsmenn Free
Syrian Army, aðrir vegna gruns um
að vera samkynhneigðir og enn aðr-
ir vegna gruns um morð. Þá séu þeir
sem tala opinberlega gegn Íslamska
ríkinu, eins og liðsmenn RSS-sam-
taka Al-Raqqawis, einnig skotmörk.
Neyddir til að gefa blóð
Al-Raqqawi bendir í viðtalinu við
CNN á að sumir íbúar séu neyddir
til að gefa blóð. Loftárásir hafi verið
gerðar á borgina og þörfin fyrir blóð
sé talsverð fyrir liðsmenn Íslamska
ríkisins sem hafa særst í slíkum árás-
um. Þá sé borgin eins og ógnarstórt
fangelsi fyrir konur sem búa í
borginni. Ef þær eru yngri en 45 ára
fái þær ekki að yfirgefa borgina. Al-
Raqqawi segir að samtök hans viti
um 270 tilvik þar sem konur, eða
stúlkur, hafi verið neyddar í hjóna-
bönd með liðsmönnum Íslamska
ríkisins. Einnig hafi liðsmenn sam-
takanna tekið Jasídastúlkur og gert
þær að þrælum sínum.
Byggingar málaðar bleikar
Fljótlega eftir að Íslamska ríkið
hreiðraði um sig í Raqqa og tilkynnti
um stofnun kalífadæmis sumar-
ið 2014 voru fjölmargar byggingar
málaðar í einkennislit ISIS sem er
svartur. Að undanförnu hafa þess-
ar byggingar þó verið málaðar í
öðrum litum. Sumar eru bleikar,
aðrar hvítar eða grænar. Ástæðan
er sú að liðsmenn samtakanna vilja
villa um fyrir Bandaríkjamönnum
og bandamönnum þeirra sem gert
hafa loftárásir á liðsmenn ISIS.
Flott hús og flottir bílar
Fjölmargir erlendir liðsmenn Ís-
lamska ríkisins hafast við í borginni,
einstaklingar sem hafa farið sér-
staklega til Sýrlands til að ganga í
raðir samtakanna. „Þetta er himna-
ríki fyrir marga af þessum erlendu
aðilum. Þeir fá nóg af peningum, fá
flottustu húsin og aka um á flottum
bílum,“ segir Al-Raqqawi. Sumir er-
lendir liðsmenn samtakanna séu
þó ekki jafn heppnir. Al-Raqqawi
segir að orðrómur sé á kreiki um
að sumir þeirra hafi verið drepnir
þegar þeir reyndu að flýja borgina
og snúa baki við Íslamska ríkinu.
„Vegabréfin eru tekin af þeim og
ef einhver reynir að flýja er hann
drepinn umsvifalaust. Það er ekkert
vandamál að komast inn í borgina.
Vandamálið er hvernig á að komast
burt.“ n
Höfuðvígi
ISIS eins
og risastórt
fangelsi
n Þvinguð hjónabönd og þvingaðar blóðgjafir n Ungum konum ekki hleypt úr borginni
Erfið staða Margir íbúar Raqqa er í erfiðum aðstæðum. Al-Raqqawi segir að konur undir 45
ára aldri megi ekki yfirgefa borgina og sumar séu neyddar í hjónaband.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
„Það er ekkert
vandamál að
komast inn í borgina.
Vandamálið er hvernig á
að komast burt.
Stjórna með harðri
hendi Liðsmenn Ís-
lamska ríkisins hafa gert
borgina Raqqa að eins
konar höfuðvígi sínu.
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.