Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 34
27. febrúar–2. mars 20156 Bjór - Kynningarblað
„Löwenbräu var mest seldi
bjórinn á fyrsta söludegi“
Haugen Gruppen, sem stofnað var þann 1. apríl 2009, er með umboð
fyrir frábært úrval heimsþekktra vörumerkja í bjór. Á meðal þeirra
þekktari má nefna, Stella Artois, Beck's, Budweiser og Löwenbräu.
Stella Artois
Þegar minnst er á hana Stellu þá dettur
eflaust fæstum í hug jólabjór. Þessi vin-
sæli bjór hefur verið fáanlegur allt árið
um kring svo lengi sem elstu menn muna
og er hann því álitinn einn af þessum
góðu lagerbjórum sem menn kaupa
með mat þegar það á að leyfa sér aðeins.
Saga Stellu er þó aldeilis önnur. Belgíska
brugghúsið Den Horen, sem á rætur sín-
ar að rekja aftur til ársins 1366, brugg-
aði Stellu vinkonu okkar fyrst árið 1926.
Nánar tiltekið um jólin 1926. Bjórinn
var kenndur við tvennt, annars vegar
Sebastian Artois, hinn sögufræga brugg-
meistara sem uppi var á átjándu öld, og
hins vegar jólastjörnuna en Stella þýð-
ir stjarna á latínu. Þannig var Jólastjarna
Artois brugguð sem jólagjöf til bæjar-
búa Leuven, heimabæjar Stellu í Belgíu.
Þótt bjórinn hafi ekki til að bera það sem
við í dag köllum jólalegt þá þarf aftur að
horfa til upprunans. Árið 1926 var ekki
verið að krydda jólabjóra með alls kon-
ar kryddi og lakkrís. Sökum framleiðslu-
aðferða þess tíma voru flestir bjórar í
dekkri kantinum og þá, eins og gjarnan
verður með eitthvað sem erfitt er að fá,
komust ljósir lagerbjórar í tísku. Den
Horen ákvað því að búa til sérlega vand-
aðan lagerbjór sem líkir eftir jólastjörn-
unni og jólasnjónum með fagurgyllt-
um lit og heiðhvítum froðutoppi. Stella
er evrópskur, ljós lager bruggaður í
pilsnerstíl. Þegar Stellu er hellt í glas sér
maður þennan fagurgyllta lit sem færist
yfir í gult þegar hann er borinn upp við
ljós. Upp rís þykk og mikil snjóhvít froða
sem sest fljótt og skilur eftir sig passlegan
hvítan hring. Í nefi mætir manni ljóst
malt og sæta, en á eftir því kemur þetta
belgíska ger sem færir létta ávaxtatóna.
Í munni svipar Stellu til nefsins þar sem
maður finnur áfram ljóst malt og sætu en
svolítið brauðbragð og gerið færir manni
svo þessa léttu ávaxtatóna og smá ban-
ana. Biturleikinn er nær enginn og bragð-
ið skemmtileg fyrir þennan stíl.
Stella Artois Gjafapakkning. Mynd Sigtryggur Ari