Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 37
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 Fólk Viðtal 29 Örvar dreymir um að breyta lífi fólks sem af einhverjum ástæðum getur ekki ferðast, eins og fötluðu fólki, þeim sem glíma við erfið veik­ indi og efnalitlu fólki. Myndefnið sem notendur Console koma til með að njóta er tekið upp með drónum, en með þeim er meðal annars hægt að ná ótrúlegum yfirlitsmyndum úr lofti. „Minn tilgangur er að reisa Berglindi mikilvægan minnisvarða og ég tel að ég geri það með því að breyta lífi fólks. Að hjálpa. Ég hef alltaf viljað hjálpa fólki og reyni að gera allt fyrir alla.“ Örmagnaðist um jólin Síðustu jól voru Örvari mjög erfiður tími, enda fyrstu jólin án Berglindar frá því þau kynntust. „Ég sleppti jólunum. Ég skreytti ekki heima hjá mér og keypti ekki jólagjafir. Ég var bara á fullu að skoða nýjustu tækn­ ina í bransanum. Ég glímdi við mikla streitu á þessum tíma og í eitt skipti þá örmagnaðist ég heima hjá mér. Ég missti meðvitund, líklega um mið­ nætti, og rankaði við mér á stofugólf­ inu um sex leytið um morguninn. Í kjölfarið ræddi ég við geðlækni og sálfræðing og líka vini mína.“ Örvar fékk bæði róandi og svefnlyf til að komast yfir erfiðasta hjallann. En á sama tíma var að birta til í lífi hans. Örvar hafði kynnst konu sem hann er í sambandi með í dag, og sér fyrir sér að geta eytt lífinu með. Þau kynntust á Tinder aðeins mánuði eftir að Berglind dó. „Ég leitaði á Tinder í mikilli streitu og einmana­ leika. Í sannleika sagt þá vildi ég bara kanna hve mörgum stelpum þætti ég sætur. Anna var fyrsta stelpan sem ég „matchaði“ við. Við töluðum saman í mánuð áður en við hittumst og hún fór með mér í gegnum allt þetta ferðalag. Hún var algjörlega til stað­ ar fyrir mig og leyfði mér að segja sér allt.“ Hann segir Önnu hafa verið þennan hlutlausa aðila sem hann þurfti á að halda. Hann þurfti að tala við einhvern sem var ekki of tengd­ ur honum og var ekki líka að syrgja Berglindi. Heillaðist af Önnu „Ég sá aldrei fyrir mér að við myndum byrja saman og ég hef sagt henni það. En einn daginn ákvað ég að bjóða henni í hádegismat því það var svo gott að tala við hana. Ég fór og hitti hana í Smáralind þar sem hún var að vinna og tók skref aftur á bak þegar ég sá hana, hún var miklu fallegri en myndirnar á Tinder gáfu til kynna. Svo var hún bæði ákveðin og sjálfs­ örugg og það kom mér á óvart,“ segir Örvar um fyrsta skiptið sem hann sá Önnu í eigin persónu. Daginn eftir þetta fyrsta stefnumót ákvað hann að bjóða henni heim til sín og fann þá strax hve vel þau höfðu náð að tengj­ ast. „Það var svolítið magnað sem gerðist. Anna gekk inn, nam staðar við mynd af Berglindi og sagði að sér liði eins og hún þekkti hana. Þá gerð­ ist eitthvað í höfðinu á mér. Ég var búinn að ákveða að ég ætlaði bara að vera ekkill. Sá ekki fyrir mér að ég gæti bundist annarri konu.“ Eins og gefur að skilja talaði Örvar mikið um Berglindi þegar hann og Anna voru að kynnast, enda skammt liðið frá andlátinu. Hann segir sam­ skipti þeirra hafa verið mjög hrein­ skiptin. „Hún veit allt um mig. Alla mína fortíð, sem er misskemmtileg. Hún passar mjög vel upp á mig. En auðvitað er það rosalega erfitt fyrir hana að vera næsta kona á eftir Berg­ lindi. Hún er spurð út í það, hvern­ ig sé að vera með mér. Sérstaklega þegar ég segi frá því opinberlega hvernig hugmyndin að sýndarferða­ mennskunni kviknaði. Þá er bara talað um Berglindi en ekkert um hana.“ Rænd í Ameríku Þrátt fyrir að samband Önnu og Örvars hafi varað frekar stutt hafa þau gert heilmikið saman. Örvar hef­ ur til að mynda tvisar boðið henni til útlanda, fyrst til London og svo San Fransisco. Þau eru því strax byrjuð að skapa sér dýrmætar minningar saman. Ferðin til San Fransisco átti að vera bæði vinnu­ og skemmtiferð en breyttist nánast alfarið í vinnu­ ferð vegna frábærra undirtekta við sýndarferðamennskuverkefninu. „Fyrsta daginn þarna úti fórum við í Palace of fine arts en þegar við komum til baka í bílinn var búið að brjótast inn í hann og stela öllu; pen­ ingum, kortum og vegabréfum. Við fórum á næstu lögreglustöð og gáfum skýrslu, en þar hringdi síminn minn og á hinni línunni var maður að nafni Gene. Hann spurði mig hvort ég hefði verið rændur því hann hefði fundið töskuna mína með öllum nafnspjöldunum.“ Ótrúlegar tilviljanir Þeir mæltu sér mót en Örvar var ekk­ ert sérstaklega spenntur fyrir því, enda taldi hann Gene allt eins geta verið þann sem rændi þau og að hann ætlaði að vinna þeim mein. Sú hugsun hvarf þó fljótlega. „Við Anna fórum og fengum okkur að borða áður en við hittum hann og yfir matnum sagði ég við hana: „Hvað ef þessi Gene er maðurinn sem tengir allt þetta saman, sem við erum að gera?““ En Örvar trúir því að með því að hugsa jákvætt sé líklegra að góðir hlutir hendi fólk. „Það virkaði reynd­ ar ekki með Berglindi, þrátt fyrir að ég reyndi alltaf að vera jákvæður og vona það besta.“ Anna hafði hins vegar ekki mikla trú á þessum vangaveltum Örvars um að Gene yrði lykillinn að velgengni þeirra. En áður en þeir hittust ákvað Örvar að „gúggla“ manninn og í ljós kom að hann er yfirmaður tækni­ mála hjá Google. Að leiðir þeirra tveggja skyldu liggja saman á þess­ um tímapunkti var því ansi ótrúlegt. Örvar trúir því varla ennþá sjálfur. „Ég átti fund hjá Google daginn eftir, með frænda mínum sem hafði mik­ ið hjálpað mér í tengslum við Berg­ lindi. Ég hitti líka Gene aftur og sýndi honum allt, og hann er orðinn vinur minn í dag.“ Hann heillaðist af hug­ mynd Örvars og vildi leggja hönd á plóg svo hún gæti orðið að veruleika. „Hann dróst að mér og ég að honum því hann er mjög ör og ég er svo ró­ legur og yfirvegaður. Þannig mynd­ uðum við teymi. Við áttum æðislegan dag saman í Google og fórum yfir all­ ar þessar hugmyndir. Mamma hans er fötluð og hann sá fyrir sér hún gæti nýtt sér þetta. Ég lofaði honum því að um leið og við værum búin að þróa hugbúnaðinn þá færi ég í eigin persónu með búnaðinn og heim­ sækja hana.“ Hollywood á leið til Íslands Á meðan Örvar var staddur í San Fransisco fékk hann líka símtal frá manni sem hafði séð kynningar­ myndbandið frá Console um Rymur­ hugmyndina. Honum leist til að mynda mjög vel á þá hugmynd að bjóða upp á sýndar­ veruleikaaaf­ þreyingu í flugvélum. Örvar vissi ekkert við hvern hann var að tala en var tilbú­ inn að hitta manninn. Hann gaf hon­ um upp stað­ setningu á fundarstað og áður en Örvar vissi af var hann staddur fyrir utan Capitol Records­bygginguna í Los Angel­ es. „Ég hitti þarna fjóra gaura sem voru umkringdir alls konar tækja­ drasli. Í ljós kom að einn þeirra var Lucas Foster, stór framleiðandi í Hollywood. Þeir sögðust elska þessa hugmynd og spurðu hvernig þeir gætu hjálpað mér.“ Þessi fundur átti heldur betur eftir að draga dilk á eft­ ir sér því tökulið á þeirra vegum er á leið til Íslands um miðjan mars til að mynda íslenska veturinn. Fólk um allan heim mun því fljótlega geta upplifað Ísland að vetri til, án þess að stíga upp í flugvél. Þá er búið að opna fyrir þann möguleika að Örvar vinni að sýndar­ veruleikaafþreyingu í samstarfi við Paramount Pictures þar sem hug­ myndin er að sameina kvikmynda­ og ferðaiðnaðinn með ýmsum hætti. Meðal annars með því að tölvuteikna kvikmynda­ og teiknimyndapersón­ ur inn í landslagsmyndir. „Sjáðu fyrir þér Bárðarbungu, norðurljósin, Transformers og Dispicable me. Kvik­ myndapersónur að kynna Ísland og Ísland að kynna þær. Hvernig getur þetta klikkað?“ spyr Örvar sposkur á svip. Gjöf til líknardeildarinnar „Aðalmarkmið okkar er að færa heiminn til þín. Að gera fólki kleift að fara þangað sem það dreymir um,“ segir Örvar en hann bauð ungum fötluðum manni, sem er bundinn við hjólastól, að prófa búnaðinn hjá sér um daginn og sá varð mjög hrifinn. „Það eru til dæmis margir staðir á Íslandi sem fatlaðir eiga erfitt með að skoða, eins og bara Gullfoss. Upplifunin þarf ekki að vera í rauntíma, enda myndskeiðin jafnvel fallegri heldur en upp­ lifunin í eigin persónu.“ Örvar ætlar sér að gefa ýms­ um stofnun­ um sýndar­ veruleikabúnað, þar sem hann veit að skjól­ stæðingar munu njóta góðs af, líkt og á líknar­ deildinni þar sem Berglind dvaldist sína síðustu ævidaga. „Þegar þetta fer í alvörunni á flug og efnið okkar er tilbúið þá fer ég beint niður á líknardeild, en ég hef ekki farið þangað síðan Berglind dó. Þar verður þessi fyrsti minnisvarði um hana settur upp. Til að hjálpa sjúklingum sem eru á sínum síðustu dögum að ferðast um allt.“ Aflýstu brúðkaupsferðinni Berglind hafði unun af því að ferð­ ast og reyndi að gera eins mikið af því og hún gat á meðan heilsan leyfði. Á ákveðnum tímapunkti kom að því að hún varð að viðurkenna fyrir sjálfri sér að hún ætti aðeins eitt ferðalag eftir – hið óumflýjanlega, sem bíður allra. „Þegar ég sá tölvupóstinn hjá henni voru þar nánast bara tölvu­ skeyti frá ferðaskrifstofum og stelpan var að lesa þetta. Hjarta mitt brast við að sjá þetta.“ Á sjúkrabeðinum varð Berglind bæði að aflýsa ferð til Parísar og gefa draumaferð til Las Vegas upp á bát­ inn, að sjá Celine Dion. „Við fórum aldrei í brúðkaupsferðina okkar og áttum aldrei brúðkaupsnótt einu sinni,“ segir Örvar, en þau giftu sig einu og hálfu ári áður en Berglind lést. Þau höfðu lengi frestað því Reisir minnisvarða Örvar vill reisa Berglindi minnisvarða með því að gera fólki í svipaðri stöðu og hún var í kleift að skoða heiminn. Mynd SiGtRyGGuR ARi „Ég leitaði á Tinder í mikilli streitu og einmanaleika. Í sannleika sagt þá vildi ég bara kanna hve mörg- um stelpum þætti ég sætur. Hjónin Örvar og Berglind giftu sig einu og hálfu ári áður en hún dó í örmum hans. Breytti honum Örvar segir að Berglind hafi gert hann að þeim manni sem hann er í dag. Hann er henni þakklátur fyrir það. 17. október 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.