Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 12
12 Fréttir Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 „Fíkniefnalöggjöfin mannréttindabrot“ n Að draga úr skaða meðal fíkla minnkar kostnað í heilbrigðiskerfinu F íkniefnalöggjöf víðast hvar í heiminum brýtur á mann­ réttindum fólks. Með ofur­ áherslu á refsingar og hræðsluáróður er ákveðinn hópur jaðarsettur og býr ekki við sömu mannréttindi og hinir. Ísland er þarna engin undantekning.“ Þetta segir Damon Barrett, írskur mann­ réttindalögfræðingur og doktorsnemi við háskólann í Stokkhólmi, sem kom til landsins á dögunum á vegum Snar­ rótarinnar, samtaka um borgaraleg réttindi. Damon hefur um árabil starf­ að við fræðimennsku og ráðgjöf um fíknilöggjöf og mannréttindi. Hann vann í átta ár fyrir samtökin Harm Reduction International í London, en starf þeirra lýtur að því að kynna og hvetja til aðgerða sem minnka skaða vegna áhættuhegðunar ýmissa jaðar­ hópa, sérstaklega fíkniefnanotenda. „Yfirvöld voru lengi hrifin af hug­ takinu „stríðið gegn fíkniefnum“ og ég nota mest af mínum tíma til þess að skoða áhrif þeirrar nálgunar á mann­ réttindi. Vegna gagnrýni og þrýstings frá samtökum sem starfa í mínum geira er nú tilhneiging til þess að snúa baki við hugtakinu – en það er í raun ekki hægt fyrr en aðferðirnar breytast. Það er ekki nóg að breyta orðræðunni og halda því fram að þannig sé mála­ flokkurinn færður á betri stað – við ætlum ekki að leyfa það.“ Í fyrirlestri sínum fjallaði Damon meðal annars um það hvernig mann­ réttindabrot eru orðin hluti af kerfinu: „Þá er ég að tala um löggjöfina, stofn­ anir, umræðuna – allt það sem lýtur að því hvernig við nálgumst fíkniefna­ neytendur sem lögbrjóta, frekar en veika einstaklinga. Umræðan snýst iðulega um ógnina sem að okkur steðjar af fíkniefnum, og ótrúlegum fjármunum er varið í hræðsluáróður og löggæslu í stað þess að veita þeim í eitthvað sem raunverulega mundi bæta líf þeirra sem þjást.“ Mannréttindi frekar en refsingar „Ég er talsmaður þess að byrja á allt öðrum punkti en gert er í dag. Ég vil snúa baki við þeirri hugsun að tilvist fíkniefna sé það mikil ógn við sam­ félagið að við þurfum lagasetningu, lögregluaðgerðir, fangelsisvist og út­ skúfun fíkla – þess í stað vil ég byrja á mannréttindum, ganga út frá því að þau séu mikilvægust fyrir alla, líka fíkniefnanotendur sem eru veikir vegna efnanna. Ef við getum verið sammála um að mannréttindi fyrir alla séu meira virði en löggjöfin og stríðið gegn fíkniefnum, höfum við forsendur til að breyta kerfinu.“ Damon heldur því fram að pen­ ingum sem varið er í baráttu gegn fíkniefnum væri mun betur varið í að hjálpa þeim sem raunverulega þurfa á hjálp að halda vegna fíknar: „Á sama tíma og samfélög eyða ótrúlegum fjár­ munum í lagasetningu, hræðsluáróð­ ur og refsingar, eru heilbrigðismálin í ólestri. Það væri nær að nota þessa fjármuni í að hjálpa þeim örfáu sem raunverulega eru veikir vegna fíkni­ efna, tryggja aðgengi þeirra að heil­ brigðisþjónustu og veita þessum litla hóp þannig aukin mannréttindi.“ Breytingar á heimsvísu Damon bendir á að ekki sé nóg að skoða löggjöfina í hverju landi fyrir sig, því í raun sé hér um að ræða af­ leiðingar alþjóðalagasetningar frá því um miðja síðustu öld sem eigi því lítið erindi í nútímasamfélögum: „Þetta þýðir að í mörgum löndum eru breytingar á fíknilöggjöf mjög hægfara og þeim þröngar skorður settar vegna alþjóðlega rammans. Við höfum þó séð breytingar á undanförnum árum og ber þar helst að nefna Portúgal, sum fylki Bandaríkjanna og nú síðast Úrúgvæ. Í Portúgal var farin sú leið fyrir 12 árum, að afnema alla refsilöggjöf í fíkniefnamálum og veita peningunum í staðinn til heilbrigðismála – þannig voru heilsa og mannréttindi sett ofar refsingum og höftum. Bandaríkin og Úrúgvæ hafa einblínt á kannabis. Samfélög eru misjöfn og mismun­ andi aðferðir virka í ólíkum löndum – þannig er ég ekki talsmaður þess að afnema allar refsingar á einu bretti á heimsvísu, heldur hvet ég stjórnvöld til að endurskoða löggjöfina með mannréttindi að leiðarljósi.“ Skaðaminnkun á Íslandi Frú Ragnheiður – skaðaminnkun, er verkefni sem Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands hefur rekið síðan 2009. Tilgangur verkefnisins er að ná tengsl­ um og samtali við einstaklinga sem stunda áhættuhegðun. Stærsti hópur skjólstæðinga Frúar Ragnheiðar er fólk sem sprautar sig með vímuefn­ um í æð, en mikilvægasti þáttur þjón­ ustunnar er að veita þeim aðgengi að hreinum sprautum og nálum og draga úr líkum á að búnaði sé deilt. Sjálfboðaliðar manna Frú Ragnheiði „Frú Ragnheiður er nafnið á gömlum sjúkrabíl, sem segja má að sé mið­ punktur verkefnisins. Bíllinn er mannaður sjálfboðaliðum og fer sama rúntinn fimm daga vikunnar á fyrirfram ákveðna staði þar sem hægt er að sækja þjónustuna. Þjónustan, sem er notendum að kostnaðarlausu, felst í aðgengi að hreinum búnaði, sprautum og sprautunálum, móttöku og förgun á notuðum búnaði, og sýk­ ingavörnum, svo það helsta sé nefnt,“ segir Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar RKÍ. Hann bendir á að það mikilvæg­ asta í starfinu sé traustið og tengslin við einstaklingana: „Tengslin gefa sjálfboðaliðum okkar færi á að veita upplýsingar um skaðaminnkandi neysluaðferðir og fleiri atriði sem geta haft stórkostleg áhrif á lífsgæði fólksins sem þiggur þjónustuna.“ Þór bendir á að hópurinn sé alla jafna ólíklegur til þess að sækja sér grunn­ heilbrigðisþjónustu og því skipti starf­ semi Frúar Ragnheiðar sköpum fyrir hann. Oft er þetta fólk sem er jaðarsett í samfélaginu og sækir skjól í gistiskýli eða Konukot því það hefur ekki í önn­ ur hús að venda. Rúntur fimm daga vikunnar Verkefnið, sem hófst í október 2009, er mannað með 30% launaðri stöðu verkefnastjóra en að öðru leyti er allt starf unnið af sjálfboðaliðum Rauða krossins: „Fimm daga vikunnar fer Frú Ragnheiður sama rúntinn miðsvæðis í Reykjavík þannig að skjólstæðingar geta gengið að þjónustunni vísri á ákveðnum stöðum. Við erum líka með skjólstæðinga í úthverfum en þeim býðst að hringja í símanúmer bílsins og við mælum okkur þá mót þar sem hentar. Sumir eiga ekki heiman gengt og sveigjanleikinn skiptir þess vegna miklu máli,“ segir Þór. Verkefnið hefur að sögn Þórs leitt til ákveðinna breytinga á menn­ ingunni innan hópsins: „Í dag er fólk miklu ólíklegra til að deila sprautum og nálum, en áður en verkefnið hófst var stór hópur að deila búnaði og endurnýta.“ Þór ítrekar að traustið og tengslin skipti öllu máli því annars væri ekki forsenda fyrir verkefninu: „Við mætum fólki þar sem það er statt, við gerum ekki kröfu um að það breyti neinu í sínu lífi en reynum að minnka skaðann sem hlýst af áhættuhegðun.“ Sýnt fram á hagkvæmni Rekstur Frúar Ragnheiðar kostar rúm­ lega sex milljónir á ári. Þór segir að það sé afskaplega lítill kostnaður mið­ að við ávinninginn: „Þetta er mikill sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið. Ekki eingöngu vegna færri smita HIV og lifrarbólgu, heldur erum við að koma í veg fyrir önnur alvarleg heilbrigðis­ vandamál eins og sýkingar, og vissu­ lega komum við í veg fyrir ótímabær dauðsföll.“ Árið 2012 vann Elías Sæ­ björn Eyþórsson BS­verkefni við Heil­ brigðisvísindasvið Háskóla Íslands sem sýndi fram á hagkvæmni verk­ efnisins sem forvörn gegn útbreiðslu HIV meðal sprautufíkla. Greiningar á árangri sambærilegra forvarnarverk­ efna í nágrannalöndunum hafa ítrek­ að sýnt fram á það sama. Í dag er verkefnið fjármagnað af velferðarsviði Reykjavíkurborgar en einnig hafa velferðarráðuneytið og landlæknisembættið veitt fé í það. Rauði krossinn leggur svo til það sem vantar upp á. Nokkur fyrirtæki styrkja verkefnið í kyrrþey um ákveðna upp­ hæð á mánuði, en einnig er talsvert um framlög frá einstaklingum. n Ferðaáætlun Frúar Ragnheiðar Mánudaga – Þriðjudaga – Miðvikudaga – Fimmtudaga – Föstudaga 18.00–18.20 - Gistiskýlið Lindargötu. Bíl lagt í stæði við gistiskýlið. 18.30–18.50 - Eskihlíð. Bíll fyrir neðan Konukot, Eskihlíðar megin. Bankað upp á í Konu- koti og á Miklubraut 20. 19.00–20.00 - Hlemmur. Bíll í stæði bak við Arion banka. 20.00–21.00 - Eftir samkomulagi. Símanúmer Frúar Ragnheiðar 7887-123 **Hver sem er getur styrkt Frú Ragnheiði en hægt er að nálgast allar upplýsingar á Facebook-síðu verkefnisins eða á www.raudikrossinn.is.** Hér eru peningar Lýðheilsusjóður veitir 80 milljónir á ári í forvarnarstyrki Lýðheilsusjóður, sem starfræktur er innan landlæknisemb- ættisins, ver um 80 milljónum árlega í ýmis forvarnarverkefni. Lýðheilsusjóður er fjármagnaður með 1% áfengisgjalds og 0,9% af brúttósölu tóbaks, eins og segir í reglugerð um sjóðinn (Reglugerð nr. 1260 frá 2011). Að sögn Rafns Jónssonar, verkefnis- stjóra um áfengis- og vímuvarnir, eru verkefnin af ýmsum toga en allir geta sótt um styrk. „Styrkþegar eru skólar, félagasamtök, einstaklingar og að sjálfsögðu verkefni eins og Frú Ragn- heiður. Sjóðurinn styrkir heilsueflingu og forvarnir, en það er misjafnt milli ára hversu miklu fé er veitt í ólíkar tegundir verkefna. Við erum að sjá ákveðna breytingu á eðli verkefna – áður fyrr var mikil áhersla á fræðslu en nú er almenn heilsuefling að gefa betri árangur.“ Opið fyrir umsóknir í Lýðheilsusjóð til 3. mars, en allar upplýsingar er að finna á heimasíðu landlæknisembættisins. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Frú Ragnheiður Frúin er gamall sjúkrabíll sem þjón- ustar fólk á jaðrinum. MyndiR SigtRygguR ARi Sjálfboðaliðar Frúin er mönnuð sjálfboðaliðum Rauða krossins. Þjónustan er ókeypis. Þór gíslason Framkvæmdastjóri Reykja- víkurdeildar Rauða krossins Mannréttindalögfræðingurinn Damon Barrett kom til Íslands á dögunum á vegum Snarrótarinnar. „Við mætum fólki þar sem það er statt, við gerum ekki kröfu um að það breyti neinu í sínu lífi en reynum að minnka skaðann sem hlýst af áhættuhegðun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.