Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Page 16
16 Fréttir Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Sextán fyrirtæki til Boston
Taka þátt í sjávarútvegssýningum sem verða haldnar um miðjan mars
S
extán íslensk fyrirtæki taka þátt
í tveimur sjávarútvegssýning-
um í Boston sem verða haldn-
ar 15. til 17. mars. Sjávarafurðir
eru í hávegum hafðar á annarri sýn-
ingunni en á hinni eru vélar, tæki og
þjónusta í forgrunni. Þetta eru stærstu
sýningar sinnar tegundar í Ameríku
og hafa þær verið í töluverðri sókn
undanfarin ár.
Á fyrrnefndu sýningunni taka þátt
Íslandsstofa, Iceland Responsible
Fisheries, HB Grandi, Menja, Iceland
Seafood, Icelandic - Ný fiskur, Fjarða-
lax, IceMar, NovoFood og Matís. Á
hinni síðarnefndu verða Skaginn, 3X
Technology, Valka, Optimar, Eimskip
og Héðinn.
Íslandsstofa aðstoðar fyrirtækin
við að koma sér á framfæri á sýn-
ingunni. Kostnaður við þátttöku er
200 þúsund krónur og innifalið í
verðinu er meðal annars aðstaða á bás
Íslandsstofu og markpóstur til um 400
sjávarútvegsfyrirtækja í Bandaríkjun-
um og Kanada ásamt eftirfylgni.
„Þessar sýningar standa alltaf fyrir
sínu. Bandaríkjamarkaðurinn fer
heldur stækkandi, alla vega fyrir okk-
ur,“ segir Berglind Steinþórsdóttir hjá
Íslandsstofu en sýningahaldararnir í
Boston eru þeir sömu og standa fyrir
sjávarútvegssýningunni í Brüssel sem
fer fram í apríl. Mörg af sömu íslensku
fyrirtækjunum sækja þá sýningu, sem
er heldur stærri í sniðum en sú sem er
í Boston.
Á vefsíðu Íslandsstofu kemur fram
að útflutningur á sjávarafurðum frá
Íslandi til Bandaríkjanna hafi aukist
um 22 prósent í tonnum og 13 pró-
sent hvað varðar virði frá 2012 til 2013,
eða úr 17 þúsund tonnum í tæplega
21 þúsund og 15,6 milljörðum króna
í 17,7 milljarða. Stærstur hlutri aukn-
ingarinnar er sala á ferskfiski.
Útflutningur á sjávarafurðum frá
Íslandi til Kanada á sama tímabili jó-
kst um 54 prósent í tonnum og 58 pró-
sent hvað varðar virði, eða úr rúmum
5.000 tonnum í 7.750 og úr 1,5 millj-
örðum í 2,4 milljarða. Aukningin var
einnig mest í sölu á ferskum fiski. n
Eimskip Fulltrúar frá fyrirtækinu Eimskip
verða á meðal Íslendinga á sjávarútvegs-
sýningunum í Boston um miðjan mars.
Í
skýrslu sem alþingismaðurinn
Brynjar Níelsson sendi stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis hætti hann við að setja
kafla um að stofna ætti nýja
nefnd. Hennar hlutverk átti að vera
að athuga hvort stýrihópur þriggja
ráðuneyta, sem átti að ganga til
samninga við erlenda kröfuhafa
slitabúa gömlu bankanna um verð-
mæti yfirfærðra eigna til nýju bank-
anna, hefði farið að lögum við störf
sín.
Leggur til að Alþingi skipi nefnd
DV hefur undir höndum drög að
skýrslunni þar sem kaflinn er enn til
staðar og því ekki um ræða lokaein-
takið sem stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndin fékk í hendurnar og fór
á netið. Þar segir orðrétt: „Er því lagt
til að Alþingi skipi nefnd í framan-
greindum tilgangi, enda gífurleg-
ir hagsmunir alls samfélagsins í
húfi að vel takist til ef aðstæður sem
þessar koma upp aftur. Evrópusam-
bandið mun vera langt komið með
endurskoðun á lagaumhverfi sínu
sem tekur mið af hruni fjármála-
fyrirtækja. Hugsanlegt er að hafa þá
endurskoðun að einhverju leyti til
hliðsjónar við nefndarvinnuna. Án
nokkurs vafa mun einhver kostnaður
fylgja slíkri endurskoðun og yfirferð
en hún er engu að síður nauðsynleg
að mati skýrsluhöfundar.“
Engu bætt við í staðinn
Í lokaeintakinu er þessi kafli með
öllu horfinn og engu öðru hefur verið
bætt við í hans stað. Í stað þess að
leggja til að Alþingi skipi nefnd læt-
ur Brynjar sér nægja í skýrslunni að
óska eftir því að málið verði skoðað
og að skýrslan geti nýst stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd og Alþingi til
að taka frekari ákvarðanir um fram-
haldið.
Samræmdist ekki textanum
Brynjar segir að kaflinn, þar sem
hann skrifar um nefndina, hafi verið
óþarfur. „Ég vil halda opnu hvaða
leið menn geta farið – hvort sem
það verður sérstök nefnd eða gert
með öðrum hætti, til dæmis hópi
eða að einn maður verði fenginn
til þess,“ segir Brynjar og bætir við
að það hefði samræmst textanum í
skýrsl unni betur að taka kaflann um
nefndina út. „Það skipti ekki máli
hvort þetta héti nefnd eða eitthvað
annað, því ég segi í setningunni á
undan að það þurfi að skoða þetta.“
Enginn þrýstingur
Spurður hvort einhver hefði beitt
hann þrýstingi um að taka kaflann út
segir Brynjar: „Nei, nei, enginn. Þetta
var bara hluti af prófarkalestrinum
sem var yfirfarinn.“
Veigamiklar ákvarðanir
skoðaðar
Í málsgreininni á undan kaflanum
sem Brynjar tók út skrifar hann: „Þótt
skýrsluhöfundur sjái ekki merki þess
að við endurreisn bankanna þriggja
hafi verið beitt svikum og blekking-
um eða að með vísvitandi hætti hafi
verið farið á svig við lög er eðilegt að
skoðað verði, að minnsta kosti að
einhverju leyti, hvort veigamiklar
ákvarðanir hafi í öllum eðlilegum
tilvikum verið eðlilegar á þeim tíma
sem þær voru teknar og hvort mál-
efnaleg sjónarmið hafi alltaf legið
þar að baki.“
Vægara orðalag
Haraldur Einarsson, varamaður í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis, sat fund þar sem skýrsla
Brynjars var lögð fram og rædd.
Spurður hvort orðalagið í lokaeintaki
skýrslunnar hafi ekki verið vægara
en í fyrra eintakinu segist hann geta
tekið undir það. „Þetta er vægara
orðalag en þetta er hans ákvörðun.
Hann einn þarf að standa skil á
þessari skýrslu. Þetta kemur ekkert
frá nefndinni. Persónulega skil ég
ágætlega af hverju hann orðar þetta
vægar. Það er annað sem þú seg-
ir á lokuðum trúnaðarfundi en það
sem þú birtir allri þjóðinni,“ segir
Haraldur.
Víglundur skrifaði opið bréf
Málið á rætur að rekja rúmt ár aftur
í tímann, eða til 23. janúar 2014. Þá
ritaði Víglundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður BM Vallár,
opið bréf til forseta Alþingis þar
sem hann óskaði eftir því að Alþingi
rannsakaði stýrihópana. Einnig
óskaði hann eftir því að rannsakað
yrði hvort Fjármálaeftirlitið og Seðla-
bankinn hefðu farið að lögum í starf-
semi sinni í tengslum við mál gömlu
þrotabúanna. Úr varð að Brynjar,
Karl Garðarsson og Valgerður
Bjarnadóttir skipuðu nefndina. Val-
gerður dró sig síðar út úr henni og á
endanum var það Brynjar sem tók að
sér einn að fara yfir erindi Víglundar
og gefa nefndinni álit. n
Hætti við kafla í skýrslu
til Alþingisnefndar
n Brynjar Níelsson féll frá hugmynd um að skipuð yrði nefnd, en vill að málið verði skoðað
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Brynjar Níelsson
Alþingismaðurinn lagði
nýlega fram skýrslu
til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis.
MyNd Sigtryggur Ari
Hólmaslóð 2 . 101 Reykjavík . www.tolli.is
Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17