Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Page 25
Umræða 25Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Sjálfur er ég mjög bjartsýnn
fyrir þetta sumar
Fráleitt að um sé að
kenna fáfræði
Vonin heldur í
mér lífinu
Ari Hermóður Jafetsson um laxveiðisumarið. – DV Gunnar Rafn Jónsson skurðlæknir tekur upp hanskann fyrir andstæðinga bólusetninga. – DV Bjarnheiður Hannesdóttir bindur vonir við stofnfrumumeðferð. – DV
Myndin Með athygli Gestir á fundi stjórnarandstöðunnar í Iðnó á fimmtudag, þar sem hagfræðingar ræddu afnám gjaldeyrishafta, hlýða með athygli á framsöguræður.
Mynd SiGtRyGGuR ARi
1 Ólafur Ólafsson kominn í fangelsi Ólafur Ólafsson
hefur hafið afplánun vegna Al Thani-
málsins svokallaða. Ólafur var dæmdur
í fjögurra og hálfs árs fangelsi í febrúar
fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun.
Hann hóf afplánun í Hegningarhúsinu
og hefur verið fluttur á Kvíabryggju til
afplánunar.
Lesið: 31.460
2 Stunda sjálfsfróun í 10 til 15 tíma á dag Monika
Emilsdóttir, íslenskur læknir við Herlev-
sjúkrahúsið í Danmörku, tók þátt í
rannsókn á karlmönnum þar í landi með
„ofurkynlífslöngun.“ Til rannsóknar voru
156 danskir karlmenn sem allir eiga það
sameiginlegt að vera með svo mikla
kynlífslöngun að hún kemur í veg fyrir að
þeir geti lifað eðlilegu lífi.
Lesið: 31.374
3 Ingibjörg Ýr um heimilis-ofbeldið: „Hann rændi æsku
minni“ „Ég mun aldrei tala við hann
aftur en ég er búin að fyrirgefa honum
þó svo að ég hafi ekki sagt það beint við
hann,“ segir Ingibjörg Ýr Smáradóttir,
tvítug kona af Suðurnesjunum í viðtali
við DV. Þar greindi hún frá heimilis-
ofbeldi sem hún bjó við frá tíu ára aldri.
Lesið: 27.303
4 Dæmdur barnaníðingur með barnaklám og hlað-
inn loftriffil Jón Sverrir Bragason,
dæmdur barnaníðingur, var dæmdur í
óskilorðsbundið fangelsi í tvö ár og átta
mánuði á dögunum. Jón Sverrir hlaut
dóm fyrir að hafa haft undir höndum 45
þúsund myndir sem sýndu börn á kyn-
ferðislegan eða klámfenginn hátt. Eins
var hann með 155 kvikmyndir. Þá kom
í ljós að hann var einnig með hlaðinn
loftriffil undir höndum.
Lesið:20.647
5 „Það gera 84 dauðsföll af völdum mislinga“
„Maður hefur orðið var við ótrúlega
margt fólk sem er þessu ekki sammála,“
segir Ketill Sigurður Jóelsson, löndunar-
maður og fjögurra barna faðir á Akureyri.
Ketill skrifaði pistil á Facebook um
bólusetningar sem hefur hlotið miklar
undirtektir. Ketill er í stuttu máli þeirrar
skoðunar að það sé ábyrgðarlaust af
foreldrum að láta ekki bólusetja börn sín.
Lesið: 20.379
Mest lesið
á DV.is
S
amanlagður hagnaður Ís-
landsbanka, Landsbanka og
Arion banka í fyrra nam um
80 milljörðum króna. Fyrir
þann hagnað hefði á einu
bretti mátt reisa Búðarhálsvirkjun,
grafa Vaðlaheiðargöng, Norðfjarðar-
göng, Héðinsfjarðargöng og bæta við
Dýrafjarðargöngum á Vestfjörðum.
Eða reisa nýjan Landspítala. Saman-
lagður hagnaðurinn nam 222 millj-
ónum króna á dag allt árið í fyrra,
eða 9,3 milljónum króna á klukku-
stund. Það gera 154 þúsund krónur
á mínútu.
Hagnaður bæði Íslandsbanka og
Arion banka er meiri en helming-
ur af heildartekjum hvors banka um
sig. Þetta er vel af sér vikið þegar litið
er til þess að hagnaður banka annars
staðar á Norðurlöndum er mun
minni sem hlutfall af tekjum. Þetta
má sjá þegar rýnt er í árs skýrslur
nokkurra þeirra af handahófi;
Nordea, Skandinaviska Enskilda
Bank og Danske Bank.
Öruggur gróði
Háir vextir er gamalgróið ráð ís-
lenskra banka við óstöðugleika og
vörn þeirra gegn áhættunni sem
fylgir íslensku krónunni. En þeir búa
ekki við sömu krónu og við sem erum
hinum megin við borðið; þeirra
króna er að stórum hluta verðtryggð
á kostnað heimilanna. Ólíkt þeim
lifa bankarnir enn í hægindum með
belti, axlabönd og björgunarhring í
formi verðtryggingarinnar.
Stýrivextir hafa verið lækkaðir
niður í ekki neitt í sumum þeirra
landa sem við skiptum mest við. Hér
hafa stýrivextir verið margfalt hærri.
Þeir hafa þó lækkað án þess að bank-
arnir hafi skilað þeirri lækkun til fulls
til viðskiptavina sinna, fyrirtækja og
einstaklinga.
Ásgeir Jónsson hagfræðingur lýsti
í stuttu erindi um afnám fjármagns-
hafta fyrir helgina að Ísland væri eyja
hárra nafnvaxta í vaxtalausu hafi. Já,
hvernig er það: fara útlendir auð-
menn ekki brátt að horfa til góðra
ávöxtunarmöguleika á Íslandi líkt og
fyrir hrun?
Vaxtaokri bankanna má líkja við
refsiskatt sem lagður er sérstaklega
á fólk fyrir að búa hér á landi. Þeir
sem verja vilja vaxtastefnu bankanna
segja ef til vill sem svo að háir vext-
ir (einnig stýrivextir) sé eina leiðin
til þess að verja óstöðuga íslenska
haftakrónu falli. Þeir segja sjálfsagt
einnig að ekki sé annað í stöðunni
en að velta vaxandi bankasköttum,
til dæmis vegna skuldaleiðréttinga
ríkisstjórnarinnar, yfir á herðar við-
skiptavina bankanna í formi hærri
vaxta.
En hvað sem þessu líður; hagn-
aður bankanna er mikill og vekur
spurningar um vaxtaokur. Munur á
vöxtum hér og í öðrum löndum er
mikill. Nafnvaxtamunurinn hér á
landi og í Þýskalandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum hefur verið á bilinu
4 til 6 prósentustig.
Sama hvaðan gott kemur
Þegar hagnaðartölur bankanna birt-
ust bar svo við á Alþingi síðastliðinn
miðvikudag að aðeins tveir þing-
menn af fimmtán, sem tóku til máls
um störf Alþingis, ræddu þennan
ofsagróða bankanna. Þetta voru þeir
Karl Garðarsson og Ásmundur Einar
Daðason, Framsóknarflokki.
Karl gagnrýndi hjal bankanna
um samfélagslega ábyrgð og benti
á vaxtaokur á kostnað heimilanna.
Ásmundur sagði ofsagróðann renna
beint til eigenda bankanna og hótaði
frekari skattlagningu.
Sama dag flutti Elizabeth Warren,
þingmaður demókrata, enn eina
eldræðuna vestur í Bandaríkjun-
um um græðgisvæðingu hinna ríku
á kostnað mergsoginna millistétta
sem vart hafa efni á heilbrigðisþjón-
ustu né menntun barna sinna leng-
ur. Einkavædd námslán sliga æ fleiri
nemendur og leggja á þá skulda-
fjötra fyrir lífstíð.
Hér er óhjákvæmilegt að leggja
spurningar fyrir stjórnarandstöðuna
á Alþingi. Hvenær nær hún vopn-
um sínum? Illugi Jökulsson lét hafa
eftir sér á samfélagsmiðlunum er
hann hafði hlustað á ræðu banda-
rísku baráttukonunnar: „Þessi ræða
Elizabeth Warren er svona dæmi um
það sem stjórnarandstaðan á Íslandi
ætti að vera að tala um – en gerir ekki
heldur svamlar í sinni ládeyðu.“
Einkennileg staða í stjórnmálum
Til að gæta allrar sanngirni greip
Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, bolt-
ann á lofti degi eftir að framsóknar-
þingmennirnir höfðu haft í hótunum
vegna bankagróðans.
„Það verður að vekja athygli þing-
manna Framsóknarflokksins á því að
þeir eru ekki í stjórnarandstöðu. Þeir
eru í stjórnarmeirihluta. Og þeir hafa
haft tvö ár til þess að setja þessum
bönkum skorður. Um þjónustugjöld,
um vexti, um hagnað. Þessir bankar
starfa meðal annars á ríkisábyrgð frá
þeirra eigin ríkisstjórn.“
Hér er á að líta að bankarnir virð-
ast að mestu hafa haft undirtökin
gagnvart stjórnvöldum allar götur
frá því þeir voru endurreistir. Hefð-
bundin viðfangsefni vinstri flokka
blasa við; að verja kaupmáttinn og
velferðina og hemja vaxandi ójöfn-
uð sem heimurinn er að vakna til
vitundar um að ógna mun þjóð-
skipulaginu og lýðræðinu í framtíð-
inni.
Það er því einkennileg staða að
eldræðurnar gegn ofsagróða fjár-
málaaflanna skuli nú koma úr röðum
stjórnarliða sem stjórnarandstaðan
hæðist að og kennir við silfurskeiðar.
Það er erfitt fyrir kjósendur að trúa
því að gagnrýnin sé innantómt lýð-
skrum þegar hún kemur af vörum
framsóknarmanna en málefnaleg
þegar hún hrýtur af vörum stjórnar-
andstæðinga.
Eitthvað er einkennilegt við póli-
tíkina þessa dagana og við blasir að
núverandi stjórnarandstæðingar
þurfa að líta í eigin barm. n
Hvenær ná þau vopnum sínum?
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Kjallari
„Það er því ein-
kennileg staða að
eldræðurnar gegn ofsa-
gróða fjármálaaflanna
skuli nú koma úr röðum
stjórnarliða sem stjórnar-
andstaðan hæðist að ...