Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 38
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 201530 Fólk Viðtal
vegna veikindanna, en ákváðu svo
að láta krabbameinið ekki stjórna lífi
þeirra lengur og blása til brúðkaups.
Örvar beygir af þegar hann ræðir
þetta. Hann afsakar sig og reynir
að halda aftur af tárunum. Hann á
stundum erfitt með að rifja upp tíma
þeirra saman án þess að gráta. „Ég
skammast mín ekki fyrir sorgina.
Það er hollt að leyfa henni að koma.
Ég skammaðist fyrir hana fyrst, og
kannski geri ég það stundum ennþá.
Ég tek oft grátköst heima hjá mér og í
bílnum, en stundum meðal almenn-
ings. Það er mannlegt að gráta.“
Stefnumót á líknardeildinni
Það lá fyrir í nokkur ár að sjúkdóm-
ur Berglindar væri ólæknandi og að
hún myndi kveðja þetta líf langt fyrir
aldur fram. Örvar segir það hafa verið
mjög erfitt að lifa með því og hann var
lengi í afneitun. „Ég vissi að það kæmi
að þessu en ég vildi ekki trúa því. Ég
óskaði þess að ég yrði alltaf með
henni. Auðvitað hefði ég getað farið
frá henni, mér bar ekki skylda til að
vera með henni, en ég vildi klára þetta
með sóma. Ég sagði við hana á hverj-
um einasta degi hvað hún væri sæt en
hún mótmælti alltaf. En eftir að hún
var dáin þá sagði besta vinkona henn-
ar mér að ástæðan fyrir því að hún
hefði sig alltaf til á hverjum degi væri
af því mér þætti hún svo falleg. Ég
meinti þetta af öllu hjarta. Ég elskaði
hana alveg þangað til hún dó og elska
hana ennþá. Síðasta stefnumótið
okkar var á líknardeildinni þar sem
við lágum saman og hlustuðum á
Celine Dion. Við fórum á stefnumót í
hverjum einasta mánuði, en þetta var
eitt besta stefnumót sem við fórum á,“
segir Örvar og brosir þó stutt sé í tár-
in. Á þeim tíma hefði verið fullkom-
ið fyrir þau að hafa aðgang að sýndar-
veruleikaferðamennsku til að geta
ferðast saman til Las Vegas á líknar-
deildinni. „Það hefði breytt öllu. En
við fórum saman til Las Vegas í hug-
anum.“
Búin að upplifa það versta í lífinu
Það var erfitt fyrir þau hjónin að þurfa
að gefa alla sína drauma og fram-
tíðarvonir upp á bátinn. Reyna að
halda sínu striki og njóta þess að vera
saman, en á sama tíma vita að tíminn
var naumur. „Það var mjög erfitt að
sjá ekki fram á fjölskyldulíf með Berg-
lindi því hún hún hefði orðið svo góð
móðir. Hún sagði líka oft við mig að
ég yrði góður pabbi. Þó ég sé ekki að
hugsa um barneignir í dag þá langar
mig í framtíðinni til að ættleiða barn.
Ég vil klára að koma fyrirtækinu á
laggirnar fyrst, en langtímamarkmið-
ið er að verða pabbi einhvers barns
sem þarf á því að halda. Það verð-
ur örugglega erfitt, en ég get tekist
á við það. Það sem ég upplifði með
Berglindi, að horfa á hana deyja í
örmum mínum, það er það versta
sem ég mun nokkurn tíma upplifa.
Ég veit að það mun ekkert verða jafn
erfitt og ömurlegt og það var. Það er
gott veganesti fyrir mig út í lífið, að
vita að sama hvað gerist, þá verður
það aldrei jafn slæmt og það sem ég
hef upplifað,“ segir Örvar hreinskil-
inn og auðmjúkur. „Þetta gerir það að
verkum að ég vakna brosandi á hverj-
um degi og hugsa: „Ég ætla að breyta
heiminum“.“
Örvar bendir á að aðstæður hans
séu sérstakar, enda hafi hann verið
byrjaður að syrgja konuna sína löngu
áður en hún dó. „Ég fór að undirbúa
mig sem ekkil mánuði áður en við
giftum okkur. Ég var að hlaða niður
upplýsingum fyrir ekkla á sama tíma
og ég var að leita að stað fyrir brúð-
kaupsveisluna okkar.“
„Örvar, ég elska þig“
Þrátt fyrir að hafa náð að undirbúa
sig var andlát Berglindar honum mik-
ið áfall. „Ég fór í hálfgert sjokk þegar
hún dó. Ég man ekki einu sinni eftir
jarðarförinni,“ segir Örvar og rifjar í
kjölfarið upp dýrmætt augnablik sem
sem þau áttu saman áður en hún varð
meðvitundarlaus. „Hún kyssti mig al-
veg eins og þegar hún kyssti mig fyrst.
Berglind vissi að hún var að kveðja
mig, en ég vissi það ekki. Daginn eftir,
þegar ég kom á líknardeildina, þá var
hún meðvitundarlaus og var þannig
í þrjá daga. Þá opnaði hún augun og
ég vissi að það var eitthvað mikil-
vægt sem hún ætlaði að segja mér. Ég
greip því í símann til að taka það upp.
Hún fékk meðvitund, horfði í aug-
un á mér og sagði: „Örvar, ég elska
þig.“ Tveimur dögum síðar dó hún.“
Fyrstu vikurnar eftir andlátið horfði
hann aftur og aftur á myndbandið
með síðustu orðum Berglindar, en
hann er hættur því í dag. Örvar seg-
ir dauðann ekki alslæman þótt hann
sé ógnvekjandi. Það hafi til að mynda
verið ákveðinn léttir fyrir Berglindi að
deyja eftir allt það sem hún var búin
að ganga í gegnum.
Fjölskyldan trúir ekki á hann
Þrátt fyrir að Örvari líði vel og finnist
hann tilbúinn að takast á við þau
verk efni sem hann er að fást við, fær
hann oft að heyra að hann sé að fara
of geyst af stað. Bæði hvað fyrirtækið
varðar og nýja sambandið. „Það er
það leiðinlega í þessu öllu. Foreldrar
mínir og systkini trúa til að mynda
ekki á mig. Öll tengsl við þau eru rof-
in. Við sjáum þetta ekki sömu augum.
Þau halda að ég sé búinn að missa
vitið. Fjölskylda mín verður auðvit-
að alltaf fjölskylda mín og tíminn get-
ur læknað flest sár. Þau eru ekki búin
að jafna sig eftir andlát Berglindar,
en ég er að jafna mig nokkuð vel, því
Berglind er með mér í hjarta alla daga
og mótar það sem ég er að gera. Ég er
að gera þetta í hennar nafni. Ég læt
engan stoppa mig í því sem ég er að
gera. Ég ætla að standa og falla með
þessu,” segir hann ákveðinn og von-
ast til þess að fjölskylda sín komi til
með að prófa Rymur-búnaðinn ein-
hvers staðar í framtíðinni og átti sig á
því hvað hugmyndin er góð.
Erfitt að viðurkenna ástina
Örvar skilur vel að fólk hafi ekki trú
á hugmyndinni áður en það kynnir
sér hana, enda hljómar sýndarferða-
mennska eins og eitthvað sem á
heima í vísindaskáldsögum, eða bíó-
myndum sem gerast í framtíðinni. En
það er ljóst að framtíðin er núna. „Það
hrífast allir af þessu, allir sem prófa
og allir sem kynna sér hugmyndina.
Við höfum ekki rekist á einn einasta
vegg ennþá. Þetta er auðvitað að ger-
ast á miklum hraða og ég þarf að vera
rólegur. En Anna passar mig, hún er
jarðbundin.“
Sjálfum líður honum stundum
eins og hann muni vakna inni á
Kleppi einn daginn og átta sig á að
þetta hafi allt verið ofskynjanir. Hann
á erfitt með að trúa hve hratt og vel
þróun fyrirtækisins og kynning Rym-
ur-verkefnisins hefur gengið. Þá á
hann líka erfitt með að trúa að hann
sé kominn í annað samband. „Ég er
ástfanginn og sé fyrir mér að þetta sé
konan sem ég ætla að vera með. Það
eru alveg hreinar línur. En að viður-
kenna það fyrir sjálfum sér er ekk-
ert auðvelt. Það sem skilur að ekkla
og einstæða menn er að ekklarnir
eiga erfitt með að vera einir, þeir eru
eigin menn og þannig líður þeim best
– sem makar. Og það er akkúrat það
sem ég er.“
Alvarlegt einelti í æsku
Þrátt fyrir að andlát Berglindar hafi
verið það erfiðasta sem Örvar hefur
gengið í gegnum, þá hafði hann feng-
ið sinn skerf af erfiðleikum löngu fyr-
ir þann tíma. Annars konar erfiðleik-
um, sem mótuðu hann mikið framan
af. Hann var alltof þungur sem barn
og langt fram á fullorðinsár og leið
fyrir það „Ég átti erfitt sem krakki og
varð fyrir miklu einelti. Ég átti ömur-
lega æsku og fékk í raun aldrei að
njóta mín, fyrr en núna. Ég var ein-
fari í mörg ár og átti enga vini. Ég er
eiginlega að uppgötva sjálfan mig á
nýjan leik, 38 ára gamall,“ segir Örvar
og brosir. Hann er allt annar maður í
dag en hann var fyrir tíu árum, þegar
hann kynntist Berglindi. Þá var hann
óöruggur með sig og hafði litla trú
á sjálfum sér. Hann segir Berglindi
hafa gert hann að þeim manni sem
hann er í dag. „Hún leyfði mér að
finna sjálfan mig og það þakka ég
henni.“
Hann viðurkennir að það sé mjög
góð tilfinning að fá hálfgerða upp-
reisn æru með þessum hætti. „Þegar
ég var feitur þá skipti það mig miklu
máli að vera samþykktur. Það skiptir
mig máli núna að fá viðurkenningu
á því sem ég er að gera. Sú viður-
kenning kemur í raun í hvert skipti
þegar fólk setur gleraugun á sig og
upplifir það sem við ætlum að bjóða
upp á. Fólk virðist oft tengja offitu
við heimsku. Ef ég væri feitur í dag
þá fengi ég örugglega minni hljóm-
grunn með hugmyndir mínar. Það
eru svo miklir fordómar gagnvart
feitu fólki,“ segir hann alvarlegur í
bragði.
Markmiðinu náð
Örvar er mjög bjartsýnn á að vegur-
inn fram undan haldi áfram að vera
jafn beinn og breiður og hann hefur
verið síðustu mánuði. „Það er líka
bara svo gott að vita hvað maður vill
gera í lífinu. Og það að hjálpa fólki,
það er nákvæmlega það sem ég vil
gera.“ Aðspurður hvort hann telji
að hann verði ríkur af þessu, segir
hann það ekki markmiðið. „Mark-
miði mínu er þegar náð. Það var
þegar ég heimsótti fatlaða drenginn
um daginn og sá neistann í aug-
unum á honum þegar gleraugun
voru fjarlægð. Ég sá augun í honum
glitra og þá fann ég að tilganginum
var náð. Þetta gerir það að verkum
að ég vakna brosandi og spenntur
á hverjum einasta morgni.“ Ef hann
verður hins vegar ríkur á þessu þá
segist hann ætla að nýta peningana
í þágu góðra málefna. Þá er honum
mikið í mun að létta undir með fjöl-
skyldu Berglindar, sem hann segist
vera í góðu sambandi við. „Ég vil
allt fyrir þau gera til að létta þeim
lífið,“ segir Örvar að lokum. n
Sýndarveruleiki Til þess að njóta
þess hugbúnaðar sem starfsmenn
Rymus eru að þróa þarf sýndar-
veruleikahjálm og snjallsíma. Ódýrari
útgáfa af hjálminum fylgir frítt með
þegar fólk skráir sig sem notendur.
Mynd Sigtryggur Ari
„Ég er ástfanginn
og sé fyrir mér að
þetta sé konan sem ég
ætla að vera með
Saman í London Örvar og Anna kynntust á Tinder aðeins mánuði eftir að Berglind dó.
Þau eru strax byrjuð að skapa sér minningar saman.
Hvað er
Rymur?
Örvar Friðriksson stofnaði fyrirtækið
Console Rymur Production Studios
þann 28. nóvember síðastliðinn,
en aðalverkefni þess er að þróa
hugbúnað fyrir sýndarferðamennsku,
sem hefur fengið nafnið Rymur. Í dag
starfa sextán manns hjá fyrirtækinu
um allan heim, en að sögn Örvars
mun starfsfólki fjölga um rúmlega
helming á næstunni.
Örvar vill gera fólki, sem af
einhverjum ástæðum á erfitt um
vik að ferðast, tækifæri til að skoða
heiminn. Eins og hann segir sjálfur,
þá vill hann að fátæk börn geti farið í
Disneyland á hverjum degi.
Markmiðið er að taka upp
myndefni með drónum víða um heim
og þróa hugbúnað sem gerir fólki
kleift að sækja efnið og njóta þess.
Hugbúnaðar- og frumkvöðlateymi
fyrirtækisins vinnur að því núna.
Mörg stórfyrirtæki hafa sýnt áhuga á
samstarfi við Rymur, eins og Google
og Paramount Pictures. Þá hafa
íslensk ferðaþjónustufyrirtæki mik-
inn áhuga á samstarfi, enda býður
verkefnið upp á mikla landkynningu.
Örvar er aðaleigandi félagsins og
hann vill halda því þannig, þrátt fyrir
að margir fjárfestar hafi sýnt áhuga á
að slást í hópinn. Hann gaf hins vegar
þremur starfsmönnum hlut og gerði
Önnu að varaformanni. Þá segir hann
fyrirtækið vera skuldlaust.