Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 50
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 201542 Menning
Magnea segir
frá uppáhalds
Flík: Kjóllinn minn frá íslenska
fatamerkinu Kyrja
Litur: Grár
Stíll: Minimalískur og fyrirhafnarlaus
Hönnuður: Jonny Johansson hjá acne
Búð: Dover Street Market
Borg: London
Hönnunarhornið
mælir með
Nú eru aðeins tvær vikur þar
til Reykjavík Fashion Festival
2015 hefst í Hörpu samhliða
Hönnunarmars 2015 líkt og
í fyrra. Þessa vikunna bendir
Hönnunarhornið lesendum á að
fylgjast náið með undirbúningi
hátíðarinnar á Instagram-síðu
Rff_is auk þess að fylgjast með
Instagram-síðum þátttakenda.
Þar má sjá ýmislegt sem er um að
vera á þessum síðustu undirbún-
ingsdögum. Segja má að þetta gefi
manni svipaða tilfinningu og góð-
ur „trailer“ fyrir frumsýningu bíó-
myndar. Það finnst mér allavega.
Danski apinn
fær keppinaut
Það kannast flestir hönnunar-
aðdáendur við tréapann danska
sem Kaj Bojesen bjó til. Hann
hangir smekklega í hillum á ýms-
um fallegum menningarheim-
ilum. Færri vita þó að rúmlega
60 ár eru síðan þetta geysivin-
sæla viðardýr var hannað. Til eru
nokkrar tegundir af sams konar
trédýrum frá vörumerkinu og er
oft vitnað í trédýragarðinn þegar
talað er um dýrasafnið.
Nú er væntanleg endur-
hönnuð útgáfa af viðardýri sem
er enn eldri en apinn. Það er
sebrahestur sem upprunalega var
hannaður árið 1935. sebrahestur-
inn var fyrsta exótíska viðardýrið
sem Kaj hannaði og þótti afar
framandi fyrir Skandinava á þess-
um tíma. Menningarheimilin
þurfa nú að fara að rýma til í hill-
um og gera sér ferð í Epal til að
sækja svarthvíta dýrið.
M
argir hafa eflaust haldið
sér vakandi síðastliðið
sunnudags kvöld til að
fylgjast með stærstu verð-
launaafhendingu í kvikmynda-
bransanum. Persónulega var ég
spenntust fyrir rauða dreglinum
til að sjá hvaða hönnuðir urðu fyrir
valinu hjá stjörnunum.
Þetta kvöld er ekki bara einungis
mikilvægt fyrir kvikmyndabrans-
ann heldur alveg jafn mikilvægt
fyrir Haute Couture-tískugeirann
og er rauði dregillinn hápunktur
ársins hjá þeim. Það er algengur
misskilningur hjá fólki að halda að
stjörnurnar fái að velja sér kjólana
frá hönnuðum til að klæðast á slíkri
hátíð. Málum er þannig háttað að
hönnuðirnir velja sér vandlega
stjörnur til að klæðast kjólunum
sínum á dreglinum. Stærsta og
mikilvægasta auglýsing ársins
fyrir fatahönnuð er sennilega að
Hollywood-stjarna klæðist hans
hönnun á Óskarsverðlaunahátíð-
inni. Þessi flík mun birtast í flest-
um fjölmiðlum heims næstu daga
í kjölfarið. Oft verða kjólamynd-
irnar það frægar að þær festast við
stjörnuna til frambúðar líkt og gerð-
ist með Björk, en eins og kunnugt
er mætti hún í svanakjól á Óskarinn
árið 2001. Þess vegna eru hönnuðir
afar vandlátir í vali hvað varðar þá
sem skarta þeirra hönnun. Oft fá
stjörnurnar himinháar greiðslur og
þurfa að skrifa undir samninga við
fatahönnuðinn fyrir slíkan viðburð.
Á stjörnunni hvílir sú ábyrgð að láta
þokkann geisla í kjólnum og koma
nafni hönnuðar áfram til fjölmiðla-
fólksins.
Hönnuðir sem
voru áberandi á há-
tíðinni voru meðal
annars Calvin
Klein, Chanel,
Givenchy og Ralph
& Russo. Réttast er
því að segja að að
Elie Saab hafi val-
ið Jennifer Lopez
og Emmu Stone,
Tom Ford valdi
Reese Witherspoon
og Valentino kaus
Keiru Knightley. n
Á rauða dreglinum
Fatahönnuðir velja sér stjörnur í kjólana
Valin í kjólinn
Mikilvægt kvöld fyrir
tískugeirann.
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kofinna@artikolo.is
Stólarnir sem
allir eru að tala um
Daníel Magnússon hannar stóla sem munu verða áberandi á Hönnunarmars
H
efur þú rekið augun í þessa
stóla? Þeir eru hvorki aug-
lýstir né til sölu í búðum
en líklegt er að þú hafir séð
slíka stóla. Þeir hafa meðal
annars birst nafnlausir í hönnunar-
blöðum, þá er að finna á veitinga-
stöðum og börum í Leifsstöð og
prýða nokkur hugguleg heimili á
höfuðborgarsvæðinu. Þessir stólar
munu verða áberandi á Hönnunar-
mars í komandi mánuði. Hönnuð-
urinn heitir Daníel Magnús son og
hefur hann sérstaklega smekklegt
handbragð. Hann framleiðir fallega
stóla á elsta smíðaverkstæði höfuð-
borgarinnar sem er staðsett neðst á
Skólavörðustíg. Stólarnir Parabóla
og Kapla eru vinsælustu týpurnar
sem Daníel býr til, en hann smíð-
ar einnig fleiri muni, svo sem eikar-
borð og ljósakrónur.
Kallar sig ekki hönnuð
Parabólustólarnir eru gerðir úr eik,
leðri og ryðfríu stáli. Þrátt fyrir ein-
staka framleiðslu á eigin
hönnun, allt frá því að vera
hugmynd í að verða full-
kláraðir gripir, kallar Daníel sig
ekki hönnuð og stendur vörð um
það sem liggur að baki slíkum
titli. Daníel er myndlistar-
maður að mennt og segir
Hönnunarhorninu hvers
vegna hann kýs að kalla sig
ekki hönnuð: „Ég hef ekki
áhuga á að kallast hönnuður
vegna þess að margra ára nám
liggur að baki slíkum titli.“ Að-
spurður um hönnun sína svar-
ar hann: „Ég kalla þessa stóla
smíðisgripi sem er gamalt
íslenskt hugtak yfir smíði
af þessu kalíberi. Ég hef
sérstaklega valið að
kalla þessa stóla smíðis-
gripi af virðingu við
hönnuði sem leggja
annan metnað og
forsendur í sína vinnu.“
Stóllinn á að
duga eins
lengi og
tréð fékk
að vaxa
Innblástur-
inn að stólunum
sagði hann hafa komið
frá endingargildi hlut-
arins. „Húsgögnin
mín eru öll smíðuð
með góða endingu
að leiðarljósi,“
segir Daníel og
bætir við að
meginmark-
mið hans hafi
verið að stólarn-
ir hefðu það góða
endingu að þeir entust
allavega þann tíma
sem tæki tréð sem notað er í smíðina
að komast í nýtanlega vaxtarstærð
og helst tvöfaldan þann tíma. n
Fallegir
Parabólu-
stólarnir eru
svo sannar-
lega falleg
íslensk smíð.
Skemmtileg hugsun
Stólarnir eiga að endast eins
lengi og það tók sjálft tréð, sem
notað er í þá, að vaxa. „Húsgögnin
mín eru öll
smíðuð með góða
endingu að leiðarljósi
Ný hönnun Kaplastólar, ný hönnun sem
sjá má víða á Leifsstöð.
Með baki Parabóla Squad
er smekkleg útgáfa af Para-
bólustólnum með baki.
MyND DANieL MAgNuSSoN