Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 55
Menning 47Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
B
laðamaður brá sér, ásamt
ljósmyndara, á hinn ár
lega Bókamarkað Félags ís
lenskra bókaútgefenda sem
haldinn er undir stúkunni
á Laugardalsvelli. Markaðurinn
stendur til 15. mars og opið er frá
10 til 18 alla daga. Heimsóknin var
farin tveimur dögum áður en mark
aðurinn var formlega opnaður og
starfsfólk var önnum kafið við að
raða og stilla upp bókum. Bóka
útgefendur og aðrir sem koma að
bókaútgáfu sáust bera inn kassa,
þar á meðal voru Stefán Pálsson og
félagi hans Ragnar Kristinsson, sem
létu slæmt veður ekki aftra sér og
mættu með nokkra kassa af Íslands
söguspilinu sem þeir gáfu út fyrir
tveimur árum.
Bryndís Loftsdóttir er fram
kvæmdastjóri Bókamarkaðarins. „Á
markaðnum þetta árið eru um 7.500
titlar og auk þess bætast við mörg
þúsund bækur sem eru í sér stöku
bókahorni fornbókaverslunarinnar
Bókarinnar og Bjarni Harðarson
er með annan eins fjölda frá Sunn
lenska bókakaffinu. Á markaðnum
hefur aldrei áður verið jafn mik
ið úrval af fornbókum á frábæru
verði,“ segir Bryndís. „Þetta árið er
sterk áhersla á barnabækur sem fá
mikið pláss. Eins erum við með veg
legan fræðibókagang þar sem er að
finna bækur frá Hinu íslenska bók
menntafélagi, Sögufélaginu, Há
skólaútgáfunni og Forlaginu ásamt
öðrum forlögum.“
Saknar fornbókaverslana
Bjarni Harðarson var ekki á staðn
um þennan morguninn, hugsan
lega veðurtepptur á Selfossi, en veð
ur þennan dag var með versta móti.
Eiríkur Ágúst Guðjónsson var önn
um kafinn við að raða upp bókum í
fornbókahorn Bókarinnar en hann
er afgreiðslumaður í þeirri rótgrónu
verslun. „Bókin er eina verslunin
sem er eftir í Reykjavík sem selur
gamlar bækur, fyrir utan Kolaportið
og litla búð sem er bak við Brynju
á Laugaveginum. Fyrir mörgum
árum, þegar ég var unglingur, voru
fjórtán fornbókaverslanir í Reykja
vík,“ segir hann. Spurður um það
hversu margir titlar verði í bóka
horni Bókarinnar segir hann:
„Þegar allt er komið upp verðum við
með um 12.000 titla á markaðnum.
Þetta er bara gaman.“
Já, gleði fylgir því að fara á Bóka
markaðinn eins og þeir vita sem
hafa þann sið að skunda þangað
á hverju ári og finna sér bækur við
hæfi. Mikið úrval er í öllum flokkum
og auðvelt að gera góð kaup. Sem
dæmi má nefna vandaða ævisögu
Jóns Leifs tónskálds eftir Árna Heimi
Ingólfsson. Rómuð ævisaga Páls
Valssonar um listaskáldið góða sem
þjóðinni þykir svo vænt um, Jónas
Hallgrímsson, fæst á 1.490 krónur,
bók sem fékk Íslensku bókmennta
verðlaunin og átti þau sannarlega
skilin. Snert hörpu mína, ævisaga
skáldsins yndislega Davíðs Stefáns
sonar er á sama verði. Skáldalíf –
Ofvitinn úr Suðursveit og skáldið
á Skriðuklaustri eftir Halldór Guð
mundsson er á sama verði og áður
nefndar bækur sem og hin forvitni
lega ævisaga Gunnars Thoroddsen
eftir Guðna Th. Jóhannesson.
Gæðaskáldskapur á góðu verði
Ljóðabækurnar eru vitanlega á sín
um stað. Hin marglofaða ljóðabók
Gerðar Kristnýjar, Blóðhófnir, kostar
990 krónur og Nei eftir Ara Jósefsson
sem er orðin ljóðaklassík er á sama
verði. Ljóð Jóhanns Sigurjónsson
ar eru í bók sem kostar 490 krónur –
þar fá kaupendur sannarlega mikið
fyrir peninginn. Ekki eru síður góð
kaup í bók sem heitir Fjögur ljóð
skáld og kostar 590 krónur. Þar er
að finna ljóð eftir Sigurð Sigurðsson
frá Arnarholti, Jóhann Sigurjóns
son, Jóhann Gunnar Sigurðsson og
Jónas Guðlaugsson. Skáldið Hann
es Pétursson, sem er annálaður
smekkmaður á skáldskap, valdi ljóð
in og ritaði inngang. Þegar blaða
maður skoðar þá bók kemur Eirík
ur Ágúst aðvífandi og gefur stutta en
ákveðna umsögn: „Frábær bók!“
Unnendur íslenskra skáldsagna
hafa úr nógu að velja og þarna eru
ódýrar kiljur sem geyma góðan
skáldskap. Hvunndagshetjan eft
ir Auði Haralds er bók sem mjög
margir hafa dálæti á enda afar
fyndin og skemmtileg. Hún kostar
einungis 790 krónur sem er ekki
mikið fyrir bók sem fær lesandann
til að skella upp úr hvað eftir annað.
Hinn stórkostlegi Ofviti eftir Þór
berg Þórðarson kostar 990 krónur
og Tómas Jónsson metsölubók eftir
Guðberg Bergsson, tímamótaverk
í íslenskum bókmenntum er á 890
krónur og Músin sem læðist, fyrsta
skáldsaga hans, á 690 krónur, afar
merkileg og góð bók sem unnend
ur hans verða að lesa hafi þeir ekki
þegar gert það.
Þeir sem unna heimsbókmennt
um verða að eiga fallega útgáfu af
Frankenstein eftir Mary Shelley sem
kostar einungis 990 krónur, Reisu
bók Gullivers eftir Jonathan Swift
er nokkru dýrari, kostar 1.990 krón
ur og Emma eftir Jane Austen er á
1.490 krónur. Allar eru bækurnar
innbundnar og hinar fallegustu
og bókasafnarar vita að það skiptir
máli.
Hin ljúfa skylda foreldra
Fullorðnir ættu að gera það að ljúfri
skyldu að fara með börn á bóka
markaðinn og leyfa þeim að velja
sér bækur. Það hlýtur líka að vekja
ljúfar minningar hjá þeim fullorðnu
að skoða hinar fjölmörgu barna
bækur sem eru í boði á Bókamark
aðnum. Blaðamaður sá til dæm
is smábarnabókina um Stubb sem
kostar einungis 380 krónur. Sumt í
þeirri bók lærði blaðamaður utan
að fjögurra ára gamall og man enn,
setningar eins og: Stubbur er ekki
stór. Hann er bara fimm ára gamall.
Bræður Stubb segja alltaf við hann:
Þú mátt ekki vera með okkur af því
að þú ert svo lítill. – Það var ekki
erfitt að lifa sig inn í þessa sáru út
skúfun Stubbs litla.
Já, þarna eru bækur sem voru
lesnar upp til agna í gamla daga.
Eins og bækurnar um Frank og Jóa
og bækur Enid Blyton sem á sínum
tíma voru skyldujólagjöf til bókel
skra krakka. Þarna eru Tinnabækur
og Andrésblöð á góðu verði og bæk
ur eftir Astrid Lindgren og Tove Jan
son, sem sagt tímalaus klassík. Og
bækur íslenskra barnabókahöfunda
eru svo vitanlega fyrirferðarmiklar
og á góðu verði.
Hugmynd frá foreldrum
leikskólabarna
Í ættfræðideildinni, sem sumir
vilja kalla neftóbaksdeild, er líka
ýmislegt að finna. Tvö bindi af
Thorarensensætt kosta 6.000 krón
ur, en þeim sem tilheyra þeirri
ætt finnst það sennilega ekki mik
ið. Longættin í þremur bindum
er verðlögð á 8.990 krónur og eitt
bindi er til af Klingenbergsættinni
og kostar 2.990 krónur. Múraratal
kostar 1.490.
Þegar blaðamaður og ljós
myndari kasta kveðju á Bryndísi
Loftsdóttur, framkvæmdastjóra
markaðarins, kemur hún því á
framfæri að nú sé hægt að kaupa
gjafabréf á Bókamarkaðinn. „Þetta
gerum við vegna þess að við vor
um beðin um það af foreldrum
barna í leikskólum,“ segir hún.
„ Foreldrarnir keyptu gjafabréf
og gáfu starfsfólki leikskóla til að
kaupa barnabækur fyrir leikskól
ann. Gjafabréfin fást hér á mark
aðnum og kaupandinn ræður vit
anlega upphæðinni.“
Þess skal að lokum getið að hægt
er að nálgast lista yfir bækurnar sem
eru á bókamarkaðnum á heimasíðu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
fibut.is n
Gleði á Bókamarkaðnum
Bókaunnendur hafa úr nægu að velja á hinum árlega Bókamarkaði
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bryndís Loftsdóttir,
framkvæmdastjóri
markaðarins Um 7.500 titl-
ar eru á markaðnum þetta árið
og við bætast mörg þúsund
fornbækur. Mynd SiGtryGGur Ari
Eiríkur Ágúst Guðjónsson Hann er afgreiðslumaður í Bókinni og man eftir því þegar
fjórtán fornbókaverslanir voru í Reykjavík. Mynd SiGtryGGur Ari
ragnar Kristinsson og Stefán Pálsson Þeir létu vont veður ekki á sig fá og báru inn
kassa af Íslandssöguspilinu. Mynd SiGtryGGur Ari
Bækur fyrir börnin Á markaðnum er
að finna klassík fyrir börnin á góðu verði.
Justin Bieber læddi sér í hópinn með
Láka, Stubbi, Rúbert Hentzau, Kalla á
þakinu og Halastjörnunni. Mynd SiGtryGGur Ari
Gjafabréfið góða Gjafabréfið er nýjung
á bókamarkaðnum og hugmyndin kom frá
foreldrum leikskólabarna. Mynd SiGtryGGur Ari
Gæðaskáldskapur í kilju Skáld-
sögur þekktustu höfunda okkar fást
í kiljubroti og kosta innan við þúsund
krónur. Mynd SiGtryGGur Ari