Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Blaðsíða 22
Vikublað 24.–26. nóvember 20154 Gæðapítsur - Kynningarblað
Eldofninn, Grímsbæ
Ósvikið viðarofnsbragð og
ekta ítölsk fjölskyldustemning
R
eynsla og tenging
við pítsugerð í næst
um 30 ár eru á meðal
þess sem einkennir
Eldofninn. Ellert
og Eva voru viðriðin stofn
un Eldsmiðjunnar árið 1986.
Ég fæddist árið 1987 og þá
hoppaði pabbi bara beint á
vakt af fæðingardeildinni,“
segir Evert Austmann Ellerts
son, bakari hjá Eldofninum í
Grímsbæ, fjölskyldufyrir
tæki þar sem foreldrar, synir
og annað frábært starfsfólk
leggja alúð sína í að búa til
framúrskarandi pítsur og veita
góða þjónustu.
Á Eldofninum eru eingöngu
í boði 12” pítsur sem bakaðar
eru í eldofni og er eingöngu not
aður eldiviður við baksturinn.
Árið 2008, ári áður en
Eldofninn var opnaður, fóru
hjónin Ellert Austmann Ingi
mundarson og Eva Karls dóttir
til Ítalíu í leit að hentugum ofni.
Þau komu heim með eldofn
með snúningsplötu, sem tryggir
í senn frábæran bakstur, ósvikið
viðarofnsbragð og hraða þjón
ustu.
„Eftir að við setjum pítsuna
inn í ofninn þá ýtum við bara
á einn takka, pítsan byrjar að
snúast og bakast jafnt og þétt á
tveimur mínútum,“ segir Evert.
Snúningsplatan í ofninum skapar
sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt
er að afgreiða pítsurnar mjög hratt
en þær eru þó afar jafnt og vel bak
aðar.
„Við getum sett inn átta pítsur í
einu en þegar svona mikið er að gera
eins og er núorðið þá þarf að vera
með mann á ofninum til að koma
pítsunum inn og út.“
Allt eldað frá grunni
„Við búum til allt frá grunni, sósurnar
okkar eru án aðfenginna aukaefna
og í hana eru notaðir plómutómat
ar; það sama má segja um hvítlauks
olíuna og Eldofnsolíuna okkar sem
er sterk chili
olía. Rauðlauk
inn skerum við
niður hérna og
kryddið sem fer í sósuna mallar í
potti,“ segir Evert.
En hvaða pítsur eru vinsælastar?
„Vinsælustu pítsurnar eru yfir
leitt þær sem eru kenndar við okkur
bakarana og við höfum sett saman
eftir okkar smekk. Sigga Spes pítsan
er til dæmis búin að vera vinsælasta
pitsan hér í 3–4 ár en á henni eru
sveppir, skorið pepperóní, ananas,
svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur,
rjómaostur og óreganó. Þessi pítsa
slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“
Opin ítölsk stemning í matsalnum
Veitingasalurinn á Eldofninum er
bæði huggulegur og skemmtilegur.
Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá
bakarana að störfum, þeyta pítsum
upp í loftið.
„Krakkarnir eru mjög spenntir
fyrir þessu, til dæmis að sjá pítsurnar
snúast í ofninum,“ segir Evert og
honum líkar það vel að matargestir
sjái fjölskylduna að störfum.
Tíu prósenta afsláttur er veittur
af mat sem er sóttur og einnig eru
alltaf í gangi hádegistilboð virka
daga frá 11.30 til 14 en þá er staður
inn yfirleitt þéttsetinn.
Eldofninn er opinn mánudaga
til fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21,
föstudaga til kl. 22. Á laugardögum
er opið frá kl. 17 til 22 og á sunnu
dögum frá 17 til 21. Á mánudögum
er lokað – þá hleður Eldofnsfjöl
skyldan batteríin fyrir hina sex daga
vikunnar. n