Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 28
24 Lífsstíll Vikublað 24.–26. nóvember 2015 S njallsímar eru yfirleitt ekki stór og fyrirferðarmikil tæki, en ofnotkun þeirra getur engu að síður valdið miklu líkamlegu álagi og óþægind- um. Flestir hafa líklega heyrt að of- notkun snjallsíma og tölva sé óholl en einkennin gætu komið mörgum á óvart. Netógleði Netógleði er heiti yfir einkenni sem koma fram þegar maður skrunar hratt í gegnum efni í símanum sín- um eða horfir á myndbönd sem inni- halda töluverðan hasar. Það getur valdið óþægindum á borð við höfuð- verk og ógleði. Ástæðan er togstreita á milli skynfæra sem upplifa ekki það sama. Þú sérð hreyfingu en upp- lifir hana ekki líkamlega. Það getur ruglað skynfærin og valdið vanlíðan. Allir geta upplifað netógleði en kon- ur eru viðkvæmari fyrir því en karl- menn. Þá eru þeir sem eiga sögu um mígreni líka viðkvæmir. Textakló Allar ítrekaðar og einsleitar hreyf- ingar geta orsakað álagsmeiðsl og er ofnotkun snjallsíma þar ekki undan- skilin. Þeir sem eru duglegir að senda textaskilaboð eða spjalla við fólk á netinu í símanum gætu kann- ast við textaklóna. Líka þeir sem eru öflugir í tölvuleiknum Candy Crush eða sambærilegum leikjum. Einkenni textaklóar eru eymsli og krampar í fingrum, úlnlið eða upp- handlegg. Það er í raun lítið hægt að gera við þessum hvimleiðu ein- kennum nema draga úr snjallsíma- notkun. Teygjur og kaldir og heitir bakstrar gætu mögulega slegið á óþægindin. Augnþreyta Öll afþreying eða vinna sem krefst þess að þú notir augun getur valdið þreytu. Þetta á ekki bara við um notkun tölva og síma, heldur getur mikil keyrsla, lestur og skrif einnig valdið augnþreytu. En álagið á aug- un er líklega einna mest þegar setið er við tölvu eða símaskjá tímun- um saman án hvíldar. Slíkt getur valdið óþægindum í augum, þurrki, höfuðverk og mikilli þreytu. Þessi einkenni geta dregið úr starfs- og afkastagetu. Augnþreyta vegna mik- illar skjánotkunar er yfirleitt skað- laus og það má draga úr líkum á henni með því að hvíla sig reglulega frá skjánum. Að taka sér um 20 sek- úndna hlé á tuttugu mínútna fresti er gott viðmið. Ef augun eru mjög þurr er hægt að nota dropa til að sporna við óþægindum. Textaháls Líkt og textaklóin þá orsakast texta- hálsinn af of mikilli notkun snjall- síma, en um er að ræða óþægindi í hálsi og hrygg. Flest beygjum við nefnilega höfuðið fram og niður þegar við skoðum símann okkar. Sérfræðingar í stoðkerfisvandamál- um hafa líkt þessu við faraldur, svo algengur er textahálsinn. Þessi ávani, að beygja höfuðið svo mikið niður, getur valdið ótímabærum kvillum og vandamálum í hálsi og baki. En það má fyrirbyggja þessi einkenni með því að vera meðvitaður um að halda höfðinu betur uppréttu þegar síminn er skoðaður. Lyfta frekar símanum ofar svo auðveldara sé að skoða hann. Draugahringing Hver kannast ekki við að hafa verið með símann í vasanum og fundist hann vera að hringja án þess að hann sé að því í raun og veru? Þetta kallast draugahringing og er mjög algengt fyrirbæri. Ef er fólk upplifir þetta oft gæti það hins vegar endur- speglað áráttuhegðun og verið vís- bending um kvíða og stress. Eina leiðin til að koma í veg fyrir þessi óþægindi er að taka sér gott frí frá símanum. Við erum vön að vera með símann límdan við okkur frá morgni til kvölds og því er gott að ákveða fyrir fram hvenær taka á frí og ekki hvika frá því. Skemmdir á sæði Vísbendingar eru um að mikill hiti sem myndast frá fartölvum þegar setið er með þær í kjöltunni geti valdið skemmdum á sæði. Þetta hef- ur verið prófað með sæði í tilrauna- glösum en í þeim tilraunum hefur komið í ljós að hitinn virðist draga úr hæfileika sæðisfruma til að hreyfa sig úr stað og auka líkur á skemmdum á erfðaefni. Báðir þessir þættir geta leitt til ófrjósemi. Gönguslys Það er alltaf að færast í aukana að fólk skoði símana sína á meðan það er á göngu. Jafnvel þegar gengið er innan um mikinn fólksfjölda og við umferðargötur. En meðan við erum niðursokkin í símann þá eigum við erfitt með að fylgjast með því sem er að gerast í raunheimum. Það er því ólíklegt að við gefum umferðarljós- um gaum eða lítum til beggja hliða áður en við förum yfir götu. Þessi hegðun eykur slysahættu til muna. Við getum ekki bara slasað okkur sjálf heldur einnig aðra. Eina leiðin til að draga úr slysahættu er að hafa símann einfaldlega í vasanum eða veskinu á meðan gengið er. Ofát Að borða yfir sig er auðvitað ekki bein afleiðing of mikillar símanotkunar, en rannsóknir hafa sýnt að fólk sem sér mikið af myndum af uppskriftum og girnilegum mat, er líklegra til að borða of mikið. Við vitum öll að internetið er allt morandi í matar- klámi og myndirnar vekja ósjálfrátt upp mikla löngun í mat. Sumir geta streist á móti, aðrir ekki. n Ofnotkun farsíma veldur heilsubresti n Einkenni ofnotkunar gætu komið á óvart n Ertu alltaf í símanum? n Upplifirðu líkamlega vanlíðan? Í eigin heimi Fólk er oft svo upptekið í símanum að það missir tengslin við umheiminn. Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta Umhverfisvænir pokar sem brotna niður í umhverf inu Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 • Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar • Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni • d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma þe irra loknum svo að þe ir samlagist nát túrunni á sama hát t og laufblað Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt fengið hjá okkur íblöndunarefni. Pokar í s töðluðum stærðum eða séráprentaðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.