Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 2
2 Fréttir Helgarblað 22.–26. maí 2015
Lífrænt
Valið besta
heilsuefnið
Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni,
Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
www.thebeautyshortlist.com
Best Health Supplement - Overall Wellbeing
Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt,
fegrar og frískar húðina
Bætir meltingu, gerir líkamann basískan,
kemur á réttu pH gildi
Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku,
einbeitingu og vellíðan
Spirulina, Chlorella & Barleygrass
Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru,
eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu.
Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks
upptaka og nýting á næringarefnum.
120 hylki.
n Flugstjóri WOW air ánægður með vinnubrögð áhafnar og aðstoð flugfarþega
S
veinn Akerlie, flugstjóri hjá
WOW Air, segir að frábær
vinnubrögð áhafnar sinn-
ar og góð aðstoð flugfarþega
hafi verið lykilatriði í því að
betur fór en á horfðist þegar eldri
maður fékk hjartaáfall í flugi WOW
air frá Alicante til Íslands.
Maðurinn veiktist þegar flugvélin
var komin norður fyrir Skotland
aðfaranótt sunnudags og var það
fyrir snarræði læknis og tveggja
hjúkrunar fræðinga um borð sem
hann var hnoðaður aftur til lífs. Það
tók um tuttugu mínútur.
„Getur verið sjokk“
„Áhöfnin var alveg hreint frábær
og það var líka ótrúlega fínt að hafa
þetta fagfólk um borð. Það er ástæð-
an fyrir því að það leystist svona
vel úr þessu,“ segir Sveinn. „Hinir
gestirnir voru mjög hjálpsamir líka.
Þetta getur verið sjokk fyrir nær-
stadda en það hjálpuðust allir að,
þannig að það gekk mjög hratt fyrir
sig að koma honum undir læknis-
hendur. Ég held að það hafi verið
lykil atriðið í þessu.“
Tóku stefnu á nýjan flugvöll
Að sögn Sveins eru verklagsreglur
mjög skýrar þegar atvik sem þessi
koma upp í háloftunum. Fyrst er reynt
að finna fagfólk um borð og svo vel
vildi til að hægt var að leita til læknis
og tveggja hjúkrunarfræðinga. „Við
vorum komnir með stefnu á nýjan
flugvöll á um tveimur til þremur mín-
útum. Við ákváðum strax að stafna til
Glasgow af því að það var styst þang-
að. Það munaði kannski ekki miklu á
Glasgow og Keflavík hvað tíma varð-
aði en þarna skipti hver mínúta máli.
Þar var allt mjög vel undirbúið og
sjúkrabílar biðu eftir okkur. Þetta gekk
allt mjög vel fyrir sig,“ segir hann. Um
hálftíma flug var til Glasgow en flug-
ið til Keflavíkur hefði tekið 40 til 50
mínútur.
Allir héldu ró sinni
Aðspurður segir hann mikilvægt að
allir í áhöfninni haldi ró sinni við
svona aðstæður. „Það hafa allir mjög
skýr verkefni. Verkefni okkar flug-
stjóranna var að koma öllum heilu
og höldnu á næsta flugvöll á sem
skemmstum tíma, á meðan verkefni
áhafnarinnar aftur í var að skiptast á
að aðstoða sjúklinginn, hjúkrunar-
fólkið og lækninn, ásamt upplýsinga-
gjöf fram í til okkar. Við fengum mjög
góðar upplýsingar um stöðu og líðan
allan tímann og gátum komið þeim
upplýsingum áfram á flugvöllinn í
Glasgow.“
Lent í svona atviki áður
Sveinn hefur áður lent í atviki sem
þessu. „Maður hefur lent í þessu
nokkrum sinnum áður en hjá öðrum
flugfélögum en WOW air,“ segir hann
og býr því að þeirri reynslu. Auk þess
eru viðbrögð við aðstæðum sem
þessum æfð í flughermi tvisvar sinn-
um á ári.
Sveinn hefur ekki fengið miklar
upplýsingar um manninn sem fékk
hjartaáfallið. „Það síðasta sem við
heyrðum var að líðanin væri stöðug.
Við sendum honum bara batakveðj-
ur og vonumst eftir því að fá góðar
fregnir af honum.“ n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
„Þetta getur verið
sjokk fyrir nær-
stadda en það hjálpuð-
ust allir að, þannig að það
gekk mjög hratt fyrir sig
að koma honum undir
læknishendur. Ég held að
það hafi verið lykilatriðið
í þessu.
Útgáfa DV
næstu daga
Útgáfu DV yfir hvítasunnuna
verður þannig háttað að í dag,
föstudag, kemur út helgarblað
og næsti útgáfudagur DV er
miðvikudagurinn 27. maí, en
þá kemur út vikublað.
Helgarblað DV kemur út í
næstu viku samkvæmt áætlun,
föstudaginn 29. maí.
Öflug fréttavakt verður
venju samkvæmt alla helgina
á vef okkar, dv.is.
B
jörgunarsveitin Dalvík,
Slökkvilið Dalvíkurbyggðar,
Slysavarnadeildin Dalvík og
Þula Café Bistró hafa tekið
höndum saman og ætla að safna fé
til styrktar Dalvíkingnum Guðmundi
Pálmasyni.
Hann greindist með afar
sjaldgæfan Wilsons-sjúkdóm
og hefur undanfarið verið á
sjúkrahúsi. Tekur nú við löng og
ströng endurhæfing.Haldin verður
styrktarsamkoma á miðvikudaginn í
Þulu Café Bistro í menningarhúsinu
Bergi á Dalvík miðvikudaginn 27.
maí. Aðgangseyrir er 2.000 krónur og
innifalin er fiskisúpa og kaffi. Einnig
verða glæsilegar tertur til sölu.
Dregið verður úr seldum miðum og
verða ýmis vegleg verðlaun í boði.
Júlíus Júlíusson, eigandi Þula
Café Bistró, segir viðbrögðin við
styrktarsamkomunni hafa verið
mjög góð. „Það eru mjög margir
búnir að hafa samband, sem verða
ekki heima þetta kvöld en vilja fá
reikningsnúmerið. Svona gríðarlega
mikill samtakamáttur gefur
mönnum tvímælalaust aukaorku til
að vinna í batanum,“ segir hann.
Reikningsnúmerið fyrir þá
sem vilja styrkja Júlíus er 1177-
05-410500, kt. 590582-0286.
n freyr@dv.is
Einn fárra með
Wilsons-sjúkdóminn
Safnað fyrir Dalvíkinginn Guðmund Pálmason
Guðmundur Pálmason Safnað verður
fé til styrktar Guðmundi á miðvikudags-
kvöld.
„Þarna skipti
hver mínúta máli“
Flugstjóri
Sveinn
Akerlie er afar
ánægður með
frammistöðu
áhafnarinnar.
Wow Air Betur fór en
á horfðist í fluginu frá
Alicante.
Í fangelsi fyrir
vörslu á barna-
níðsefni
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
dæmt Lína Hannes Sigurðsson, 67
ára, í 15 mánaða fangelsi, þar af
12 bundna skilorði, fyrir vörslu á
grófu barnaníðsefni en myndefnið
var bæði íslenskt og erlent.
Við húsleit á heimili og vinnu-
stað Lína fundust samtals 34.837
ljósmyndir og 585 hreyfimynd-
ir sem sýndu börn eða fullorðna í
hlutverki barna á kynferðislega og
klámfenginn hátt.
Líni Hannes neitaði sök í mál-
inu og sagði meðal annars að
hann hefði í raun verið að safna
barnaklámi til að koma því til lög-
reglu.
Við húsleitina lagði lögreglan
hald á tölvur ásamt fjölda harðra
diska og minniskubba sem
innihéldu barnaklám. Það hafi
bent til þess að Líni hafi safnað
barnaklámi í fjölmörg ár.