Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 4
4 Fréttir Helgarblað 22.–26. maí 2015 GÓLFMOTTUR Við leigjum út gólfmottur í anddyri. Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu ræstingakostnað. Við sækjum og sendum. Fáðu verðtilboð! 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is Breytingar hjá Heilsugæslunni Hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins eru í undirbúningi breytingar á rekstri heilsugæslu- stöðvanna sem miða að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og bæta vinnuum- hverfi starfsmanna. Áætlað er að það muni taka tvö ár að hrinda þessum breyting- um í framkvæmd á þeim fimmt- án heilsugæslustöðvum sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis- ins rekur í dag í Reykjavík, á Sel- tjarnarnesi, í Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Byrjað verður á breytingun- um næsta haust og á þeim að vera lokið haustið 2017. Stjórn- un og skipulagi stöðvanna verð- ur breytt í áföngum á þremur stöðvum í einu og verða fyrstu stöðvarnar Heilsugæslan Graf- arvogi, Heilsugæslan Glæsibæ og Heilsugæslan Mjódd. Enginn missir vinnu vegna breytinganna, að því er sagði í tilkynningu. Snjókoma í höfuðborginni Það var ekki beint sumarveður sem tók á móti íbúum á höfuð- borgarsvæðinu á fimmtudags- morgun. Þar gekk á með éljum rétt fyrir klukkan sjö um morgun- inn og byrjaði svo að snjóa. Vetrarveðrið var þó skammlíft en fljótlega breyttist snjókoman í slyddu sem hvarf svo þegar birti til í morgunsárið. Búast má þó við hlýnandi veðri á landinu á næstu dögum. Fjárfestarnir Heiðar Már Guðjónsson og Sigurður Arngrímsson deila vegna „Ursus“ F járfestingafélag Heiðars Más Guðjónssonar, Ursus ehf., hefur stefnt Ursus Maritim- us Investors ehf., sem er í eigu fjárfestisins Sigurðar Arngrímssonar, og krafist þess að nafni félagsins verði breytt. Ástæð- an er sú að Heiðari þykir nöfnin of lík sem geti leitt til þess að fé- lögunum sé ruglað saman. Fram- kvæmdastjóri og eigandi Ursus Maritimus eru ósammála og vilja ekki breyta nafninu. Málið verður útkljáð fyrir dómstólum og í gær var fyrirtaka í því í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Ursus Maritimus þýðir ísbjörn á latínu, Ursus þýðir björn og það er ansi magnað ef Heiðar getur útilok- að öll nöfn sem tengjast björnum. Það er því best að láta dómstóla skera úr um þetta,“ segir Bjarni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Ursus Maritimus Investors. Tíu ára gamalt félag Einkahlutafélag Heiðars Más var stofnað í desember 2005 undir heitinu Ursus capital ehf. Fjórum árum síðar var nafni þess breytt í Ursus. Félagið hefur verið nokkuð til umfjöllunar undanfarin miss- eri en það á meðal annars hluti í HS veitum, í gegnum dótturfélög, og Fjarskiptum hf., móðurfélagi Vodafone á Íslandi. Ursus er einnig kröfuhafi í slitabú Glitnis og lagði fram beiðni um gjaldþrotaskipti á hendur búinu í desember í fyrra. Eins og DV greindi frá í febrúar síð- astliðnum hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur beiðni 119 erlendra kröfuhafa Glitnis, að langstærst- um hluta vogunarsjóðir, um að fá meðalgöngu í máli Ursusar. Fengu þeir því ekki að ganga inn í mál Heiðars og tryggja að því yrði vís- að frá dómi. „Félagið mitt er með þetta nafn skráð og á réttinn að því. Það er tíu ára gamalt og við viljum ekki að það sé einhver annar að nota þetta nafn,“ segir Heiðar í samtali við DV. „Ég er mjög hrifinn af ísbjörn- um og hef ferðast mikið á Græn- landi og þykir þeir mjög merkileg dýr. Þess vegna er ég með fyrirtæk- ið skráð bæði sem Ursus og Ursus Investors og þarna kemur ein- hver aðili sem er að reyna að vera fyndinn en mér finnst nöfnin vera allt of lík og að fólk geti ruglað þeim saman.“ Heiðar segir aðspurður að engin tengsl séu á milli hans og Sigurðar, hvorki viðskiptaleg né önnur, og bætir við að hann þekki „manninn ekki neitt“. „Þeir voru beðnir um að breyta nafninu fyrir um hálfu ári síðan. Þeir vildu ekki verða við því og vonandi náum við að útkljá þetta fyrir dómshlé.“ Búsettur í London Félag Sigurðar var stofnað í mars 2013 undir nafninu AB 343 ehf. Því var breytt í Ursus Maritimus í apr- íl 2013 og í Ursus Maritimus Inve- stors í júlí í fyrra. Sigurður er bú- settur í London þar sem hann rekur ráðgjafarfyrirtækið Arn- grimsson Advisors. Hann starfaði áður hjá bandaríska fjárfestinga- bankanum Morgan Stanley og hefur einnig haldið utan um er- lendar eignir nokkurra íslenskra lífeyrissjóða. Í desember 2013 kom félag hans með 290 milljónir króna til landsins í gegnum fjár- festingarleið Seðlabanka Íslands. Ursus Maritimus á fjórðungshlut í Skugga 3 ehf. sem stendur fyrir uppbyggingu íbúða í Skuggahverf- inu í Reykjavík. „Við stofnuðum þarna félag með þessu nafni og síðan einhverj- um tíma seinna óskaði Heiðar eft- ir því að við legðum það niður. Við vildum ekki fallast á þá kröfu enda höfum við ekki orðið varir við að fólk hafi hingað til verið að rugla okkur saman við félag hans,“ segir Bjarni. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Ísbjarnardeila fjárfesta endar fyrir dómstólum „Ég er mjög hrifinn af ísbjörnum og hef ferðast mikið á Græn- landi og þykir þeir mjög merkileg dýr. Heiðar Már Guðjónsson Fjárfestar Heiðar Már Guðjónsson (t.v.) og Sigurður Arn- grímsson bítast um nafnið Urus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.