Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 6
Helgarblað 22.–26. maí 20156 Fréttir
Strandgötu 24 - 220 Hafnarfjörður - Sími 565 4100 - www.nyform.iS
erum flutt að
strandgötu 24
hafnarfirði
Opið laugar-dag frá11–15
Tveggja milljarða
afskriftir hjá BN
Byggingafélag námsmanna hefur samið við íbúðalánasjóð og LBI um lækkun skulda
G
amli Landsbankinn (LBI hf.)
og Íbúðalánasjóður lækkuðu
í fyrra skuldir Byggingafélags
námsmanna (BN) um sam-
tals tæpa tvo milljarða króna
sem. Íbúðalánasjóður þurfti að af-
skrifa um 200 milljónir króna en LBI
um 1.600 milljónir. LBI hafði áður
lækkað skuldir BN, sem á og leigir
út 469 námsmannaíbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu, um 1,7 milljarða
króna. Lánardrottnarnir tveir hafa
því lækkað skuldir félagsins, sem það
safnaði á árunum fyrir hrun, um sam-
tals 3,7 milljarða en eiga enn kröfur á
það upp á rúma níu milljarða.
Fjögurra milljarða tap
Eins og DV greindi frá í febrúar síð-
astliðnum þá átti stjórn BN í viðræð-
um við lánardrottnana um lækkun á
skuldum sem rekstur félagsins stóð
ekki undir. Þær námu 10,9 milljörðum
í árslok 2013 en eins og fyrr segir rétt
rúmum níu milljörðum eftir að síð-
asta skuldalækkunin gekk í gegn.
„Við vorum í þeirri stöðu að það
var búið að setja þessi frágangsmál
við bankann á bið til ársins 2018. Það
var gert í kjölfar hrunsins og það er
búið að taka þennan tíma að fá end-
anlega niðurstöðu í málið og nú er
það komið í þann farveg að við stönd-
um vel undir okkar skuldbinding-
um og getum bæði haldið áfram nú-
verandi rekstri og fjölgað úrræðum
fyrir námsmenn á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Böðvar Jónsson,
framkvæmdastjóri BN.
Samanlagt tap BN á árunum 2008
til 2013 nam rúmum fjórum millj-
örðum króna. Eigið fé þess er í dag
enn neikvætt en í árslok 2014 voru
skuldir þess 652 milljónum hærri en
eignirnar. Það hefur einungis tvisvar
sinnum skilað hagnaði frá árinu 2008,
árin 2012 og 2014, en í bæði skiptin
má að mestu rekja jákvæða afkomu
til niðurfellinga skulda. Í nýjasta árs-
reikningi félagsins segir að ekki sé
óvarlegt að ætla að eigið fé þess geti
orðið jákvætt á ný eftir tvö til þrjú ár.
„Við erum að vísa til þess að sam-
kvæmt spám, bæði þjóðhagsspám og
öðru, er gert ráð fyrir því að hækkun
fasteignaverðs verði umtalsvert meiri
en hækkun neysluverðsvísitölunnar.
Þetta eru stóru liðirnir okkar. Eigna-
safn BN sveiflast eftir fasteignamati en
lánasafnið eftir neysluverðsvísitölu.
Þess vegna erum við að benda á að ef
spár okkar ganga eftir má gera ráð fyrir
að eigið fé félagsins verði jákvætt eftir
tvö til þrjú ár,“ segir Böðvar. Félagið
vinnur að því í samvinnu við Reykja-
víkurborg að fara í frekari bygginga-
framkvæmdir á næstu fimm árum
og auka þannig framboð íbúða fyrir
námsmenn á höfuðborgarsvæðinu.
Seldi hlut sinn í Fontana
BN er sjálfseignarstofnun og því ekki
rekið með hagnaðarsjónarmiðum.
Meginstarfsemi félagsins er fólgin í
byggingu og rekstri íbúða fyrir náms-
menn en það á fasteignir á níu stöð-
um í Reykjavík og fjórar blokkir á Völl-
unum í Hafnarfirði. Eignirnar voru
metnar á 8,3 milljarða króna í árslok
2014 en félagið stefnir að byggingu
100 nýrra íbúða á næstu fimm árum.
Í ársreikningnum kemur einnig
fram að BN hefur selt fjórtán prósenta
hlut sinn í baðstaðnum Laugarvatni
Fontana. DV vakti í febrúar athygli á
því að stjórnendum félagsins hafði
þá ekki tekist að selja eignarhlutinn á
þeim þremur árum sem þá voru liðin
síðan formlegt söluferli hófst. Vorið
2012 átti BN 23 prósenta hlut í bað-
staðnum en eignin þynntist niður í
rúm fjórtán prósent eftir að bygginga-
félagið ákvað að taka ekki þátt í tveim-
ur hlutafjáraukningum Fontana.
„Félagið er meðal annars að selja
þennan hlut til þess að nýta fjár-
munina til uppbyggingar. Við vorum
einnig að selja fasteignina Skipholt 27
en það er elsta eign félagsins. Það var
líka gert í þeim tilgangi að fjármagna
eigið fé í væntanlegum nýbyggingum
félagsins.“ n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is „Þess vegna erum við að
benda á að ef spár okkar
ganga eftir má gera ráð fyrir að
eigið fé félagsins verði jákvætt
eftir tvö til þrjú ár
BN Byggingafélag
námsmanna á fasteignir
á níu stöðum í Reykjavík
og fjórar blokkir á Völl-
unum í Hafnarfirði.
MyNd SiGtryGGur Ari
Framkvæmdastjóri BN Böðvar Jónsson
segir útlit fyrir að eigið fé félagsins verði
aftur jákvætt eftir 2-3 ár.
Vatnstjón
vel á þriðja
milljarð
Vatnstjón á heimilum og í fyrir-
tækjum nam vel á þriðja milljarð
króna árið 2014 og varð lang-
mestur hluti tjónsins á heimil-
um. Kostnaður við hvert bætt tjón
nemur að meðaltali tæplega 300
þúsund krónum.
Þetta kemur fram í tölum
tryggingarfélaganna sem voru
teknar saman af óháðum aðila
fyrir samstarfshóp um varnir gegn
vatnstjóni.
Heildarfjöldi tilvika er 7.387 og
í 1.442 þeirra reyndist tjónið ekki
bótaskylt. Í 417 tilvikum nam tjón-
ið einni milljón króna eða meira.
Heimilin bera talsverðan hluta
kostnaðarins sjálf. Tryggingarfé-
lögin bættu einstaklingum tjón
sem nemur 1,7 milljörðum króna
en fólk situr sjálft uppi með nær
300 milljónir í eigin áhættu.
Karlmaður féll
fjóra metra
Hálfsjötugur karlmaður féll fjóra
metra úr stiga í Reykjanesbæ í
vikunni, þegar listi á húsinu, sem
hann studdi sig við, brotnaði.
Maðurinn lenti á stétt og fann
til eymsla í baki. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja til aðhlynn-
ingar að því er fram kemur í til-
kynningu frá lögreglu.
Þá meiddist kona á öxl þegar
hún var í leikfimi með fleiri kon-
um. Talið var að hún hefði farið
úr axlarlið og var einnig flutt á
HSS með sjúkrabifreið.
Ætla að afgreiða
undanþágubeiðnir
Segjast hafa velferð dýra að leiðarljósi
D
ýralæknar hafa alla
tíð haft velferð dýra
að leiðarljósi og
vinna öðrum fremur
að því að tryggja góðan
aðbúnað og heilbrigði dýra,
bæði í verkfalli og utan þess,“
segir í fréttatilkynningu frá BHM og
Dýralæknafélagi Íslands en ástæðan er
grafalvarleg staða hjá framleiðendum
svína- og alifuglakjöts. Segja þeir
að ríkið virðist ekki ætla að koma að
samningaborðinu með lausnir fyrr
en samið verði á almennum markaði.
Fyrir vikið þyngist róðurinn hjá þeim
„sem aðgerðaleysi stjórnvalda bitnar
á“, segja dýralæknar. Þeir
hafa því ákveðið að afgreiða
undanþágubeiðnir, en líkt og
greint hefur verið frá er mikil
hætta á því að fyrirtæki stefni
í gjaldþrot takist ekki að koma
vörum í búðir og klára slátrun.
„Í ljósi þessa hefur Dýralæknafélag
Íslands ákveðið að taka tillit til þess
við afgreiðslu undanþágubeiðna að
hætta sé á að framleiðendur svína- og
alifuglakjöts muni eiga í erfiðleikum
með að afla aðfanga og fóðurs fyrir
búfénað sinn.“ Dýralæknafélagið
harmar afstöðu stjórnvalda til
starfsmanna sinna. n atli@dv.is