Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 19
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Fréttir 19
Komust í bobba vegna baKKusar
n Stjórnmálamenn hafa þurft að svara fyrir uppákomur og axarsköft sem tengjast áfengisneyslu n Þetta lærðu þeir af mistökum sínum
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þáverandi
þingmaður Samfylkingarinnar, var gripinn
við að stíga þvoglumæltur í ræðustól
Alþingis kvöld eitt í ágúst 2009. Til um-
ræðu var Icesave-málið. Grunur kviknaði
strax um að Sigmundur Ernir hefði verið
drukkinn þegar honum vafðist tunga um
tönn við að segja að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði snúist á „einu augabragði“ sem
kom út sem „aujjabragði.“ DV rakti slóð
þingmannsins upp í Grafarholt þar sem
hann hafði tekið þátt í golfmóti MP banka
fyrr um daginn. Eftir að hafa þvertekið
fyrir að hafa verið drukkinn viðurkenndi
Sigmundur síðar að hafa fengið sér léttvín
með kvöldverði eftir mótið og farið síðan í
ræðustól. Viðurkenndi hann mistök sín og
baðst afsökunar.
Golf, vín og Icesave-umræður
Menn mættu
gera meira af
því að biðjast
afsökunar
Sigmundur Ernir segir
alla gera mistök
„Ég lærði fyrst og fremst af þessu að
rugla ekki saman atvinnu og skemmt-
un þar sem vín er haft um hönd,“ segir
Sigmundur Ernir um þann lærdóm sem
hann dró af sínu glappaskoti í ágúst
2009, sem vakti mikla athygli.
„Ég var á þessum tíma óreyndur
þingmaður, hafði setið fáa mánuði á
þingi og vissi hreinlega ekki að ég gæti
seinkað boðaðri ræðu minni. Mætti því
samviskusamlega niður í þing eftir að
hafa fengið mér rauðvínsglös,“ segir
Sigmundur sem í dag er dagskrár-
og ritstjóri sjónvarpsstöðvarinnar
Hringbraut.
Hann segir að hann hefði betur vit-
að að hann hefði getað seinkað ræðu
sinni í umræðum um Icesave-málið til
morguns.
„Lífið er fullt af svona mistökum hjá
hverjum og einum breyskum manni.
Ég baðst afsökunar eins og menn eiga
að gera þegar þeim verður á. Ég held
reyndar að menn megi alveg gera
meira af því að biðjast afsökunar ef
þeir hafa gert mistök í lífinu. Við gerum
öll mistök og við eigum þá að biðjast
afsökunar á því.“
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.
Hægri grænn
stútur í Hafnarfirði
Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri
grænna, var tekinn við ölvunarakstur í Hafnar-
firði síðla kvölds 13. apríl 2012. Guðmundur
sendi frá sér yfirlýsingu daginn eftir þar sem
hann viðurkenndi að hafa verið í matarboði og
drukkið hvítvín með matnum. Hann var stöðv-
aður af lögreglumönnum við umferðareftirlit
í Hafnarfirði og látinn blása í áfengismæli þar
sem upp komst um brot hans. Var hann sviptur
ökuréttindum. Sagði Guðmundur atvikið hafa
verið góða áminningu um að „maður á aldrei að
snerta bifreið undir áhrifum áfengis“.
Myndband af því þegar framsóknar- og
flugvallavinkonurnar Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir og Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir mættu óboðnar
ásamt þingkonunni Vigdísi Hauksdóttur
í teiti hagfræði- og stjórnmálafræði-
nema í september í fyrra vakti mikla
athygli. Eftir að DV birti myndbandið,
þar sem þær gerðu meðal annars grín
að ummælum sínum um múslima og
mosku, vöknuðu grunsemdir um að
Guðfinna og Sveinbjörg hefðu verið í
glasi. Guðfinna þurfti að svara fyrir þær
sögur í útvarpsviðtali við Harmageddon
þar sem hún lét hafa eftir sér: „Við vorum
ekki blindfullar“ og kvaðst sjálf hafa ver-
ið búin að drekka tvö hvítvínsglös. Sagði
hún Sveinbjörgu hafa verið edrú.
Ásmundur Einar Daðason komst í
fréttirnar í vikunni eftir að DV birti
viðtal við þingmanninn þar sem hann
bar af sér kjaftasögur um að hann hefði
verið ofurölvi um borð í vél WOW Air til
Washington þann 10. maí síðastliðinn.
Ásmundur Einar var þar í ferð á vegum
utanríkismálanefndar Alþingis. Ásmundur
Einar lenti í því að gubba ansi hraustlega
í vélinni en vísaði því á bug að hafa verið
ölvaður. Kvaðst Ásmundur hafa verið með
magakveisu sem enn sé að hrjá hann og
hann hafi ælt í vélinni, í Washington og
meira að segja í Pentagon-byggingunni.
Síðar fullyrti Nútíminn að Ásmundur
hefði í raun verið ölvaður og drukkið ofan í
svefntöflur með ofangreindum afleiðing-
um. Vitni stigu einnig fram og héldu því
fram fullum fetum að þingmaðurinn hefði
verið áberandi ölvaður. Enn eru ekki öll
kurl komin til grafar í þessu máli.
Framsóknarkonur og hvítvínið
Æluferð til Washington
„Hvað ef ég hefði
drepið einhvern?“
Guðmundur Franklín
segist hafa verið heppinn
„Þetta var heimskulegt uppátæki og
mér blæddi fyrir,“ segir Guðmundur
Franklín Jónsson um sín mistök að
keyra undir áhrifum áfengis árið 2012,
þá formaður Hægri grænna. DV hafði
samband við Guðmund, sem nú er
búsettur í Danmörku þar sem hann
rekur Hotel og Café Klippen í Borgund-
arhólmi og spurði hann út í reynsluna
og hvaða lærdóm hann hafi dregið af
atvikinu.
„Ég var bara að keyra fullur, það var
ekkert öðruvísi en það og var nappaður
af löggunni. Menn sem fara undir stýri
þegar þeir eru búnir að fá sér halda að
þeir séu svo klárir að þeir sleppi. En það
er ekki þannig. Þetta er bara karma.
Þetta er eins og lögmál Murphy‘s, það
sem getur klikkað – mun klikka. Þótt
menn séu aldrei stoppaðir edrú þá er
það bara þannig að loksins þegar þú
keyrir fullur – af því að þú heldur að þú
komist upp með það af því að þú ert
aldrei stoppaður – þá ertu auðvitað
tekinn. Þetta er bara lífið að kenna þér
lexíu. Þú breytir ekki því sem orðið er
og menn verða að gangast við því og
hlutunum eins og þeir eru.“
Og Guðmundur kveðst hafa lært
af mistökunum sem áttu rætur sínar
að rekja til þess að hann var staddur
í matarboði en tímdi ekki að taka
leigubíl til Hafnarfjarðar þar sem hann
bjó. Hann telur að hann hafi í raun
verið heppinn.
„Mér dettur ekki í hug að keyra
fullur aftur, svo mikið er víst. Ég tók
út mína refsingu, ég missti prófið.
Þetta var heimskulegt uppátæki og
mér blæddi fyrir. Ég var bara heppinn.
Ég hugsa til baka: Djöfulsins fífl var
ég, hvað ef ég hefði keyrt á einhvern?
Hvað ef ég hefði drepið einhvern?
Hvað þá? Þá er lífið bara ónýtt. Menn
verða að fara varlega.“
Sigmundur Ernir
Hafði fengið sér
vín með kvöldverði
að loknu golfmóti
MP banka og
stigið síðan í pontu á
Alþingi í umræðum
um Icesave. Neitaði
fyrst, játaði svo.
Mynd SiGtryGGur Ari
Guðfinna og
Sveinbjörg Mættu
í teiti hagfræði- og
stjórnmálafræði-
nema í fyrra og
vöktu athygli
með uppistandi
sínu. Guðfinna
kvaðst hafa fengið
sér kannski tvö
hvítvínsglös en
sagði að Sveinbjörg
hefði verið edrú.
Mynd SiGtryGGur Ari