Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 20
20 Fréttir Helgarblað 22.–26. maí 2015 G runnskólinn á Hvann- eyri verður lagður nið- ur og húsnæði hans selt nái tillögur starfshóps um rekstur og skipulag fræðslumála í Borgarbyggð fram að ganga. Skýrsla starfshópsins var birt í gær og hafa tillögur hópsins um niðurskurðar- og hagræðingar- aðgerðir þegar verið gagnrýndar harðlega af starfsfólki og íbúum á svæði Grunnskóla Borgarfjarðar (GBF). Segja þeir tillögurnar þvert á allt samráð við íbúa og gefin lof- orð og að ekkert tillit hafi verið tek- ið til sjónarmiða íbúa. Formaður starfshópsins segist skilja óánægju fólks en segir að aðgerðirnar séu nauðsynlegar til að rétta af rekstur sveitarfélagsins. Forsaga málsins er að sveitar- félagið Borgarbyggð náði ekki að uppfylla jafnvægisreglu sveitar- stjórnarlaga fyrir árin 2013–2015. Tap af rekstri samstæðu nam 104 milljónum í fyrra sem þýðir að ef fram heldur sem horfir nær sveitarfélagið ekki að uppfylla skil- yrðin fyrir næsta tímabil. Fyrir ligg- ur að hagræða þarf í rekstri og fjár- málum Borgarbyggðar þar sem fyrri aðgerðir höfðu ekki skilað til- ætluðum árangri. Var því samþykkt af sveitarstjórn þann 13. mars síð- astliðinn að stofna tvo starfshópa. Annar tæki út rekstur og skipulag fræðslumála en hinn eignir sveitar- félagsins og skiluðu tillögum – sem nú eru komnar fram. Enn að ná áttum Á fundum íbúa á starfssvæði GBF hefur komið fram mikil samstaða og eining um að halda þeim þrem- ur starfsstöðvum sem standa að Grunnskóla Borgarfjarðar. Íbú- ar hafa verið uggandi yfir yfirvof- andi niðurskurði enda náðist með naumindum að verja Kleppjárns- reykjaskóla fyrir fimm árum þegar til stóð að leggja hann niður. Varð þá úr að GBF var stofnaður með samein- ingu skólanna á Kleppjárnsreykjum, Hvanneyri og Varmalandi. Að sögn starfsmanns sem DV ræddi við eru starfsmenn starfsstöðvanna nýbyrj- aðir að komast í gegnum þá samein- ingu og stilla saman strengi sína á ný. „Þá kemur þessi bommerta.“ Og tillagan nú gengur með- al annars út á það að leggja niður starfsstöðina á Hvanneyri. Með því yrðu nemendur í 1. og 2. bekk sett- ir í leikskólann á Hvanneyri en restin flutt í grunnskólann í Borgarnesi. Þeir sem til þekkja segja að skólinn í Borgarnesi sé þegar of lítill og þarfn- ist mikils viðhalds. „Hann er í raun óboðlegur fyrir börnin sem myndu bætast við,“ segir kennari sem DV ræddi við. Finnst framlag íbúa hundsað Í aðdraganda niðurskurðartillagna starfshópsins voru íbúasamtök á Hvanneyri endurvakin og unnu þau stóra og viðamikla skýrslu um skólahald á Hvanneyri og samfé- lagsleg áhrif þess. Er mikil óánægja með að starfshópurinn virðist ekk- ert tillit taka til ábendinga og vinnu íbúa. Yfir 500 manns í Borgarbyggð höfðu þá einnig skrifað undir áskor- un um að starfsstöðvunum þremur yrði hlíft. Til að setja fjöldann í hlut- fallslegt samhengi þá samsvarar það því að um 24 þúsund manns í Reykja- vík hefðu skrifað undir slíka áskorun þar. „Það hefur ekkert verið tekið til- lit til þess í þessari ákvörðun,“ segir kennarinn sem segir óánægjuna og reiðina mikla. „Starfsfólkið er bálreitt yfir þessu virðingarleysi.“ Bent er á að málið sé litið sér- staklega alvarlegum augum þar sem verulega hafi birt til í atvinnuupp- byggingu á starfssvæði GBF undan- farið. Loksins segja sumir. Er bent á að 15 fjölskyldur hafi það sem af er ári flutt á starfssvæði GBF. „Og stór hluti velur að búa á starfssvæði GBF fremur en í Borgarnesi. Þau eru að velja þennan sveitaskóla.“ Máli sínu til stuðnings benda andstæðingar tillögunnar á að Hvanneyrardeild GBF hafi komið sérstaklega vel út úr könnunum, varðandi bæði námsár- angur og líðan nemenda. Er þegar búið að boða til íbúa- fundar strax á mánudagskvöld til að bregðast við því sem margir vilja meina að sé aðför að skólastarfinu. Undir þetta höfðu rektor og yf- irstjórn Landbúnaðarháskóla Ís- lands tekið í lok mars þar sem lýst var áhyggjum vegna fyrirhugaðs niður- skurðar á rekstri grunnskólans. Í yf- irlýsingu sagði meðal annars: „Að- för að grunnskólahaldi á Hvanneyri yrði um leið aðför að Landbúnað- arháskólanum og öðrum stofnunum á staðnum og því fólki sem lagt hef- ur allt sitt í eignakaup í samfélagi sem það hefur trú á til framtíðar.“ Skilur óánægju íbúa „Ég skil það mjög vel,“ segir Guðveig Eyglóardóttir, formaður starfshóps- ins og formaður byggðarráðs Borgar- byggðar, aðspurð um hvort hún skilji óánægju íbúa og starfsfólks. „Í svona litlu samfélagi eins og Hvanneyri er þetta skiljanlegt. Skólinn er hjartað í staðnum og hef- ur mikla þýðingu fyrir samfélagið. En það blasti við okkur eftir kosn- ingar, þegar ný sveitarstjórn tók við, að í kjölfar nýrra kjarasamninga og fleira hafa rekstrargjöld sveitarfélaga hækkað mjög mikið og þetta þekkist úti um allt land. Ástæðan fyrir því að við fórum aðeins dýpra í þessa hag- ræðingarvinnu en aðrir er að sveitar- félagið stenst ekki þessa þriggja ára jafnvægisreglu. Við höfum fengið bréf frá eftirlitsnefnd sveitarfélaga þar sem við erum beðin um að gera grein fyrir því hvernig við ætlum að standa undir rekstrinum.“ Ekki annar Reykjanesbær Guðveig bendir á að fræðslumál séu stærsti útgjaldaliður Borgarbyggð- ar þar sem 60 prósent tekna sveitar- félagsins fari í málaflokkinn. „Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að brúa 100–150 milljóna króna gat til að rekstur sveitarfélagsins standi undir sér og við lendum ekki í sömu stöðu og Reykjanesbær.“ Ná þurfi tökum á rekstri sveitar- félagsins, lögum samkvæmt. „Það er ekki þannig að það sé einhver sér- stakur pólitískur vilji fyrir því að loka stofnunum eða skerða þjónustu. En auðvitað skil ég fólk. Það er mjög eðlilegt ef verið er að breyta einhverri þjónustu og skerða hana að þá er ónægja með það. Og við erum ekki í þessari vinnu með glöðu geði, þetta er bara verkefni sem við verðum að takast á við. Þetta er 3.500 manna sveitarfélag og við þurfum að ná tök- um á rekstrinum til að geta haldið uppi þeirri þjónustu sem okkur ber að sinna.“ Slæm staða blasti ekki við Guðveig segir, varðandi ásakanir um að kosningaloforð um að skólunum yrði hlíft hafi verið svikin, að staða sveitarfélagsins og tap hafi ekki blas- að við þeim fyrirfram. „Þannig að við erum að reyna að aðlaga okkur að því.“ Aðspurð hvort fyrir liggi hvort ein- hverjir missi vinnuna segir Guðveig að lagt sé upp með að geta boðið flest öllum, sem breytingarnar ná til, vinnu á öðrum starfsstöðvum. Skólinn í stakk búinn að taka við börnum Um tillögurnar sjálfar bendir Guð- veig á að það taki 10 mínútur að keyra frá Hvanneyri til Borgarness þar sem skólabíll færi á milli. Hún vísar þeirri gagnrýni á bug að grunnskólinn í Borgarnesi sé ekki í stakk búinn eða í ástandi til að taka við þeim börnum sem þangað yrðu flutt. Dæmi séu um að 350 börn hafi verið í grunnskólan- um en þau séu nú um 300. Eftir 2–3 ár verði þau um 330 þegar mest lætur. Ein tillagan gangi út á að 10. bekkur grunnskólans fari inn í menntaskóla Borgarfjarðar sem myndi rýma enn til í grunnskólanum. „Sveitarfélögin hafa gríðarlegt magn af fermetrum til að viðhalda og þegar reksturinn er ekki betri en þetta þá verður viðhaldið nú ekki gott. En húsnæðið á Hvanneyri krefst líka viðhalds og vonumst við til að með því að selja það húsnæði séum við að losa okkur við eina af þess- um fjölmörgu eignum sem kalla á viðhald. Það hefur einnig verið að störfum vinnuhópur um að gera breytingar og stækka grunnskólann, en hann er alveg fullkomlega í stakk búinn til að taka á móti öllum þess- um nemendum.“ n „Starfsfólkið er bálreitt yfir þessu“ n Grunnskólinn á Hvanneyri verði lagður niður vegna sparnaðar n Vilja ekki enda eins og Reykjanesbær Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að brúa 100–150 milljóna króna gat til að rekstur sveitarfélagsins standi undir sér og við lendum ekki í sömu stöðu og Reykjanesbær Aðför að skólastarfi Starfshópur á vegum Borg- arbyggðar hefur lagt til að Grunnskólinn á Hvanneyri verði lagður niður og nemendur færðir yfir í Grunnskólann í Borgarnesi. Niðurskurðar- áformin hafa verið kölluð aðför að skólastarfi á Hvanneyri. Mynd GooGlE MApS Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Nú er tækifærið! Stutt sumarnámskeið 26. maí - 8. júní E F L I R a lm a nn a t en g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö nn un Skráning hafin í síma 5813730 JAZZBALLETT FYRIR 6-7 ÁRA, 8-9 ÁRA OG 10-12 ÁRA JAZZ- OG NÚTÍMADANS FYRIR 13 – 15 ÁRA Nánari upplýsingar á www.jsb.is Viltu gerast vinur JSB? Danslistarskóli JSB er á facebook Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar fyrir 3-5 ára dans- og leikjanámskeið Fullbókað er á Nýr hópur á mið og fös kl 17:30 Hringdu núna til að bóka pláss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.