Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 21
Fréttir 21Helgarblað 22.–26. maí 2015 S igurður Ingi Jóhannsson sjáv­ arútvegsráðherra segir að markaðsleið við úthlutun kvóta hafi verið athuguð og er mótfallinn henni. Frumvarp hans um úthlutun mak­ rílkvóta til sex ára er enn til afgreiðslu á þingi en varla er við því að búast að það verði afgreitt óbreytt. Á hinn bóginn er að sjá sem vaxandi vilji sé til þess að setja makrílkvótann – eða hluta hans – á opinbert uppboð og kanna hvort ríkissjóður geti ekki með þeim hætti innheimt veiðigjald sem útvegsmenn ákveði sjálfir með því verði sem þeir væru reiðubúnir til að greiða fyrir kvótann. Í sérstökum umræðum á Alþingi síðastliðinn fimmtudag um mark­ aðslausnir í sjávarútvegi var tekist á um þá aðferð að bjóða aflakvóta upp á markaði. Guðmundur Steingríms­ son, Bjartri framtíð, sagði að ef það yrði gert þyrfti ekki lengur að deila um eignarhald almennings á auðlindinni og stjórnmálin þyrftu ekki lengur að hafa afskipti af ákvörðun veiðigjalds; útvegsmenn myndu ákveða það sjálf­ ir á markaði. Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, var málshefjandi og sagði að nú hefðu um 34 þúsund manns skrifað und­ ir ákall til forseta Íslands um að vísa málinu í þjóðaratkvæði, verði makr­ ílfrumvarp Sigurðar Inga óbreytt að lögum. Makríllinn hefði skilað þjóð­ inni og sjávarútveginum 24 milljarða króna tekjum í fyrra. Nú væri ætlun­ in að leggja 10 króna auka veiðigjald á hvert kíló en enginn vissi hvernig ráð­ herra hefði fundið það gjald út. Best væri að finna verðið á uppboði á opn­ um markaði. Útgerðin vissi betur en stjórnsýslan hve hátt gjald væri hægt að greiða til þjóðarinnar hverju sinni. „Útgerðin borgar þá það sem hún get­ ur en ekki meira.“ Uppboð: Flókin staða í Færeyjum DV greindi frá því í vikunni hvern­ ig Færeyingar hefðu árið 2011 fengið 1,4 milljarða króna í landssjóð með því að bjóða upp 20 þúsund tonn af 150 þúsund tonna heildarkvóta Fær­ eyinga það árið. Hæsta verð var um eða yfir 90 krónur íslenskar fyrir kíló af makríl, en uppboðið var haldið í þremur atrennum af óháðum aðila. Jens Helgi Toftum í færeyska sjáv­ arútvegsráðuneytinu segir að engin áform séu um að viðhafa uppboð á makrílkvóta þetta árið. Veiðiheimild­ ir þessa árs eru tæp 133 þúsund tonn. „Núverandi samsteypustjórn hefur hvorki áform né hefur hún ákveðið neitt um að selja makrílkvóta á opin­ beru uppboði. Þetta er hluti af póli­ tískri umræðu og það eru fleiri innan stjórnmálanna sem styðja opinbert uppboð til að útdeila kvóta, sérstak­ lega varðandi makríl. Sem stend­ ur lítur þó ekki út fyrir að pólitískur meirihluti sé fyrir slíku,“ segir Jens Helgi í svari til DV. Lífleg umræða Þorkell Helgason, stærðfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, setti fram hugmyndir um uppboð á kvóta þegar á níunda áratug síðustu ald­ ar. Hann flutti um þetta erindi í Fé­ lagi viðskipta­ og hagfræðinga síð­ astliðinn fimmtudag. Þess má geta að Þorkell og Jón Steinsson, hag­ fræðingar, skiluðu áliti um þetta í stórri skýrslu sem gerð var á síðasta kjörtímabili af nefnd sem Guðbjartur Hannesson stýrði. Sú nefnd hafnaði markaðsleið (uppboði eða fyrningar­ leið) en mælti með svonefndri samn­ ingaleið. Þorkell benti meðal annars á að lög um stjórn fiskveiða sé í raun saga endalausra reddinga og plástra. Frá árinu 1990 hefur lögum um stjórn fiskveiða verið breytt á Alþingi 50 til 60 sinnum. Í grein í Morgunblaðinu í nóvember 1987 skrifaði Þorkell með­ al annars: „Ekki leikur vafi á því að kvótakerfið, sem tekið var upp 1984, er spor í rétta átt. Úthlutun kvóta mun þó sífellt valda úlfúð. Eina færa leiðin er sú að hið opinbera selji aflakvót­ ann. Kvótasala stuðlar að hagkvæm­ astri útgerð og tryggir jafnframt eðli­ lega hlutdeild allrar þjóðarinnar í þeim aukna arði sem vænta má af fiskveiðum í kjölfar bættrar stjórn­ unar.“ Þorkell segir að þótt markaðs­ og uppboðsleið yrði farin nú væri hvorki lagalega né siðferðilega hægt að inn­ kalla aflahlutdeild fyrirvaralítið og því þurfi ríkið að taka kvótann til sín í þrepum og setja á uppboð til að skapa svigrúm til aðlögunar. Kvóta­ hafar væru þó fjarri því verr settir innan markaðskerfis en í núverandi kerfi. Þeir greiddu veiðigjald sam­ kvæmt útreikningum frá ári til árs í núverandi kerfi og áhætta umtals­ verð vegna óvissu um framtíðina. Í markaðskerfi greiddu þeir gjald á uppboði til að viðhalda kvótastöðu sinni og áhætta um framtíðina væri lítil. Deilur frá upphafi Sigurður Ingi sagði í framangreind­ um umræðum á Alþingi að kvóta­ kerfið íslenska væri hagkvæmt og hefði skilað miklum árangri, með­ al annars með markaðslausnum í mörgu tilliti. Það kæmi þó ekki í veg fyrir deilur og ósætti, einkum um eignarhald á auðlindinni og um veiðigjald. Þess má geta að ósætti milli stjórnarflokkanna um heildar­ breytingar á fiskveiðistjórnun varð til þess í vetur að Sigurður Ingi hætti við að leggja fram slíkt frumvarp. Hann glímir auk þess við harkalega and­ stöðu við það makrílfrumvarp sem nú liggur fyrir þinginu. Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, kvaðst ekki með öllu ósátt við kvóta­ kerfið sem slíkt heldur hitt að enn, árið 2015, væri ætlun stjórnvalda að gefa veiðiheimildir. n Útgerðin ákveði sjálf veiðigjald á uppboði n Vaxandi umræður um leiðir til gjaldtöku fyrir aðgang að auðlindum sjávar Jóhann Hauksson johannh@dv.is Enn er deilt Þorkell Helgason setti fram hugmyndir um markaðsleið í sjávarútvegi í blaðagrein þegar árið 1987. Færeyjar Fullyrt er að í færeyskum stjórnmálum sé meirihlutavilji fyrir uppboðum á makrílkvóta þótt varla verði af uppboðum á þessu ári. Auðlind á flakki Makríll gaf 24 milljarða króna í þjóðarbúið í fyrra. Augnheilbrigði Hvarmabólga og þurr augu. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Fæst í öllum helstu apótekum. Thealoz dropar Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Blephagel gel Blephagel er dauðhreinsað gel án rotvarnarefna, ilmefna og alkóhóls. Gelið vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir augnlokin. Það er hvorki feitt né klístrað. Blephaclean blautklútar Blephaclean eru dauðhreinsaðir blautklútar án rotvarnar- og ilmefna sem vinna vel á hvarmabólgu. Hjálpa við hjöðnun á þrota í kringum augun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.