Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 24
24 Fréttir Erlent Helgarblað 22.–26. maí 2015
Barn tjóðrað fast
heima hjá sér
Telpa sem fékk heilablóðfall fær ekkert að hreyfa sig
A
ðstæður ungrar kínverskr-
ar telpu hafa vakið mikla
reiði í Kína og víðar. Barnið,
Yang Xiaoyu, sem varð fyrir
heilaskaða, hefur verið bundin við
heimili sitt, bókstaflega, frá því að
hún var sex ára. Telpan fékk blóð-
tappa í heila þegar hún var ung-
barn. Skortur á læknisþjónustu og
umönnun hefur orðið til þess að
heilaskaðinn er varanlegur. Hún er
flogaveik og algjörlega ósjálfbjarga.
Hún getur ekki talað eða tjáð sig og
fær til þess litla sem enga aðstoð.
Stúlkan er tólf ára í dag. Hún fær að
vera úti á daginn, en er þá bundin við
tré. Á kvöldin er hún bundin föst við
gluggakistu á heimili sínu. Hún fær
lítið svigrúm til að hreyfa sig og er
ávallt tjóðruð við eitthvað.
Myndir af henni og þjáningum
hennar rötuðu á netið og vöktu hörð
viðbrögð. Foreldrar hennar eru afar
fátækir og búa á heimili sem er í mik-
illi niðurníðslu. Faðir hennar seg-
ir að til þess að Yang Xiaoyu fari sér
ekki að voða verði hann að hafa hana
í bandi og gefur henni aðeins um
eins metra slaka. „Ég verð að hafa
hemil á henni, ég hef ekkert val. Hún
hleypur annars bara í burtu,“ seg-
ir faðir hennar, Yang Hu. „Þegar við
erum heima er hún bundin föst í eld-
húsinu, en þegar ég fer út að vinna
reyni ég að finna gott tré með skugga
þar sem hún getur setið,“ segir hann.
Eftir umfjöllum heimsfjölmiðla mun
lögreglan vera að skoða aðstæður
barnsins. n
Örvænting ebólu-barnanna
n Þúsundir barna eru munaðarlaus eftir faraldurinn n Neydd í vændi til að lifa af
Þ
ótt ebólu-faraldurinn sé ekki
lengur á allra vörum er fólk-
ið í ríkjunum sem urðu hvað
verst úti enn að glíma við af-
leiðingar hans. Þá sérstak-
lega börn, sem nú standa uppi for-
eldra- og fjölskyldulaus og þurfa að
bjarga sér. Frá Síerra Leóne berast
nú fréttir af því að munaðarlaus börn
séu skilin eftir á vergangi, svöng,
heimilislaus og algjörlega umkomu-
laus. Fréttir berast einnig af því að
börn séu jafnvel neydd í kynlífsánauð
í ríkinu.
Ekki lokið
Ebólu-faraldrinum er ekki lokið, þótt
verulega hafi dregið úr útbreiðslu
sjúkdómsins. Ebólu-faraldurinn er
sá stærsti í sögunni, en ebólu varð
fyrst vart á áttunda áratug síðustu
aldar. Ebóla er lífshættulegur sjúk-
dómur sem nánast ómögulegt er að
lækna. Hann smitast auðveldlega
með líkamsvessum þeirra sem þegar
eru orðnir alvarlega veikir. Þau ríki
sem verst hafa orðið úti í ebólu-far-
aldrinum sem geisaði á síðasta ári
eru Líbería, Síerra Leóne og Gínea.
Enn greinast ný tilfelli í Gíneu, Síerra
Leóne og í Líberíu. Í þessari viku hafa
til að mynda 35 tilfelli verið greind í
Síerra Leóne og Gíneu.
Á vef WHO, Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar, kemur fram að
mörg tilfellanna í Gíneu eru rakin
aftur til jarðarfarar sem fór fram um
miðjan apríl. Þá voru níu tilfelli, af
þeim 27 sem greindust þar í heildina,
órekjanleg, sem gefur til kynna að
sóttkvíarúrræði sem sett hafa ver-
ið upp séu ekki að virka sem skyldi.
Bresku góðgerðarsamtökin Street
Child telja að þau viti af 12 þúsund
munaðarlausum börnum og telja víst
að ótalin séu þúsundir fleiri barna.
Útskúfun
Börnin sem eftir sitja búa við útskúf-
un, fátækt, skort á menntun og nær-
ingarskort. Hræðslan við sjúkdóminn
varð til þess að þeir sem smituðust
og ættingjar þeirra urðu jaðarsett.
Börnin geta mörg hver ekki snúið
aftur í skóla, enda bera þau ábyrgð á
fjölskyldum sínum. Matargjafir eru
orðnar sjaldgæfari og önnur aðstoð
af skornum skammti. Mariatu, 16 ára
frá Síerra Léone, þurfti að taka við
heimili foreldra sinna og sjá um átta
yngri systkini sín á meðan foreldrar
hennar voru í sóttkví. Til þess að fæða
systkini sín þurfti hún að leita til ná-
granna síns og bauð honum kynlíf í
staðinn fyrir mat. Hún er nú barns-
hafandi.
Móðir hennar lifði af ebólu-
smitið, en faðir hennar lést. Mariatu
og systkini hennar vinna alla daga
í steinnámu. Þau selja steinana og
reyna að framfleyta sér þannig.
Usman Kanu, 16 ára, missti föður
sinn í faraldrinum. Hann þarf að sjá
móður sinni og þremur systkinum
farborða. Hann reyndi sjálfsvíg eft-
ir mikla útskúfun þar sem fjölskylda
hans var hundsuð og gerð útlægð.
Ráða illa við aðstæður
Street Child tekur það fram að börn-
in þurfa að glíma við hluti og ástand
sem þau ráða illa við. „Þau vita ekki
hvaðan næsta máltíð kemur og vita
ekki hvort samfélagið mun taka við
þeim aftur. Þau vilja öryggi og ást,
eins og allir aðrir,“ segir í skýrslu
samtakanna.
„Þau sem lifðu af faraldurinn eru
einn viðkvæmasti hópurinn. Ör-
vænting þeirra getur orðið til þess
að þau leita í vændi,“ segja samtökin
og benda á að fyrir vikið geti þau lent
í höndum grimmra aðila sem geti
hagnýtt þau og misnotað. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Örvænting þeirra
getur orðið til þess
að þau leita í vændi.
Viðkvæmasti
hópurinn Börn
fylgjast með hjálp-
arstarfsmanni að
vinnu í Malí.
Standa ein Börnin sem
eftir sitja búa við útskúfun,
fátækt, skort á menntun
og næringarskort.