Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 26
Helgarblað 22.–26. maí 201526 Umræða F lugfarþegi (F): „Ég ætla að fá bjór.“ Tollafgreiðslumaður (T): „Gjörðu svo vel, ertu flugmaður?“ F: „Nei.“ T: „Þá hlýturðu að vera sjómaður.“ F: „Nei.“ T: „Þá ertu í utanríkisþjón- ustunni.“ F: „Nei, af hverju spyrðu maður?“ T: „Nú þá færðu engan bjór!“ Þetta samtal úr áramótaskaupi ríkissjónvarpsins 1979 er lýsandi fyrir það ástand sem ríkti í bjórinn- flutningsmálum þess tíma. Á þeim árum var öll sala áfengs öls bönnuð, en áhöfnum skipa og flugvéla var aftur á móti heimilt að taka með sér bjór inn í landið. Mál þessi komust í hámæli skömmu áður þegar borg- ari nokkur, sem ekki tilheyrði áð- urnefndum stéttum, reyndi að fara með kassa af bjór í gegnum tollinn á Keflavíkurflugvelli og það án leynd- ar. Umræddur borgari var þjóð- kunnur iðnrekandi, Davíð Scheving Thorsteinsson. Hvert mannsbarn á Íslandi þekkti Davíð á þeim tíma. Hann hafði þá um áratugaskeið rekið iðn- fyrirtækin Smjörlíki og Sól og allir þekkja framleiðsluvörurnar Ljóma, Svala, Trópí og Ís-Cola, en Davíð var einnig áberandi í forystustörfum fyrir íslenska iðnrekendur. Davíð kaupir ölið Davíð sagði svo frá þessu í viðtali við Vísi: „Ég kom heim frá útlöndum 15. desember síðastliðinn og keypti þá einn kassa af bjór í fríhöfninni, alls 12 flöskur. Ég var búinn að hugleiða það í mörg ár hversu miklum rangindum menn væru þarna beittir og allt í einu sauð þarna upp úr og ég keypti bjór- inn.“ Davíð var á leiðinni heim frá Lúxem borg. Hann lagði flöskurnar ofan á ferðatöskurnar og gekk að toll- hliðinu. Honum var boðin dómsátt í „smyglmáli“ og var sagður hafa „gert tilraun til að smygla bjór inn í landið“. Grípum niður í frásögn Davíðs: „Ég sagði tollvörðunum að ég væri engu að smygla, allir gætu séð að ég ætlaði að hafa með mér bjór eins og flug- liðarnir gerðu og ég ætlaði að njóta sömu réttinda og þeir.“ Bjórinn var gerður upptækur og honum tjáð hann yrði kærður í framhaldinu. Samkvæmt þágildandi reglugerð frá árinu 1975 máttu allir ferðamenn hafa meðferðis tiltekið magn áfengis inn í landið. Áfengt öl var þó undan- skilið. Áhafnir skipa sem voru 20 daga eða lengur utan íslenskrar lög- sögu máttu hafa með sér 48 flöskur af bjór inn í landið. Ef skip væru skem- ur í ferð minnkaði skammturinn í 24 flöskur. Flugliðar máttu svo hafa meðferðis 12 flöskur. Samkvæmt fréttum Vísis fluttu flugliðar um 80 þúsund flöskur af bjór inn í landið á ári hverju. Brot á stjórnarskrá Davíð Scheving taldi umrædda mis- munun ekki standast stjórnarskrá. Allir borgarar landsins ættu rétt á að hafa meðferðis bjór inn í landið, óháð því hvort þeir skrýddust ein- kennisbúningi eða ekki. Hann sagði svo frá að sér hafi gramist að dóttir hans sem var flugfreyja mætti hafa með sér bjór inn í landið „í krafti þess að hún væri starfsmaður ákveðins fyrirtækis, en ekki ég af því ég starfaði annars staðar“. Davíð sagði svo: „Mér fannst að með þessu væri fólk ekki jafnt fyrir lögunum, enda voru engin ákvæði um slíkt í stjórnarskrá þegar ég fór að athuga málið.“ Davíð hélt baráttu sinni áfram og fleiri lögðust á árarnar. Í umræð- um um málið var því meðal annars velt upp að banna með öllu að flug- áhafnir og farmenn fengju að hafa bjór með sér inn í landið. Sjómenn mótmæltu því og töldu tollfríð- indin hluta af starfskjörum sínum. Um þetta fórust Davíð svo orð: „Sú röksemdafærsla að þetta sé í kjara- samningum þykir mér tómt píp, ef hún er notuð. Þá gætum við Guð- mundur J. [formaður verkamanna- félagsins Dagsbrúnar] alveg eins sest niður og samið í einum hvelli um bjórinn til handa öllum laun- þegum.“ Stjórnvöld gefa eftir Mál Davíðs Scheving fór aldrei fyrir dómstóla. Þegar það var kannað af yfirvöldum kom í ljós að forsendur þess að leyfa aðeins flugáhöfnum að flytja bjór til landsins voru í meira lagi hæpnar. Þá sat að völd- um minnihlutastjórn Alþýðuflokks- ins og hinn 31. janúar 1980 setti Sighvatur Björgvinsson fjármála- ráðherra reglugerð þess efnis að eft- irleiðis yrði ferðamönnum heimilt að flytja með sér bjór inn í landið. Gátu þeir þá valið milli þess að taka með sér eina flösku af sterku víni og eina af léttu, eða þess að taka með sér eina flösku af sterku víni og tólf flöskur af bjór. Sighvatur kvaðst telja rétt að allir landsmenn sætu við sama borð í þessum efnum og sjó- menn og flugáhafnir nytu ekki for- réttinda. Blaðamaður spurði Sig- hvat hvort bjórinn væri með þessu ekki kominn með annan fótinn inn í landið. Ráðherrann taldi svo ekki vera. Um væri að ræða mjög takmarkað magn sem kæmi inn í landið með þessum hætti. Morgunblaðið ræddi við Davíð af þessu tilefni og hann sagði: „Að mínu mati á Sighvatur Björgvins- son fjármálaráðherra heiður skilinn fyrir að taka svo rösklega og réttilega á málinu eins og raun ber vitni.“ Blaðamaður innti Davíð álits á því hvort hann teldi að samt sem áður væri ekki verið að mismuna borgur- unum, því aðeins þeir sem ferðuð- ust til útlanda ættu rétt til að kaupa bjór. Um það fórust Davíð svo orð: „Jú, það er alveg rétt og það má segja að þeir sem oft ferðast til útlanda njóti enn frekari réttinda heldur en þeir sem sjaldan fara, og svo þeir sem heima sitja fá engan bjór. Það er næsta skrefið í málinu að berjast gegn því óréttlæti.“ Bjórbannið „barbarismi“ Fjölmargir þökkuðu Davíð framtak- ið í þessu réttlætismáli og fyrstu flug- farþegarnir sem kaupa máttu bjór mættu með flugi 801 Flugleiða frá Lúxemborg eldsnemma að morgni 1. febrúar 1980, en vélin var á leið til Chicago. Fyrsti farþeginn sem hélt inn í Fríhöfnina skundaði þegar að léttvínstegundunum. Blaðamaður vatt sér að honum og spurði hvort hann ætlaði ekki að nýta sér heim- ildir hinnar nýju reglugerðar. Far- þeginn svaraði: „Hvað ertu að segja, er búið að breyta þessu? Þetta kem- ur mér sannarlega á óvart – en ég er himinlifandi.“ Og bætti við: „Er ég sá fyrsti? Þetta er heilmikil upp- lifun.“ Annar flugfarþegi mælti fyrir munn margra þegar hann sagðist vera á móti forréttindum og bætti því við að nú eftir reglugerðar- breytinguna mætti með sömu rök- um selja bjór í Áfengisverslun ríkisins og á veitingahúsum. Ferða- menn, farmenn og flugliðar ættu ekki að sitja einir að krásunum. Er- lendur farþegi úr sama flugi kvaðst í sannleika sagt aldrei hafa skilið bjórbannið á Íslandi á sama tíma og sala sterkari tegunda væri leyfileg. Fulltrúi í tollgæslunni á Keflavíkur- flugvelli sagði að útlendingar hafi átt erfitt með að skilja bannið „og kallað þetta hreinan barbarisma“. Alls liðu rúm átta ár þar til bjór- frumvarpið svonefnda var sam- þykkt eftir langar og strangar um- ræður á Alþingi. Borgaraleg óhlýðni Davíðs Scheving átti sinn þátt í að hreyfa við málinu, sem leiddi til þess að bjórbannið var endanlega afnumið. n Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Bjórinn aðeins fyrir flugáhafnir n Forréttindi flugliða og farmanna n Reglugerð breytt í kjölfar borgaralegrar óhlýðni Davíð vildi kaupa ölið Davíð Scheving Thorsteinsson taldi sanngjarnt að geta keypt öl. „Ég sagði tollvörðunum að ég væri engu að smygla, allir gætu séð að ég ætl- aði að hafa með mér bjór eins og flugliðarnir gerðu og ég ætlaði að njóta sömu réttinda og þeir. Þakklát Fjölmargir þökkuðu Davíð framtakið í þessu réttlætismáli. Borgaraleg óhlýðni Alls liðu rúm átta ár þar til bjórfrumvarpið svonefnda var sam- þykkt eftir langar og strangar umræður á Alþingi. Borgaraleg óhlýðni Davíðs Scheving átti sinn þátt í að hreyfa við málinu. Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma) Láttu þér líða vel meccaspa.is Opnunartími Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00 Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00 Tökum vel á móti hópum af öllum stærðum, einnig utan hefðbundins opnunartíma. Dekur í boði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.