Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 32
Helgarblað 22.–26. maí 201532 Fólk Viðtal
„ég gleymdi
sársaukanum
á sviðinu“
B
laðamaður hittir Jóhönnu
Guðrúnu á uppáhalds kaffi
húsinu hennar í Hafnarfirði,
en hún fullyrðir að þar fáist
besta kaffið á landinu. Það
heitir Pallet kaffikompaní og er lítið,
krúttlegt kaffihús við Norðurbakka.
Hún er augljóslega fastagestur, geng
ur beint að afgreiðsluborðinu þegar
hún kemur inn og pantar án þess að
hika. Þegar kemur að því að borga
dregur hún hálf vandræðaleg upp
buddu, fulla af smápeningum, og
spyr hvort hún megi vera óþolandi
og borga með klinki. Þó það nú væri,
segir kaffibarþjónninn og saman
telja þau peningana þangað til rétt
upphæð fæst. Hafnarfjörður er
hennar heimabær, þar er hún fædd
og uppalin og vill helst hvergi annars
staðar vera. Og nú eru hún og Davíð
Sigurgeirsson, kærastinn hennar,
búin að festa kaup á íbúð í bænum.
Hún er ánægð með að vera kom
in aftur heim í fjörðinn eftir að hafa
freistað gæfunnar í Noregi í tvö ár.
„Við ákváðum að prófa að skella
okkur út því umboðsmaðurinn
minn var norskur. En ég hef alltaf
verið mjög heimakær. Þótt mér þyki
gaman að ferðast, þá er allt annað
að flytja út. Ég er búin að prófa það
núna og fílaði það ekki,“ segir hún
hreinskilin en viðurkennir að það sé
mun einfaldara að lifa á tónlistinni
í Noregi en hérna heima. Þar þurfti
hún að spila minna til að eiga fyrir
salti í grautinn, eins og hún orðar
það sjálf.
Leið ekki vel í hjartanu
Parið bjó í Noregi í tvö ár, en Jó
hanna Guðrún var komin með heim
þrá töluvert áður en þau sneru aftur
til Íslands 2013. „Það gekk mjög vel
hjá okkur úti, en fjölskyldan og fleira
á Íslandi togaði í mig. Það var aðal
lega ég sem vildi fara heim, ég er svo
mikil fjölskyldukona og eyði miklum
tíma með fjölskyldunni. Mér fannst
þetta fínt í rúmt ár, en eftir þann tíma
fór að toga í mig að koma heim. Ég
var orðinn þreytt á því að vera ekki
heima. Og þegar upp var staðið þá
langaði mig ekki að búa úti lengur.“
Jóhanna segist mögulega geta
hugsað sér að búa í Bandaríkjunum,
ef til þess kæmi að hún flytti aftur af
landi brott. Hún er samt efins. „Ég
veit ekki hvort ég gæti það. Málið var
nefnilega ekki að við fíluðum okkur
ekki í Noregi, við bjuggum í stóru
einbýlishúsi og þetta var mjög fínt.
En ef manni líður ekki vel í hjartanu
þá þýðir ekkert að rembast. Manni
verður sama um allt annað.“
Dregur mörkin við bari
Í Noregi snerist líf Jóhönnu Guð
rúnar bara um að syngja, ekki ólíkt
því sem það gerir á Íslandi. En hérna
heima er hún þó líka að kenna söng
og hefur gert um hríð. Hún tekur
fólk í einkatíma og hefur mjög gam
an af. Finnst fínt að hafa það með
söngnum. „Ég býð upp á námskeið
fyrir fólk á öllum aldri. Það er mjög
skemmtilegt hvað ég fæ fjölbreytta
einstaklinga sem eru að koma af
mismunandi ástæðum,“ segir hún og
brosir. Henni finnst frábært að geta
miðlað sinni þekkingu og reynslu af
söngnum til annarra með þessum
hætti. En fyrst og fremst er hún söng
kona. „Ég vinn við að syngja og hef
gert síðastliðin tíu, ellefu ár. Þessi ís
lenski bransi er þannig að allir sem
vinna í tónlist eru í alls konar verk
efnum. Það er sama fólkið sem er að
spila á börunum og í Eldborg. En það
gerir okkur á Íslandi auðvitað mjög
fjölhæf. Við þurfum að hafa mikla
dýpt sem listamenn því við þurfum
að geta brugðið okkur í alls konar
hlutverk. Annars þrífst maður ekki á
þessu.“
En Jóhanna Guðrún hefur verið
heppin, hún hefur getað valið úr
verk efnum og þarf ekki alltaf að
stökkva á það sem henni býðst. „Ég
hef verið heppin og getað dregið
mörkin við að syngja á börum. En
margir af okkar fremstu söngvurum
eru að syngja á börum og ég dáist að
þeim. Það er rosaleg keyrsla að spila
frá miðnætti til fjögur á nóttunni.
Það er líka erfitt að vera í Eldborg
eina helgina og svo á English pub þá
næstu, þar sem ölvað fólk er að öskra
upp í eyrað á þér og heimta óskalög.“
Henni finnst hins vegar skemmti
leg tilbreyting að syngja á böllum og
reynir að gera það af og til.
Fyrsta sólóplatan níu ára
Jóhanna Guðrún hefur sungið frá
því að hún man eftir sér og það kom
aldrei neitt annað til greina en að
hún yrði söngkona. Hún var aðeins
átta ára gömul þegar María Björk
Sverrisdóttir, söngkona og söng
kennari, uppgötvaði hana í keppni
vegna barnaplötu sem hún var að
vinna að. Jóhanna Guðrún vann þó
ekki keppnina, heldur varð í sjötta
sæti af um hundrað keppendum.
Þessi unga söngstjarna heillaði
Maríu Björk engu að síður upp úr
skónum og hún vildi fá hana í söng
skólann sinn. Það má í raun segja
að þar hafi söngferill Jóhönnu Guð
rúnar hafist. En um ári síðar gaf hún
frá sér sína fyrstu sólóplötu sem bar
heitið Jóhanna Guðrún 9 ára. Fljót
lega fóru hjólin að snúast af alvöru
og þá má eiginlega segja að hún hafi
verið á barmi heimsfrægðar áður en
hún náði unglingsaldri.
Á barmi heimsfrægðar ellefu ára
„Ég fékk risasamning í Bandaríkj
unum, hjá Tommy Mottola, þegar
ég var ellefu ára. Hann er fyrrver
andi maðurinn hennar Mariu Carey
og var sá sem kom henni á framfæri.
Celine Dion og fleiri flottar söngkon
ur voru líka hjá honum. Hann var
yfir Sony á heimsvísu, en þegar ég
fór á fund til hans, ellefu ára gömul,
þá var hann að stofna sitt eigið fyrir
tæki og vildi frekar taka mig þangað.
En það er bara örlítill hluti af þeim
sem fara á samning sem fara alla
leið. Það er oft eitthvað sem kemur
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu þegar hún var
níu ára og því barnastjarna með réttu. Nú er hún hins vegar orðin fullorðin kona og lifir á
söngnum, eins og hana dreymdi um. Það var mikill stökkpallur fyrir hana að ná öðru sæti í
Eurovision árið 2009 með laginu Is it true? Tveimur árum síðar flutti hún til Noregs ásamt
kærastanum sínum þar sem tækifæri opnuðust í tónlistinni. En heimþráin togaði Jóhönnu
Guðrúnu aftur til Íslands og hún sér varla fyrir sér að flytja aftur til útlanda. Blaðamaður
settist niður með Jóhönnu Guðrúnu og ræddi um tónlistina, frægðina, Eurovision, liðagigtina,
sem lék hana grátt í keppninni, og draumana, sem margir hafa ræst.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is „Ef
manni
líður ekki vel
í hjartanu þá
þýðir ekkert
að rembast