Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 37
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Fólk Viðtal 37
tækist á endanum. Systur mínar og
bræður eiga öll börn og mér hefur
tekist að lifa mig í gegnum þau sem
er ótrúlega magnað. Við erum bæði
ótrúlega lánsöm með fólkið í kring-
um okkur og hvað við höfum fengið
mikinn og góðan stuðning.“
Gátu loks andað
Hann segir ættleiðingarferlið einnig
mikla rússíbanareið. „Það tók líka
sinn toll en skilar þvílíkri hamingju
til baka enda er það yfirleitt þannig
með erfiðustu verkefnin. Einn áfangi
tók við af öðrum og svo endalaust
pappírsflóð. Forsamþykki var einn
stærsti áfanginn og svo biðin eft-
ir barninu. Þegar loks var búið að
tengja okkur við barn var þungu
fargi af okkur létt og þegar við feng-
um myndina og skýrsluna þá var
einhvern veginn eins og við gætum
loksins andað. Svo þegar drengurinn
var kominn til okkar þá fannst okk-
ur allt í einu eins og þetta hafi ekki
verið neitt mál. Öll hugsun um erf-
iðleika hvarf og ekkert annað skipti
máli. Þetta var allt svo gjörsamlega
þess virði.“
Efaðist í trúnni
Heimir rekur eigin söngskóla og
starfar líka sem söngkennari í Tón-
listarskólanum á Akureyri auk þess
sem hann stjórnar Gospelkór Ak-
ureyrar. Undanfarið hefur hann svo
tekið æ meiri þátt í starfi Hjálpræðis-
hersins á Akureyri. „Bróðir minn er
kapteinn í Hjálpræðishernum og
ég hef alltaf litið mikið upp til hans.
Svo var pabbi minn í þessu starfi og
systur mínar eru komnar inn í þetta
að einhverju leyti. Eftir að ég fór að
nota aðstöðu hersins fyrir söngskól-
ann hef ég farið meira inn í starfið og
fer á samkomur flesta sunnudaga.
Ég er því trúaður og er ánægður með
mína barnatrú en stefni ekki endi-
lega að því að verða kapteinn en
við sjáum til hvert þetta leiðir,“ segir
Heimir sem viðurkennir þó að hafa
efast í trúnni í gegnum erfiðleik-
ana tengda barnleysinu. „Við feng-
um mikið af fyrirbænum og stuðning
frá yndislegu fólki og þá fer maður
ósjálfrátt að spyrja sig af hverju ekk-
ert gerist; af hverju þetta gangi svona
illa og af hverju þetta sé að koma fyr-
ir okkur. Við trúum því núna að það
hafi verið vegna þess að við vorum
að bíða eftir honum; Breki hafi verið
valinn fyrir okkur. Sú tilhugsun veit-
ir mér vellíðan og bjartsýni. Ég var
samt aldrei reiður út í guð og þó að ég
hafi efast vissi ég alltaf og treysti því
innst inni að Guð myndi sjá um okk-
ur og við yrðum á endanum foreldrar.
Stóra spurningin var hversu lengi við
þurftum við að bíða.“
Hætti að drekka
Trúin var þó ekki alltaf ofarlega á for-
gangslista Heimis. „Ég fór í KFUM
eins og bróðir minn en á unglingsár-
unum datt ég út úr þessu. Þá var það
tónlistin og drykkjan,“ segir Heim-
ir sem tók ákvörðun um að hætta
að drekka árið 2006. „Djammið tók
sinn toll. Maður var varla búinn að
ná sér eftir helgina þegar maður byrj-
aði aftur. Ég stóð frammi fyrir þeirri
ákvörðun að þurfa að velja hvaða leið
ég ætlaði; halda áfram í drykkjunni
eða gera eitthvað við líf mitt? Ég var
ekki á góðri braut og þegar ég útskrif-
aðist úr tónlistarskólanum hér heima
ákvað ég að breyta þessu. Ég var að
stefna lífinu öllu í hættu. Það var í
rauninni ekki svo erfitt að hætta því
ég held að ég hafi ekki verið svo háð-
ur áfengi. Hjá mér var þetta meira fé-
lagslegt, en þegar ég drakk, drakk ég
mig iðulega til óbóta. Svo þegar ég
tók ákvörðunina fór ég út í skóla og
leið svo vel, gat einbeitt mér að nám-
inu og því að verða góður tónlistar-
maður og söngvari. Þetta var besta
ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu. Í
dag vakna ég hress og kátur um helg-
ar sem er æðislegt – best í heimi!“
Hætti í Luxor
Einhverjir muna eflaust eftir Heimi
úr Luxor, fyrsta íslenska stráka-
bandinu, sem sett var saman af
Einari Bárðarsyni árið 2007. Ein-
ar setti upp áheyrnarprufur og valdi
fimm stráka úr hópi 60 og þar á með-
al Akureyringinn Heimi. „Þetta var
flott konsept, frábærir strákar og
skemmtilegt að taka þátt í þessu en
hugur minn var annars staðar svo ég
hætti. Mér datt aldrei í hug að ég yrði
valinn en fór fyrir forvitni sakir í þess-
ar prufur. Svo þegar ég var að keyra
norður aftur og var kominn í gegn-
um göngin fékk ég símtal og varð
að snúa við. Ég fann mig bara ekki
í þessu. Þetta var endalaust ferða-
lag, bæði suður og svo út líka, því ég
var í námi á sama tíma. Einn daginn
ákvað ég að ég nennti þessu ekki
lengur og hringdi í Einar og sagðist
ætla að einbeita mér að því að vera
söngkennari og opna minn skóla. Ég
vonaði innilega að þeir myndu halda
áfram og þeir ætluðu að gera það en
einhverra hluta vegna flosnaði upp
úr þessu. Mig hefur aldrei dreymt um
að slá í gegn en vil gera tónlist á mín-
um forsendum og spila tónlist sem
ég er að semja. Þetta var spurning
um að flytja suður og gera þetta al-
mennilega eða hætta. Ég var að gera
góða hluti hér heima og langaði að
vera hérna. Mér líður alltaf best á Ak-
ureyri,“ segir hann og segist ekki sjá
eftir að hafa gefið Luxor upp á bát-
inn. „Það hefði kannski verið gaman
að sjá hvert þetta myndi leiða en ég
er mjög ánægður að hafa tekið þessa
ákvörðun. Skólinn minn er orðinn
fimm ára og ég er kominn á þann
stað sem ég vil vera á.“
Missti föður sinn
Heimir lenti í erfiðri lífsreynslu
þegar hann missti föður sinn fyr-
ir örfáum árum. „Hann fékk slæma
streptókokkasýkingu og varð mjög
veikur, var í hálfgerðu dái í nokkurn
tíma en kom svo til baka. Hann var
á góðri leið í endurhæfingu þegar
hann fékk hjartaáfall og lést. Hann
þoldi ekki meira. Ég hugsa oft um
það hvað það hefði verið gaman ef
Breki hefði fengið að kynnast hon-
um. Það er hálf leiðinlegt að það hafi
ekki fengið að gerast en það þýð-
ir ekkert að hugsa um það. Hann
kynnist ömmu og hinum afanum
og ömmunni, sem er frábært. Svo
leyfum við honum að sjá myndir,
myndbönd af pabba og hlusta á tón-
list eftir pabba svo hann fái aðeins
að kynnast því hvernig maður hann
var.“
Mikilvæg tengslamyndun
Blaðamaður kann ekki við að
halda Heimi lengur í burtu frá fjöl-
skyldunni og aðspurður viðurkennir
hann að hann iði í skinninu að kom-
ast heim. „Við höfðum hugsað okkur
að eignast allavega tvö, þrjú börn en
eins og staðan er í dag erum við góð
í bili. Hann er svo yndislegur og eins
og önnur börn þá tekur hann sín
köst þegar hann er þreyttur og þá vill
hann bara mömmu sína,“ segir hann
brosandi og bætir við að þeim sé
afar umhugað að tengslamyndunin
takist vel. „Við höfum lokað heim-
ilinu á meðan hann er að finna ör-
yggið og komast í rútínu. Við höfum
samt aðeins farið með hann og leyft
vinum og fjölskyldu að hitta hann en
það kemur enginn heim og það má
enginn taka hann upp. Annars er
hann svo brattur að við förum smám
saman að sleppa takinu. Við vilj-
um bara ekki fara of hratt í sakirnar,“
segir Heimir og bætir við að hann sé
enn að átta sig á því að sonurinn sé
kominn til þeirra. „Morgnarnir eru
yndislegar stundir. Eftir að hann
vaknar liggur hann í svona hálf-
tíma, horfir í kringum sig og kúrir
hjá mömmu sinni. Ég gleymi því líka
aldrei þegar hann kom heim í fyrsta
skiptið. Það var eins og að hann
vissi að hann væri kominn heim.
Hann hljóp um allt, svo glaður og
spenntur, og skoðaði dótið sitt. Það
var eins og þungu fargi væri af hon-
um létt. Við erum svo ánægð með
hvað við erum heppin. Við duttum
sko í lukkupottinn.“ n
„Þegar loks var búið
að tengja okkur
við barn var þungu fargi
af okkur létt og þegar
við fengum myndina og
skýrsluna þá var ein-
hvern veginn eins og við
gætum loksins andað.
Hamingja Hjónin
höfðu reynt lengi
að eignast barn og
fengu loksins ósk sína
uppfyllta fyrir rúmum
tveimur vikum.
Myndir Auðunn níELsson
Loksins fjölskylda Breki er nýorðinn tveggja ára, ákveðinn ungur drengur.