Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Síða 37
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Fólk Viðtal 37 tækist á endanum. Systur mínar og bræður eiga öll börn og mér hefur tekist að lifa mig í gegnum þau sem er ótrúlega magnað. Við erum bæði ótrúlega lánsöm með fólkið í kring- um okkur og hvað við höfum fengið mikinn og góðan stuðning.“ Gátu loks andað Hann segir ættleiðingarferlið einnig mikla rússíbanareið. „Það tók líka sinn toll en skilar þvílíkri hamingju til baka enda er það yfirleitt þannig með erfiðustu verkefnin. Einn áfangi tók við af öðrum og svo endalaust pappírsflóð. Forsamþykki var einn stærsti áfanginn og svo biðin eft- ir barninu. Þegar loks var búið að tengja okkur við barn var þungu fargi af okkur létt og þegar við feng- um myndina og skýrsluna þá var einhvern veginn eins og við gætum loksins andað. Svo þegar drengurinn var kominn til okkar þá fannst okk- ur allt í einu eins og þetta hafi ekki verið neitt mál. Öll hugsun um erf- iðleika hvarf og ekkert annað skipti máli. Þetta var allt svo gjörsamlega þess virði.“ Efaðist í trúnni Heimir rekur eigin söngskóla og starfar líka sem söngkennari í Tón- listarskólanum á Akureyri auk þess sem hann stjórnar Gospelkór Ak- ureyrar. Undanfarið hefur hann svo tekið æ meiri þátt í starfi Hjálpræðis- hersins á Akureyri. „Bróðir minn er kapteinn í Hjálpræðishernum og ég hef alltaf litið mikið upp til hans. Svo var pabbi minn í þessu starfi og systur mínar eru komnar inn í þetta að einhverju leyti. Eftir að ég fór að nota aðstöðu hersins fyrir söngskól- ann hef ég farið meira inn í starfið og fer á samkomur flesta sunnudaga. Ég er því trúaður og er ánægður með mína barnatrú en stefni ekki endi- lega að því að verða kapteinn en við sjáum til hvert þetta leiðir,“ segir Heimir sem viðurkennir þó að hafa efast í trúnni í gegnum erfiðleik- ana tengda barnleysinu. „Við feng- um mikið af fyrirbænum og stuðning frá yndislegu fólki og þá fer maður ósjálfrátt að spyrja sig af hverju ekk- ert gerist; af hverju þetta gangi svona illa og af hverju þetta sé að koma fyr- ir okkur. Við trúum því núna að það hafi verið vegna þess að við vorum að bíða eftir honum; Breki hafi verið valinn fyrir okkur. Sú tilhugsun veit- ir mér vellíðan og bjartsýni. Ég var samt aldrei reiður út í guð og þó að ég hafi efast vissi ég alltaf og treysti því innst inni að Guð myndi sjá um okk- ur og við yrðum á endanum foreldrar. Stóra spurningin var hversu lengi við þurftum við að bíða.“ Hætti að drekka Trúin var þó ekki alltaf ofarlega á for- gangslista Heimis. „Ég fór í KFUM eins og bróðir minn en á unglingsár- unum datt ég út úr þessu. Þá var það tónlistin og drykkjan,“ segir Heim- ir sem tók ákvörðun um að hætta að drekka árið 2006. „Djammið tók sinn toll. Maður var varla búinn að ná sér eftir helgina þegar maður byrj- aði aftur. Ég stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun að þurfa að velja hvaða leið ég ætlaði; halda áfram í drykkjunni eða gera eitthvað við líf mitt? Ég var ekki á góðri braut og þegar ég útskrif- aðist úr tónlistarskólanum hér heima ákvað ég að breyta þessu. Ég var að stefna lífinu öllu í hættu. Það var í rauninni ekki svo erfitt að hætta því ég held að ég hafi ekki verið svo háð- ur áfengi. Hjá mér var þetta meira fé- lagslegt, en þegar ég drakk, drakk ég mig iðulega til óbóta. Svo þegar ég tók ákvörðunina fór ég út í skóla og leið svo vel, gat einbeitt mér að nám- inu og því að verða góður tónlistar- maður og söngvari. Þetta var besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu. Í dag vakna ég hress og kátur um helg- ar sem er æðislegt – best í heimi!“ Hætti í Luxor Einhverjir muna eflaust eftir Heimi úr Luxor, fyrsta íslenska stráka- bandinu, sem sett var saman af Einari Bárðarsyni árið 2007. Ein- ar setti upp áheyrnarprufur og valdi fimm stráka úr hópi 60 og þar á með- al Akureyringinn Heimi. „Þetta var flott konsept, frábærir strákar og skemmtilegt að taka þátt í þessu en hugur minn var annars staðar svo ég hætti. Mér datt aldrei í hug að ég yrði valinn en fór fyrir forvitni sakir í þess- ar prufur. Svo þegar ég var að keyra norður aftur og var kominn í gegn- um göngin fékk ég símtal og varð að snúa við. Ég fann mig bara ekki í þessu. Þetta var endalaust ferða- lag, bæði suður og svo út líka, því ég var í námi á sama tíma. Einn daginn ákvað ég að ég nennti þessu ekki lengur og hringdi í Einar og sagðist ætla að einbeita mér að því að vera söngkennari og opna minn skóla. Ég vonaði innilega að þeir myndu halda áfram og þeir ætluðu að gera það en einhverra hluta vegna flosnaði upp úr þessu. Mig hefur aldrei dreymt um að slá í gegn en vil gera tónlist á mín- um forsendum og spila tónlist sem ég er að semja. Þetta var spurning um að flytja suður og gera þetta al- mennilega eða hætta. Ég var að gera góða hluti hér heima og langaði að vera hérna. Mér líður alltaf best á Ak- ureyri,“ segir hann og segist ekki sjá eftir að hafa gefið Luxor upp á bát- inn. „Það hefði kannski verið gaman að sjá hvert þetta myndi leiða en ég er mjög ánægður að hafa tekið þessa ákvörðun. Skólinn minn er orðinn fimm ára og ég er kominn á þann stað sem ég vil vera á.“ Missti föður sinn Heimir lenti í erfiðri lífsreynslu þegar hann missti föður sinn fyr- ir örfáum árum. „Hann fékk slæma streptókokkasýkingu og varð mjög veikur, var í hálfgerðu dái í nokkurn tíma en kom svo til baka. Hann var á góðri leið í endurhæfingu þegar hann fékk hjartaáfall og lést. Hann þoldi ekki meira. Ég hugsa oft um það hvað það hefði verið gaman ef Breki hefði fengið að kynnast hon- um. Það er hálf leiðinlegt að það hafi ekki fengið að gerast en það þýð- ir ekkert að hugsa um það. Hann kynnist ömmu og hinum afanum og ömmunni, sem er frábært. Svo leyfum við honum að sjá myndir, myndbönd af pabba og hlusta á tón- list eftir pabba svo hann fái aðeins að kynnast því hvernig maður hann var.“ Mikilvæg tengslamyndun Blaðamaður kann ekki við að halda Heimi lengur í burtu frá fjöl- skyldunni og aðspurður viðurkennir hann að hann iði í skinninu að kom- ast heim. „Við höfðum hugsað okkur að eignast allavega tvö, þrjú börn en eins og staðan er í dag erum við góð í bili. Hann er svo yndislegur og eins og önnur börn þá tekur hann sín köst þegar hann er þreyttur og þá vill hann bara mömmu sína,“ segir hann brosandi og bætir við að þeim sé afar umhugað að tengslamyndunin takist vel. „Við höfum lokað heim- ilinu á meðan hann er að finna ör- yggið og komast í rútínu. Við höfum samt aðeins farið með hann og leyft vinum og fjölskyldu að hitta hann en það kemur enginn heim og það má enginn taka hann upp. Annars er hann svo brattur að við förum smám saman að sleppa takinu. Við vilj- um bara ekki fara of hratt í sakirnar,“ segir Heimir og bætir við að hann sé enn að átta sig á því að sonurinn sé kominn til þeirra. „Morgnarnir eru yndislegar stundir. Eftir að hann vaknar liggur hann í svona hálf- tíma, horfir í kringum sig og kúrir hjá mömmu sinni. Ég gleymi því líka aldrei þegar hann kom heim í fyrsta skiptið. Það var eins og að hann vissi að hann væri kominn heim. Hann hljóp um allt, svo glaður og spenntur, og skoðaði dótið sitt. Það var eins og þungu fargi væri af hon- um létt. Við erum svo ánægð með hvað við erum heppin. Við duttum sko í lukkupottinn.“ n „Þegar loks var búið að tengja okkur við barn var þungu fargi af okkur létt og þegar við fengum myndina og skýrsluna þá var ein- hvern veginn eins og við gætum loksins andað. Hamingja Hjónin höfðu reynt lengi að eignast barn og fengu loksins ósk sína uppfyllta fyrir rúmum tveimur vikum. Myndir Auðunn níELsson Loksins fjölskylda Breki er nýorðinn tveggja ára, ákveðinn ungur drengur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.