Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 38
Helgarblað 22.–26. maí 201538 Neytendur
H
elsti vefurinn til að leita eft-
ir upplýsingum um sum-
arnámskeið barna og
unglinga, er fristund.is.
Vefurinn er góðra gjalda
verður til þess að átta sig á öllum
valkostunum en erfiðara er að átta
sig á nákvæmum dagsetningum
og verði. „Umfangið er einfaldlega
allt of mikið,“ segir skrifstofustjóri
íþrótta- og tómstundasviðs. Það er
því talsvert puð fyrir foreldra að átta
sig á hvaða námskeið henti þeirra
skipulagi og fjárhag. DV fer yfir þrjá
valkosti sem í boði eru; sumarbúð-
ir, íþróttaskóla og sumarfrístunda-
heimili, en fleiri valkostum verður
velt upp í næstu viku.
Ef ætlunin er að skrá barnið í
sumarnámskeið þá er ekki seinna
vænna að hefjast handa ef tryggja
á pláss. Flest námskeiðin eru með
fjöldatakmarkanir og í mörgum til-
vikum komast því færri að en vilja.
Úrval námskeiða sem er í boði er
gríðarlegt. Stutt leit á frístunda-
vef Reykjavíkurborgar leiðir í ljós
að rúmlega 200 mismunandi nám-
skeið eru í boði í júlí fyrir börn og
unglinga. Verð og tími dags sem er í
boði er einnig mjög mismunandi og
því er stundum dálítið púsluspil að
setja saman dagskrá. Flest íþróttafé-
lögin bjóða upp á heilan dag í viku
eða tvær stundir í senn en einnig er
algengt að hálfir dagar séu í boði.
Einnig þekkist að bjóða upp á nám-
skeið sem eru aðeins um klukku-
stund.
Hægt er að nálgast fjölmörg
námskeið á vefnum Frístund.is sem
íþrótta- og tómstundasvið Reykja-
víkurborgar heldur úti. Þar er hægt
að velja námskeið eftir áhugasviði
og valkostirnir eru mjög fjölbreytt-
ir, allt frá knattspyrnu til sjálfstyrk-
ingarnámskeiða. Einnig er vel að
verki staðið í að gefa íþrótta- og
áhugamannafélögum í nágranna-
bæjarfélögum kost á að auglýsa sín
námskeið á vefnum.
Ljóður á góðum vef
Fristund.is er að mörgu leyti góð-
ur vefur en sökum umfangsins er
mikilvæg upplýsingagjöf einfald-
lega óaðgengileg. Í fyrsta lagi vantar
verð, eða mögulega verðbil, á nán-
ast allar auglýsingar sem þar er að
finna. Foreldrar þurfa því að prjóna
sig áfram í gegnum hverja auglýs-
ingu og inn á undirliggjandi vefsíður
íþróttafélaga og leita þar eftir verði.
Enn stærra atriði eru nákvæmar
dagsetningar innan mánaðarins. Á
fristund.is er aðeins hægt að leita
eftir tilteknum mánuði og þá koma
upp öll möguleg námskeið. Hins
vegar er ekki hægt að leita eftir til-
tekinni viku. Flestir foreldrar eru að
brúa nokkrar vikur yfir sumarið og
því er bagalegt að ekki sé hægt að
leita nákvæmlega eftir því hvað sé í
boði í tiltekinni viku.
„Umfangið er einfaldlega of
mikið“
„Öll félögin fá uppskrift að því hvaða
grundvallarupplýsingar þarf að setja
á vefinn. Námskeiðin eru mislöng
og það er algjörlega óvinnandi veg-
ur fyrir okkur sem rekstraraðila
þessa vefjar að vera með þessar
upplýsingar um verð og nákvæmar
tímasetningar inni í fyrsta viðmóti
vefjarins. Umfangið er einfaldlega
allt of mikið,“ segir Gísli Árni Egg-
ertsson, sviðsstjóri íþrótta- og tóm-
stundasviðs. Hann segir að flest
félög séu með einfaldar og aðgengi-
legar upplýsingar á bak við auglýs-
ingarnar en tekur undir að sumt sé
ekki jafn gott. „Framtíðarmúsíkin er
sú að félög beri ábyrgð á sínum síð-
um sjálf en þar til við tryggjum að
allir séu meðvitaðir um hvað þurfi
að koma fram þá sjáum við um að
setja upplýsingarnar inn.“
Skoðum þrjá valkosti sem eru í
boði.
Frístundaheimilin með dagskrá
í allt sumar
Sumarfrístund frístundaheimil-
anna er valkostur sem fjölmargir
nýta sér. Í Reykjavík segir í auglýs-
ingu að boðið sé upp á vettvangs-
ferðir, sund, siglingar, fjöruferðir
og ótalmargt fleira. Kostnaður við
fimm daga viku, er 8.210 krónur fyr-
ir vistun frá 9–16, en að auki kostar
auka klukkustund 2.390 krónur. Í
Hafnarfirði bjóða frístundaheimilin
upp á íþrótta- og leikjanámskeið og
kostar vikan 8.200 krónur og ekkert
gjald er tekið fyrir aukaklukkustund.
Íþróttaskólarnir með umfangs-
mikið starf
Íþróttaskólarnir bjóða upp á
hagstætt verð og eru því góð-
ur kostur fyrir foreldra. Þar er fjöl-
breytt dagskrá í boði heilan og
hálfan dag, frá 9–16 og í sumum til-
vikum er boðið upp á heitan mat í
hádeginu. Einnig er í flestum til-
vikum gæsla í boði milli 8–9 og 16–
17. Á námskeiðunum fá börnin að
kynnast fjölmörgum íþróttagrein-
um og leikjum en einnig er í boði
að einbeita sér að einni íþrótt, til
dæmis knattspyrnu eða handbolta
en oftast er innheimt aukagjald fyr-
ir það.
Vert er að vekja athygli á fyrir-
komulaginu hjá Breiðabliki en þar
er hægt að velja körfubolta, kar-
ate og ævintýranámskeið fyrir há-
degi og eftir hádegi er knattspyrna,
frjálsar íþróttir og skák í boði.
Stjarnan, ÍR og Fram eru með
íþróttaskóla á mjög svipuðu verði
eða í kringum 17.000 krónur fyrir
tvær heilar vikur. Breiðablik og Val-
ur eru dýrari en munurinn er sá að
innifalinn í verðinu er heitur matur
í hádeginu sem þýðir einfaldlega
að máltíðin er á 1.200–1.300 krón-
ur daglega.
Sumarbúðir sívinsælar
Sumarbúðir eru sívinsæll valkostur
en þá dvelja börnin í heila viku við
leik og störf. Sumarbúðir skáta eru
einn slíkur valkostur en þar kostar
vikan 39.500. Þar er innifalin rút-
uferð fram og til baka og fullt fæði.
Sumarbúðir KFUM og KFUK eru
einnig starfræktar í allt sumar. Sex
dagar í Vindáshlíð kosta 42.900
krónur en í Vatnaskógi kostar jafn
löng dvöl 47.900. „Skráningar ganga
afar vel,“ sagði Þorsteinn Arnórs-
son, fjármálastjóri KFUM og KFUK.
„Í fyrra var metár hjá okkur og það
stefnir í að árið í ár verði svipað. Til
að mynda eru skráningar í Vind-
áshlíð orðnar yfir 70 prósentum,“
sagði Þorsteinn. Fyrir nokkrum
árum hófu samtökin að bjóða upp
á sumarbúðir sem voru sérstaklega
fyrir krakka með ADHD og skyld-
ar raskanir. „Við erum með gaura-
flokk í Vatnaskógi og stelpur í stuði
í Kaldárseli. Hvort tveggja hefur
mælst afar vel fyrir enda reynum við
að láta búðirnar aðlagast börnunum
en ekki láta þau aðlagast einhverj-
um fyrirfram skilgreindum búðum,“
sagði Þorsteinn. n
Ekinn aðeins 19 þús km. - Uppgefin eyðsla er 8,4 L
í blönduðum akstri. - Bíll sem tekur 7 fullorðna
Sæti fellanleg niður í gólf ( Stow and Go )
Hliðarhurðir á báðum hliðum - Álfelgur
Tölvustýrð miðstöð - ofl.
Lækkað verð:
5.990 þús.
Chrysler Voyager Diesel 3/ 2011 ←
Fjölmargt í boði
fyrir börn í sumar
n Sumarbúðir, íþróttaskólar og sumarfrístund
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sumarbúðir í Borg Þetta er 28. starfsár
íþrótta- og leikjanámskeiðsins vinsæla. Auk
þess halda meðal annars Fram, Breiðablik,
Stjarnan og ÍR umfangsmikil heilsdagsnám-
skeið yfir sumartímann.
Sumarbúðir KFUM og KFUK Vikan í
Vatnaskógi kostar 47.900 krónur en vikan í
Vindáshlíð kostar 42.900 krónur.
Sumarnámskeið frístundaheimil-
anna Vikan kostar 8.200 krónur í Reykjavík
og verðið í Hafnarfirði er sambærilegt. Hægt
er að vera heilan og hálfan dag.
Skjáskot af fristund.is Í fyrsta viðmóti er ekki hægt að sjá vísbendingar um verð eða
nákvæmar dagsetningar í júlímánuði. Til þess þarf að fara inn í hverja auglýsingu og þaðan
inn á heimasíður tiltekinna félaga. Yfirleitt eru upplýsingarnar vel framsettar þar en þó er
allur gangur á því.
Íþróttaskólar
Íþróttaskóli Stjörnunnar:
Kl. 9–16, tvær vikur á 16.600 krónur.
Matur ekki innifalinn.
Íþróttaskóli Fram:
Kl. 9–16, tvær vikur á 17.000 krónur.
Matur ekki innifalinn.
ÍR:
Kl. 8–17. Tvær vikur á 17.000 krónur,
matur ekki innifalinn.
Sumarnámskeið Breiðabliks:
Kl. 9–16. Tvær vikur á 29.000 krónur,
heitur matur innifalinn.
Sumarbúðir í Borg, Valur:
Kl. 9–16. Tvær vikur á 30.000 krónur,
heitur matur innifalinn.