Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 40
Helgarblað 22.–26. maí 201540 Skrýtið Sakamál n Perry Samuel svipti börn sín lífi n Ástæðan talin illgirni í garð móður barnanna B retinn Perry Samuel var í mars árið 2007 dæmdur til lífstíðarfangelsisvistar. Perry, sem þá var 35 ára, hafði viðurkennt að hafa myrt börn sín tvö á heimili þeirra í Bodel­ wyddan í Denbighshire í Wales, að kvöldi 5. nóvember árið 2006. Talið var að börn Perrys, Aidan, þriggja ára, og Caitlin, fimm ára, hefðu orðið bitbein í deilu foreldra sinna og að hann hefði myrt þau vegna illsku í garð barnsmóður sinnar. En í reynd hvílir sú vitneskja hjá Perry einum. Dómarinn ómyrkur í máli John Rogers, dómarinn í máli Perrys, fór ekki í launkofa með skoðun sína og sagði að hreinn og klár illvilji í garð móður barnanna hefði ráðið för hjá Perry þegar hann fyrirkom börnum sínum. Þegar John Rogers kvað upp dóminn sagði hann: „Þú tókst þau, annað á eftir hinu, og lagðir hönd fyrir vit þeirra, skeyttir engu hvern­ ig þau brutust um örvæntingarfull í von um að geta dregið andann. Þetta gerðir þú þar til lífsandinn hafði yfirgefið líkama þeirra.“ Síðan bætti dómarinn við: „Þú misnotaðir mikilvægustu hlið trausts; traustið á milli föður og barna.“ John Rogers sagðist vita að Perry gengi ekki fullkomlega heill til skógar í andlegum skilningi og mætti leiða að því líkur að það hefði haft einhver áhrif á atburðarásina, en „ég er þeirrar skoðunar að hvat­ inn hjá þér hafi eingöngu verið ill­ girni í garð móður barnanna“. Þunglyndi í kjölfar aðskilnaðar Fyrir dómi var reifað samband Perrys og móður barnanna, Söruh Graham, og fram kom að þau hefðu á einum tímapunkti skilið að borði og sæng. Þau sambúðarslit höfðu valdið Perry miklu hugarangri. Perry og Sarah höfðu þó tekið saman aftur og sú var staðan þegar Perry svipti börn sín lífi. Einnig var opinberað að Perry hefði lesið smáskilaboð á síma Söruh og þau kynnu að hafa vakið með honum grunsemdir um að hún væri í tygj­ um við annan mann. Hvað sem því líður þá gæti Steph­ en Riordan, verjandi Perrys, hafa hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að sannleikann í málinu „væri eingöngu að finna í höfði Perrys“. „Allt fór til fjandans“ Upphaflega hafði Perry sagt lög­ reglu að börnin hefðu verið í baði og hann minnti að hann hefði ver­ ið úti á tröppum á fá sér sígarettu – og heyrt þangað gleðileg buslhljóð að ofan. Að sögn Stephens Riordan sagði Perry við lögregluna að síðan hefði „allt farið til fjandans“. Riordan hélt áfram: „Hann [Perry] man eftir að hafa kropið við baðkarið og fallið á vegginn. Peysan hans blotnaði og hann fór úr henni. Börnin voru í baðkarinu.“ Að sögn verjandans var Perry of skelfdur til að hafa samstundis samband við lögregluna. Líkskoðun leiddi í ljós að börnin höfðu dáið einhvern tímann á milli klukkan níu og hálf tíu að kvöldi 5. nóvember, 2006, en Perry hafði fyrst samband við lögregluna rétt fyrir klukkan ellefu. Martröð í vöku Móðir barnanna, sem hafði ver­ ið á tónleikum ásamt vinum í Man­ chester þetta örlagaríka kvöld, sagði eftir dómsuppkvaðninguna að engin fangelsisvist yrði nógu löng til að af­ saka Perry fyrir að hafa svipt börn hennar lífi, eða réttlæta þá „martröð sem ég og fjölskylda mín upplifum í vöku vegna þessa manns“. Sagðist hún óska þess að fá að sofna svefninum langa, hún þjáð­ ist af stöðugri martröð og óendan­ legum sársauka. Hún vissi að sam­ band hennar og Perrys hefði ekki verið fullkomið en hún hefði talið hann elska hana og börnin og myndi aldrei gera þeim mein, hvað þá myrða þau. „Það versta við þessa martröð alla er vitneskjan um að börnin þjáðust,“ sagði Sarah. n Sarah Graham Lifir í martröð vegna gjörða barnsföður síns. „Það versta við þessa martröð alla er vitneskjan um að börn- in þjáðust,“ sagði Sarah. Myrti börn sín tvö Fékk lífstíðardóm „Allt fór til fjandans,“ sagði Perry við yfir- heyrslu. Börnin tvö Aidan og Caitlin guldu fyrir ósætti foreldra sinna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.