Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Qupperneq 41
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Skrýtið 41
Við elskum umslög
- en prentum allt mögulegt
• Nafnspjöld
• Reikninga
• Veggspjöld
• Bréfsefni
• Einblöðunga
• Borðstanda
• Bæklinga
• Markpóst
• Ársskýrslur
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is
Böðuðu sig í sviðsljósinu
Það eru ekki bara stjörnurnar úti í hinum stóra heimi
sem fá athygli fjölmiðla. Hinar ýmsu dýrategundir fá
stundum að baða sig í sviðsljósinu og vekja uppá-
tækin jafnan mikla athygli almennings. Chihuahua-
hundur, vatnabuffall, hermannaselir, boltabíturinn
Bobo og nýfæddur górilluungi fengu allir sína fimmt-
án mínútna frægð á dögunum og virtust almennt
séð sáttir við lífið og tilveruna.
Í fangi móður sinnar Górilluungi fæddist á dögunum í dýragarðinum Taronga í Ástralíu. Hérna er hann í fangi móður
sinnar Frala og virðist fara þar einkar vel um hann. Bolabítur á hjólabretti Fjögurra ára bolabítur, Bobo, rennir sér á
hjólabretti fram hjá skrifstofufólki í viðskiptahverfi Singapúr. Eigandi hundsins, sem getur
rennt sér á hjólabretti án nokkurrar aðstoðar, fór með hann í fjármálakerfið til að kynna nýtt
og glæsilegt gæludýrahótel.
Bóndi og vatnabuffall Bóndi hvílir sig við hlið buffalsins síns við upp-
haf hinnar árlegu Carabau–hátíðar í bænum Pulilan í norðurhluta Filippseyja. Vatnabufflar,
sem kallast carabau í Filippseyjum, taka þátt í skemmtigöngu um götur Pulilan til heiðurs
hinum heilaga San Isidro Labrador.
Selir með byssur Selir klæddir upp eins og
hermenn með byssur á sýningu sem var haldin í síberísku borginni
Irkutsk í Rússlandi í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Á hundasýningu í Ísrael Kona leikur sér við
chihuahua-hundinn sinn á alþjóðlegri hundasýningu í Kannot í Ísr-
ael. Um 800 hreinræktaðir hundar frá um 180 mismunandi stöðum
tóku þátt í sýningunni.
Sofnaði í miðju ráninu
Innbrotsþjófur átti erfitt með sig og lagðist til hvílu
Þ
að sannaðist hið forn-
kveðna, að nætursvefninn er
mikilvægur, þegar Timothy
Bontrager braust inn á heim-
ili fjölskyldu á Florída í Bandaríkj-
unum. Svo virðist sem Timothy
hafi steinsofnað í miðju innbroti.
Skömmu eftir að húsmóðirin á heim-
ilinu reis úr rekkju gekk hún fram á
hann þar sem hann var í fastasvefni
í stofunni. Hún spurði hann hvað
í ósköpunum hann væri að gera á
heimili hennar en fátt var um svör;
hann hafði komist inn í gegnum
ólæstar svaladyr, baðst afsökunar og
reikaði um húsið á meðan húsmóð-
irin hringdi á lögregluna. Þegar lög-
reglu bar að garði var Timothy horf-
inn af vettvangi og kom þá í ljós að
hann hafði gengið út með veski kon-
unnar, kreditkort, reiðufé og ávís-
anahefti. Timothy var handtekinn
skömmu síðar þar sem hann fannst
á gangi um hverfið. Hann var þá
nánast nakinn, á stuttbuxum einum
fata. Hann reyndist hafa skilið bux-
ur sínar eftir í skóglendi skammt frá.
Hann hefur verið ákærður fyrir inn-
brot og situr í gæsluvarðhaldi. n
Svefndrungi Þegar
konan fór á fætur og fann
hún Timothy í stofunni,
þar sem hann svaf.
Mynd ShutterStock