Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 46
Helgarblað 22.–26. maí 201546 Lífsstíll
Þ
ví er ekki að neita að margir
hafa lúmskt gaman af
Eurovision. Þrátt fyrir það
er misjafnt hversu glatt fólk
er við að auglýsa þennan
áhuga. Það stendur þó ekki á Hildi
Tryggvadóttur Flóvenz en hún er
opinber, metnaðarfullur og ein-
lægur Eurovision-aðdáandi. Hildur
hefur gengið svo langt að stofna fé-
lagasamtök áhugafólks um Söngva-
keppni evrópskra sjónvarsstöðva
ásamt því að halda úti heimasíð-
unni Allt um Júróvisjon. Hildur deil-
ir hér reynslu sinni með lesendum
og kryfur ýmsa vinkla keppninnar í
ár.
Ástralía með í ár
Aðspurð hvað sé óvenjulegt við
keppnina í ár stendur ekki á svör-
um hjá Hildi enda hefur hún nýtt
tím ann vel undanfarið og kynnt sér
hvert smáatriði til hlítar.
„Það má alveg segja að það sé
eitt og annað óvenjulegt við keppn-
ina í ár. Auðvitað er það misóvenju-
legt þó. Það sem ber hæst í óvenju-
legheitum er auðvitað að Ástralía
er með í ár. Í Ástralíu hefur löngum
verið mikill áhugi á keppninni og
þeir hafa rifið sig upp á sunnudags-
morgnum til að horfa. Þeir fengu
því boð frá EBU (European Broad-
casting Union) um að taka þátt í ár
enda fagnar keppnin 60 ára afmæli
sínu. Fleira sem er óvenjulegt er
að það eru þrír kynnar auk kynnis
í græna herberginu. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem eru þrír kynnar en
þeir eru alla jafna tveir. Það sem er
líka óvenjulegt (en líka ánægjulegt!)
er að kynnarnir þrír eru allir kven-
kyns en það er í fyrsta skipti sem
það gerist. Það má svo segja að það
sé örlítið óvenjulegt hvað margar
ballöður eða lög í rólegri kantin-
um eru að keppa í ár og lítið um
júrópoppsmelli. Að lokum finnst
mér óvenjulegt að skipta út mynd-
vinnsluteymi sem hefur unnið að
keppninni í mörg ár á einu bretti.“
Má brjóta hefðir?
En hvernig heldur „alvöru“ aðdá-
andi upp á hátíðina? Eru einhverj-
ar hefðir sem ekki má brjóta og ekki
síst, hvernig fer aðdáandi eins og
hún út fyrir þægindarammann sinn
í þessu samhengi?
„Hjá mörgum aðdáendum er
ekki í boði að fara mikið út fyrir
kassann þegar kemur að keppninni
og þeir halda í hefðir hvað varðar
áhorf. Hins vegar má alveg segja að
með tilkomu FÁSES (Félag áhuga-
fólks um Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva) hafi einhverj-
ir aðdáendur stigið út fyrir kassann
bara með því að koma og vera með
í starfi klúbbsins. Þar er margt brall-
að, menn spreyta sig í spurninga-
keppnum, syngja í karókí, taka að
sér trúnaðarstörf, skrifa á vefsíðu fé-
lagsins, tjá sig opinberlega í viðtöl-
um, mæta í upptökur í sjónvarps-
sal, fara í partí með fólki sem það
hefur ekki hitt áður og margt fleira.
Sjálf fór ég alveg út fyrir kassann
sem Eurovision-aðdáandi þegar ég
fór fyrst út á keppnina með blaða-
mannapassa um hálsinn og fór að
færa fréttir í gegnum vefsíðuna Allt
um Júróvisjon en hafði aldrei komið
nálægt fjölmiðlastörfum áður.“
Bestu hátíðarhöld ársins
Margur kann að halda að fyrir sann-
an Eurovision-aðdáanda sé stans-
laust stuð í kringum keppnina sjálfa.
Því fer þó fjarri ef marka má frásagn-
ir Hildar en þær líkjast helst vinnu-
törn í meðalstóru fyrirtæki.
„Áður fyrr hélt ég Eurovision há-
tíðlega með því að horfa alltaf með
vinahópnum á keppnina en eft-
ir að við Eyrún Ellý Valsdóttir sett-
um vefsíðuna Allt um Júróvisjon-
vefsíðuna í loftið árið 2010 og eftir
að við, ásamt fleiri eldheitum að-
dáendum, stofnuðum FÁSES árið
2011 hafa hátíðarhöldin breyst mik-
ið. Undirbúningurinn verður marg-
falt meiri og síðustu vikurnar fyr-
ir lokakvöldið eru undirlagðar í
Eurovision þar sem spáð og spek-
úlerað er í Eurovision frá öllum
hliðum, umfjöllun á Öllu um Júró-
visjon er skipulögð, starfsemi FÁSES
á vettvangi er skipulögð, Fréttabréf
FÁSES er komið í hendur félaga og
fleira. Þetta geri ég í samhentum
hópi félaga minna og úr verða bestu
hátíðarhöld ársins!“
Féllust í faðma
Hildur hefur marga fjöruna sop-
ið í tengslum við Eurovision en því
fer fjarri að hún sitji bara við imb-
ann með snakk í annarri og stiga-
töflu í hinni. Hún hefur margoft sótt
keppnina heim á erlenda grundu,
bæði sér til skemmtunar sem og
öðrum til fróðleiks. Sögurnar eru því
margar en nokkrar keppnir standa
helst upp úr.
„Það koma nokkrar keppnir upp í
huga sem standa upp úr. Í fyrsta lagi
er það keppnin 1999 þegar Ísland var
í 2. sæti með framlagi Selmu, All out
of luck. Í öðru lagi er það keppnin
2010 en þá fór ég ásamt Eyrúnu Ellý
í fyrsta skipti á Eurovision en þá var
keppnin haldin í Osló. Það var alveg
ótrúleg upplifun að fara út og taka
þátt í öllu sem fram fer í þeirri borg
sem keppnin er haldin í. Í þriðja
lagi er það keppnin 2011 þegar ég
rétt rak inn nefið í Dusseldorf, var
þar samtals í einn og hálfan sólar-
hring, sá Vini Sjonna komast áfram
upp úr undankeppninni og fagnaði
gríðarlega við það tækifæri en við
Lovísa Árnadóttir, sem þá starfaði
fyrir RÚV, féllumst í faðma og hopp-
uðum um í gleði okkar en við höfð-
um hist í fyrsta skipti bara nokkrum
klukkustundum áður. Í fjórða lagi
eru það svo keppnirnar 2013 og
2014 þar sem ég fékk tækifæri til að
vera úti í 10 daga á hvorri keppni og
vinna með dásamlegu fólki að færa
Eurovision-fréttir til aðdáenda.
Þegar maður er á staðnum er
svo margt frábært sem situr eftir í
minningunni en ef ég ætti að velja
þá stendur keppnin 2013 upp úr
af þeim sem ég hef farið á. Svíum
tókst að búa til einstaka stemningu
í Malmö og hópurinn sem ég var í og
fólkið sem ég kynntist var alveg frá-
bært fyrir utan auðvitað að keppnin
var sérlega skemmtileg það árið.“ n
„Margt óvenjulegt
við keppnina í ár“
Hildur stofnaði félagasamtök áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Aðdáandi Hildur fer ekki í grafgötur með
það að hún er einlægur Eurovision-aðdá-
andi.
„Þegar maður er á
staðnum er svo
margt frábært sem situr
eftir í minningunni
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf