Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 47
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Lífsstíll 47
Project1_Layou
t 1 24/11/2011
12:58 Page 1
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
Heitustu trend sumarsins
Hægt er að sækja sér innblástur úr ýmsum áttum.
Við mælum til dæmis með tískubloggaranum gyp-
sylovinlight.com til að fá hvítan og bláan
innblástur fyrir ströndina. Þessi síða
gefur manni einnig skemmtilegar
hugmyndir um hvernig maður get-
ur skreytt sig fallega með skarti.
Fáðu innblástur
Myndin gefur innblástur fyrir trend
sumarsins.
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Fallegt skart Skartið er ávallt óaðfinn-
anlegt hjá þessum stílista. Á ströndinni
Emilio Pucci lúxussilki kaftan
er fallegur á ströndinni.
Svöl gleraugu
Cutler og Gross aviator
sólgleraugun smellpassa við
strandarfatnað sumarsins. Glerið
er með ljósbláum blæ.
Látlaust Hvítur sund-
bolur frá Victoriá s Secret er látlaus
og fallegur. Hann býður uppá ýmis
tækifæri til að skarta upp og niður.
Derið hér fullkomnar útlitið.
Birkenstock
Óþarfi að flækja málin. Hvítir
Birkenstock-sandalar eru málið.
Flott bikiní
Zimmerman-bikiní fæst til
dæmis á net-a-porter.com.
L
eikföng sem áður voru í eigu
annarra prýða nýtt listaverk í
Listasafni Reykjavíkur. Ef þú
veltir fyrir þér hvert fjöldi yfir-
gefinna bangsa fóru, sem hafa verið
elskaðir og yfirgefnir af reykvískum
börnum, erum við líklega búin að
finna staðinn.
Jú, þúsundir þeirra hanga í
Hafnarhúsi, Tryggvagötu þar sem
listakonan Kathy Clark hefur safnað
fjölda þeirra saman og breytt þeim
eftir sínum aðferðum og kallar þá
nú bangsavætti. Sýningin í Hafnar-
húsi er ætluð til þess að kalla fram
bernskuminningar, bæði góðar og
slæmar. Sýningin verður haldin í
sumar, nánar tiltekið frá 21. maí til
18. október. n
Hvar enduðu
svo bangsarnir?
Gamlir bangsar notaðir í listaverk
Bangsar Kathy
Clark notar gamla
bangsa í listaverk.