Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 51
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Menning 51
Opið virka daga 10 - 18,
laugard. 11 - 16,
sunnud. 14 - 16
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Sýningar
í Gallerí
Fold
Jarðnesk ljóð
Tryggvi Ólafsson
1. - 17. maí
Síðasta sýningarhelgi
Geirfuglar
Guðlaug Dröfn
Gunnarsdóttir
9. - 24. maí
Tinni
Ole Ahlberg
9. - 24. maí
Lýkur glæstum áfanga
með sýningu á Áföngum
það eina sem Serra hefur unnið úr
steini og af þessari stærðargráðu.
Hingað til hefur Serra yfirleitt notast
við járn en skúlptúrar hans eru feiki-
lega stórir en mínimalískir skúlptúr-
ar. Af þessum ástæðum hafa áhuga-
menn um Serra komið hingað til
lands gagngert til þess að skoða
verkið.
„Maður hefur hitt pílagríma sem
komu eingöngu hingað til lands til
þess að skoða þetta listaverk,“ segir
Hafþór.
Gestum býðst að fara með báti
og leiðsögumanni úr gömlu höfn-
inni yfir til Viðeyjar þar sem verkið er
skoðað í návígi. En þá verður einnig
til staðar nokkurs konar listasmiðja
fyrir börn.
„Við höldum fjögur vikulöng nám-
skeið fyrir börn úti í eyjunni þar sem
þau fræðast um náttúruna og listina,“
segir Hafþór en námskeiðið er styrkt
af bandaríska sendiráðinu. „Við mið-
um við að börnin séu frá átta ára til
þrettán ára. Og markmiðið er að
halda þessu ódýru þannig að sem
flestir geti sent börnin á námskeiðið,“
segir Hafþór.
Kemur til landsins í sumar
Aðspurður segir Hafþór að Serra hafi
ekki komist á opnun sýningarinnar,
sem var í gær, 21. maí.
„Og hann var í raun dálítið hissa
þegar ég hafði samband við hann og
sagði honum frá sýningunni. Hann er
samt mjög spenntur fyrir því að koma
og stefnir á að koma hingað til lands
seinna í sumar,“ segir Hafþór.
En þetta er síðasta sýningin sem
Hafþór sjálfur stýrir en hann hefur
verið safnstjóri hjá Listasafni Reykja-
víkur í tíu ár. „Þetta er bara eins og
með bandaríska forsetann, maður
fær tvö kjörtímabil til þess að sinna
þessu verkefni,“ segir hann en í fyrstu
er ráðið til fimm ára og svo var ráðn-
ingin framlengd um önnur fimm ár
árið 2010. Svo segir í reglum að safn-
stjóri megi ekki sinna starfinu lengur.
„Þetta er búið að vera rosalega
skemmtilegt, þessi ár hafa hlaup-
ið frá manni og mér líður eins og
ég hafi byrjað í gær,“ segir hann um
veru sína hjá safninu. „Tíu ár eru
samt dágóður tími og því gott að
halda áfram,“ bætir hann við. Þó er
ýmislegt á döfinni hjá Hafþóri. „Ég
er að flytja til Bandaríkjanna þar
sem ég tek við listasafni og skúlptúr-
garði á norðvesturströnd Bandaríkj-
anna,“ segir Hafþór að lokum.
Sýningin stendur yfir í allt sumar
og lýkur 20. september. n
Þ
að er undarlegur ósiður með-
al frændþjóða vorra að drepa
stjórnmálamenn sína, og bók
þessi hefst einmitt á morðinu
á Olof Palme, viðburði sem setti
mark sitt á norræna höfunda sem
þá voru á barnsaldri eins og morðið
á Kennedy gerði fyrir Bandaríkja-
menn fyrri kynslóða. Og áður en
yfir lýkur falla fleiri kjörnir fulltrú-
ar í valinn.
Höfundurinn Bengtsson er þó
Jonas danskur og vakti fyrst athygli
fyrir bókina Aminas breve, en lík-
lega er hann þekktastur fyrir bókina
Submarino, sem var kvikmynduð af
meistara Thomas Vinterberg.
Minnir á Terminator
Hér erum við sumpart á svipuðum
slóðum, ungur maður álpast frem-
ur stefnulaust um á börum Kaup-
mannahafnar sökum áfalls sem
hann varð fyrir í æsku. Faðir hans
átti við andlega erfiðleika að stríða
og ól hann upp í ímynduðum æv-
intýraheimi sem bókin sækir tit-
il sinn til. Stundum hljómar þetta
eins og Furðulegt háttalag hunds
um nótt, án
þess að jafn vel
takist að fanga
rödd sögu-
manns. Stund-
um minnir
þetta frekar á
Terminator II,
þar sem barn
er alið upp
utan við samfé-
lagið og kennt
að bjarga sér
án atbeina
skólakerfis eða
regluverks.
Um miðja
bók erum við
síðan flutt
fram í tímann,
rétt fyrir síð-
ustu aldamót,
þegar persón-
an er komin
á unglings-
aldur. Varla er lengur
hægt að skrifa þroskasögur á Norð-
urlöndunum án þess að vera bor-
inn saman við Knausgård, en fæst-
ir standast þann samanburð. Við
komumst ekki jafn nálægt persón-
unni hér, né heldur er okkur jafn
annt um hana.
Drukkinn Forrest Gump
Þrátt fyrir hið undarlega uppeldi
virðist allt blessast hjá drengnum,
sem hefur tekið sér nafnið Mehmet
eftir horfnum Tyrkja. Allar kon-
ur sem á vegi
hans verða
falla fyrir hon-
um, hann
málar mynd-
ir á fyllerí sem
síðar slá í gegn
í Berlín og
minnir stund-
um á drukkinn
Forrest Gump.
Við venjumst
því brátt að
litlar áhyggjur
þarf að hafa af
örlögum sögu-
persónu, sem
auk þess er al-
ger skíthæll.
Kaflar á víð
og dreif fanga
athygli, hvort
sem það er lífið
bak við tjöldin í
leikhúsi (þó að
erfitt sé að toppa
myndina Birdman í þeim efnum)
eða meðal listamanna í Berlín. Les-
anda þarf því ekki að leiðast, en lík-
lega hefði verið betra að taka einn
af þráðunum fyrir og sinna honum
af alúð, og gjarnan hefði mátt stytta
bókina til muna. Maður bíður stöð-
ugt eftir lokatvistinu sem setur allt í
fókus, en það lætur á sér standa og
sagan fjarar út. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Bækur
Ævintýri
Höfundur: Jonas T. Bengtsson
Þýðandi: Ísak Harðarson
Útgefandi: Mál og menning
Undarlegt ferðalag drengs í Danmörku
Mörg handtök Sýningin Serra er í fullum undirbúningi.
Listasafn Reykjavíkur Þar verða til sýnis teikningar eftir listamanninn.
Áfangar Tvær súlur úr umfangsmiklum
skúlptúr Richards Serra í Viðey.
Á vegg Skissur eftir Richard Serra