Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 58
Helgarblað 22.–26. maí 201558 Menning Sjónvarp Mín stærsta stund F yrstu árin ólst ég upp í sveit, nánar tiltekið á Ytri- Löngumýri í Austur-Húna- vatnssýslu. Óhjákvæmilega varð maður var við margs konar dýralíf í sveitinni því fyrir utan sauðfé og hesta þá héldum við kýr og hænur til skamms tíma. Þar fyrir utan voru fjölmargir hund- ar á bænum sem og kettir. Þar voru einnig mýs. Þær voru kannski ekki aufúsugestir en maður varð alltaf var við þær endrum og eins og sér- staklega ummerkin. Þær nöguðu sig í gegnum fóðurpoka og gerðu oft bölvaðan óskunda. Stundum fann maður dauðar mýs, til dæmis í fjár- húsunum, og ég man eftir að hafa tekið eina upp á skottinu, storm- að inn í eldhús til ömmu og garg- að hátt og snjallt: „Sjáðu hvað ég fann!“ Þetta var í eina skiptið sem ég sá ömmu skipta skapi, líklega af því að músin var frekar nálægt nefinu á henni, og hún lamdi mig með visku- stykki þar til ég hrökklaðist út með músina. Amma var nefnilega hrædd við mýs en það var barnungt bjarn- dýrið svo sannarlega ekki. Ég flutt á mölina skömmu síðar eftir að foreldrarnir höfðu gefist upp á búskapnum. Þrátt fyrir að lít- ill hluti ævi minnar hafi átt sér stað í sveit þá er ég enn í fullkominni afneitun um að ég er einfaldlega borgarbarn, það er búið að malbika yfir sveitastrákinn. Reglulega geri ég nefnilega mikið úr þessum upp- runa mínum úr sveitinni og yfirleitt endar það með ósköpum. Til dæm- is heimsótti stórfjölskylda konunn- ar eitt sinn hestaleigu. Þá ákvað ég slá um mig, sagðist vera vanur maður og þyrfti almennilegan gæð- ing. „Ég er úr sveit sjáðu til,“ sagði ég hróðugur. Á meðan restin af hópn- um átti notalega fjölskyldustund í náttúrunni þá barðist ég fyrir lífi mínu á bölvaðri bikkjunni og hún henti mér tvisvar af baki. Í vikunni kom svo lokastað- festingin á því að ég er endanlega búinn að missa tengslin við upp- runann. Þá var ég staddur heima hjá mér að kvöldi til og með tannburst- ann í skoltinum. Konan mín öskr- ar þá upp að hún hafi séð eitthvað hreyfast í myrkrinu. Vissulega örlítið óþægilegt en ég ákvað að bera mig mannalega enda var ég handviss að um fullkominn misskilning væri að ræða. Ég fer því að skoða aðstæður og dangla kústinum í stóla og skápa. Ekkert gerist. Loks dreg ég borð að- eins frá veggnum og kíki fyrir horn- ið. Í örstutta stund horfðumst við músin í augu. Svo tóku ósjálfráð viðbrögð okkar við. Eðli málsins samkvæmt lagði músin á flótta. Hún skaust beinlínis framhjá mér á leifturhraða. Fyrirfram hefði ég vonast til þess að meiri reisn hefði verið yfir mínum viðbrögðum. Bölva kannski örlítið en hefja svo eftirför sem myndi enda með fulln- aðarsigri. Þessi mús var hins vegar heppin. Á svipstundu stökk ég upp á skrifborðið, sveiflaði kústinum í all- ar áttir í fullkominni geðshræringu og rak síðan upp eitt eymdarlegasta öskur seinni tíma. Konan mín tók undir. Þetta var ekki okkar stærsta stund en hún var í stereó. Þegar ég náði áttum var músin horfin ásamt sjálfsvirðingu minni. Eins og alltaf þegar mér eru all- ar bjargir bannaðar þá hringdi ég í mömmu og pabba. Pabba fannst þetta drepfyndið og bauðst til að lána mér sautján ára gamlan heim- ilisköttinn sem fyrir löngu sagði skilið við tignarlegt kattareðli sitt og endurskilgreindi sig sem spikfeitan malandi púða. Ég afþakkaði pent. Móðir mín saup hins vegar hvelj- ur og sagði mér sögu af föðurbróð- ur mínum sem vaknaði upp með mús á bringunni. Akkúrat það sem ég þurfti að heyra. Með læsta svefnherbergishurð leið nóttin hjá en meindýraeyðir var mættur inn á gafl til okkar snemma næsta morguns. Sökudólgurinn steig á límborða stuttu síðar og var hand- samaður. „Ég ætla að setja nokkra slíka borða,“ sagði bjargvættur minn og bætti við; „því að það er aldrei að vita nema að hún hafi komið sér fyrir. Eigi jafnvel fjölskyldu. Nokkrar mýs geta orðið að þúsundum á einu ári,“ sagði okkar maður. Akkúrat sem ég þurfti að heyra. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Helgarpistill Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Sunnudagur 24. maí 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Kioka (56:78) 07.08 Ljónið Urri (39:52) 07.18 Kalli og Lóla (12:26) 07.30 Lundaklettur (8:39) 07.37 Sara og önd (5:40) 07.44 Róbert bangsi (19:26) 07.54 Vinabær Danna tígurs 08.05 Hæ Sámur (8:52) 08.12 Elías (8:52) 08.23 Sigga Liggalá (8:52) 08.36 Kúlugúbbarnir (4:26) 09.00 Disneystundin 09.01 Finnbogi og Felix 09.23 Sígildar teiknimyndir 09.30 Fínni kostur (19:20) 09.52 Millý spyr (15:78) 09.59 Unnar og vinur (25:26) 10.25 Bækur og staðir (Simma-sjoppa, Suðurgötu) e 10.35 Eurovision 2015 (Úrslit) e 14.10 Friðarsinninn Benja- min Britten e 15.55 Kammersveit Reykja- víkur á Listahátíð 2014 17.10 Táknmálsfréttir 17.20 Kalli og Lóla (13:26) 17.32 Sebbi (24:40) 17.44 Ævintýri Berta og Árna (27:52) 17.49 Tillý og vinir (16:52) 18.00 Stundin okkar (6:28) e 18.25 Heillandi hönnun (1:8) 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir (44) 19.35 Veðurfréttir 19.40 Ferðastiklur (4:8) (Skagi - Austur- Húna- vatnssýsla) 20.40 Öldin hennar (21:52) 20.45 Flóttinn yfir Mið- jarðarhafið (1:2) (Með lífið að veði) Ný íslensk heimildarmynd í tveim- ur hlutum. Í lok mars sigldu dagskrárgerðar- mennirnir Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson með varðskipinu Tý um Miðjarðarhaf. Tilgangur- inn var safna upplýsing- um um þann gríðarlega fjölda flóttamanna sem reynir að komast yfir hafið frá Afríku til Evrópu í leit að betra lífi. Rætt er við flóttamenn, björgunarfólk og hjálp- arstarfsmenn. 21.15 Baráttan um þunga- vatnið (3:6) (Kampen om tungtvannet) Norsk spennuþáttaröð um kjarnorkuvopnaáætl- un Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni og skemmdarverk á þungvatnsbirgðum Norðmanna til að koma í veg fyrir að Hitler tækjust áform sín. 22.05 Brytinn 7,1 (The Butler) Sannsöguleg mynd sem sýnir jafnréttis- baráttu blökkumanna, Víetnamstríðið og fleiri áhrifavalda og sögulega viðburði með augum þjóns, sem vann í Hvíta húsinu um rúmlega 30 ára skeið. Aðalhlutverk: Forest Whitaker, Oprah Winfrey og John Cusack. Leikstjóri: Lee Daniels. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. 00.15 Svefngengill 6,3 (Sleepwalking) Átak- anleg mynd um unga stúlku sem móðirin yfir- gefur. Frændi stúlkunnar tekur hana að sér og þau styðja hvort annað í því að finna lífinu nýjan farveg. Aðalhlutverk: Charlize Theron, Nick Stahl, AnnaSophia Robb, Dennis Hopper og Woody Harrelson. 02.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 09:50 Barcelona - Deportivo 11:30 Formúla 1 2015 (Formúla 1 2015 - Mónakó) B 14:30 Real Madrid - Getafe 16:10 Goðsagnir efstu deildar 16:45 Meistarad. Evrópu fréttaþáttur. 17:15 Pepsímörkin 2015 18:30 Formúla 1 2015 (Mónakó) 20:50 MotoGP 2015 (Frakkland) 21:50 Kiel - Minden 23:10 UFC Countdown 23:40 UFC Live Events 2015 (UFC 187: Johnson vs. Cormier) 10:40 Swansea - Man. City 12:20 Match Pack 12:50 Enska úrvalsdeildin - upphitun 13:20 Messan 13:50 Chelsea - Sunder- land B 16:00 Markasyrpa 16:20 Enska 1. deildin 2014/2015 (Enska B deildin - Úrslit) B 18:30 Aston Villa - Burnley 20:10 Arsenal - WBA 21:50 Leicester - QPR 23:30 Enska 1. deildin 2014/2015 (Enska B deildin - Úrslit) 13:50 Stoke - Liverpool B 18:35 Friends (17:24) 19:00 Modern Family 19:25 Mike & Molly (11:24) 19:45 The Big Bang Theory 20:10 Viltu vinna milljón? 21:00 Twenty Four (16:24) (4:00 a.m. - 5:00 a.m.) Jack leyfir Amador að sleppa svo hann geti elt hann. Skelfing grípur um sig á hótelinu þegar vírusinn fer að breiðast út. Palmer þarf að ákveða hvort hann muni ljúga til að vernda Sherry. 21:45 Covert Affairs (8:16) 22:30 Rita (7:8) 23:15 Sisters (4:22) 00:00 Viltu vinna milljón? 00:50 Twenty Four (16:24) 01:35 Covert Affairs (8:16) 02:20 Tónlistarmyndb. Bravó 09:00 Tiny Furniture 10:40 The Big Wedding 12:10 Night at the Museum 14:00 Men in Black II (Menn í svörtu 2) 15:30 Tiny Furniture 17:10 The Big Wedding 18:40 Night at the Museum 20:30 Men in Black II (Menn í svörtu 2) Bráðskemmti- leg ævintýramynd frá 2002 með Will Smith og Tommy Lee Jones í aðalhlutverkum. Svartklddu mennirnir eru mættir aftur þegar mannkynið er aftur komið í bráða hættu. 22:00 The Hobbit: The Desolation of Smaug 00:40 True Lies 03:00 Brake 04:35 The Hobbit: The Desolation of Smaug 13:50 Hull - Man. Utd. B 17:35 The Amazing Race 18:20 One Born Every Minu- te UK (10:14) 19:10 Hot in Cleveland 19:35 Last Man Standing 20:05 Bob's Burgers (22:22) 20:30 Amercian Dad (13:18) 20:50 Brickleberry (1:13) 21:15 The Bill Engvall Show 21:40 Saving Grace (18:19) 22:25 The League (13:13) 22:50 The Finder (12:13) 23:35 Bob's Burgers (22:22) 00:00 Amercian Dad (13:18) 00:25 Brickleberry (1:13) 00:50 The Bill Engvall Show (7:10) 01:15 Saving Grace (18:19) 02:00 The League (13:13) 02:25 The Finder (12:13) 03:10 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 06:00 Pepsi MAX tónlist 11:50 The Talk 12:30 The Talk 13:10 Dr. Phil 13:50 Dr. Phil 14:30 Dr. Phil 15:10 Cheers (1:26) 15:35 The Biggest Loser 16:25 The Biggest Loser 17:15 My Kitchen Rules 18:00 Parks & Recreation (17:22) Geggjaðir gamanþættir með Amy Pohler í aðalhlutverki. 18:25 The Office (9:27) Níunda þáttaröðin, og jafnframt sú síðasta, af bandarísku grínþáttun- um The Office. 18:45 Top Gear Best Of (2:2) Einn vinsælasti sjónvarpþáttur í heimi. Að þessu sinni velja þeir félagar brot af því besta úr Top Gear þáttum liðiinnar seríu. 19:45 Gordon Ramsay Ultimate Home Cooking (10:20) Gætir þú hugsað þér betri matreiðslukennara en sjálfan Gordon Ramsay? Meistarakokkurinn tekur þig í kennslustund og hjálpar þér að öðlast raunverulegt sjálfs- traust í eldhúsinu. 20:15 Scorpion (19:22) Sérvitur snillingur, Walter O‘Brien, setur saman teymi með öðrum yfirburðasnill- ingum sem hafa hvert sitt sérsvið. Hópurinn vinnur fyrir bandarísk yfirvöld og leysir óvenju flóknar ógnanir sem er ekki á færi annarra sérfræðinga að takast á við. 21:00 Law & Order (16:23) Spennandi þættir um störf lögreglu og saksóknara í New York borg. 21:45 American Odyssey 7,1 (1:13) Spennandi þáttaröð um alþjóðlegt samsæri sem teygir anga sína víða. Ung kona í bandaríska hern- um kemst yfir leynilegar upplýsingar um banda- rískt fyrirtæki sem aðstoðar hryðjuverka- menn. Í kjölfarið hefst spennandi atburðarás þar sem engum er treystandi. 22:30 Penny Dreadful (4:8) Sálfræðiþriller sem gerist á Viktor- íutímabilinu í London þar sem gamalkunnar hryllingspersónur eins og Dr. Frankenstein, Dorian Gray og Dracula öðlast nýtt líf í þessum þrælspennandi þáttum. 23:15 The Walking Dead (4:16) Þættir sem hafa slegið öll fyrri áhorfsmet áskriftarstöðva í Banda- ríkjunum. Rick Grimes og félagar þurfa að glíma við uppvakninga utanfrá og svikara innanfrá í þessum hrollvekjandi þáttum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma. Báðir hópar lenda í lífshættulegum aðstæðum sem grefur undan samstöðunni. 00:05 Rookie Blue (1:13) 00:55 CSI: Cyber (9:13) 01:40 Law & Order (16:23) 02:25 American Odyssey 03:10 Penny Dreadful (4:8) 03:55 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Strumparnir 07:25 Doddi litli og Eyrna- stór 07:35 Elías 07:45 Skoppa og Skrítla enn út um hvippinn og hvappinn 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Latibær 08:30 Zigby 08:45 Víkingurinn Vic 09:00 Grallararnir 09:20 Kalli kanína og félagar 09:40 Scooby-Doo! Leynifélagið 10:05 Tommi og Jenni 10:25 Ninja-skjaldbökurnar 11:10 Young Justice 11:35 iCarly (26:45) 12:00 Nágrannar 12:20 Nágrannar 12:40 Nágrannar 13:00 Nágrannar 13:20 Nágrannar 13:45 Dulda Ísland (3:8) 14:35 Lífsstíll (2:5) 15:05 Grillsumarið mikla 15:30 Neyðarlínan (2:7) 16:00 Sælkeraheimsreisa um Reykjavík (6:8) 16:30 Matargleði Evu (10:12) 16:55 Mike and Molly (2:22) 17:20 Modern Family (23:24) 17:45 60 mínútur (33:53) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (91:100) 19:10 Hið blómlega bú 3 19:40 Britain's Got Talent 20:40 Mr Selfridge (2:10) 21:30 Mad Men (14:14) 22:20 Better Call Saul (10:10) Glæný og fersk þáttaröð um Saul Goodman sem er best þekktur sem lögfræðingur Walter White í þáttaröðinni Breaking Bad. Í þessum þáttum fáum við að kynnast betur Saul, uppvexti hans og hvaða aðstæður urðu til þess að hann endaði sem verjandi glæpamanna eins og Walters. 23:10 60 mínútur (34:53) Vandaður þáttur í virtustu og vinsælustu fréttaskýringaþáttaröð í heimi þar sem reynd- ustu fréttaskýrendur Bandaríkjanna fjalla um mikilvægustu málefni líðandi stundar og taka einstök viðtöl við heimsþekkt fólk. 23:55 Jinx: The Life And Deaths Of Robert Durst (1:6) Nýir og vandaðir heimildar- þættir þar sem kafað verður ofan í líf og feril bandaríska auðjöfursins Roberts Durst. Hann hefur verið sakaður um þrjú morð en sekt hans hefur aldrei verið sönnuð. Morðmálin eru enn óleyst. Eiginkona Roberts hvarf sporlaust og er enn ófundin. Ro- bert Durst hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu. Í þáttunum koma fram upplýsingar sem aldrei hafa komið upp á yfirborðið áður. 01:00 Game Of Thrones 01:55 Vice (10:14) 02:30 Daily Show: Global Edition (17:41) 02:55 Backstrom (10:13) 03:40 Rumor Has It 05:15 Hið blómlega bú 3 05:45 Fréttir 58 Menning Sjónvarp dv.is/blogg/skaklandid Stefán Bergsson skrifar Skáklandið Í slandsmótið í skák er í fullum gangi í Hörpu. Í dag, fimmtudag, verður áttunda umferð tefld en mótið klárast svo á sunnudaginn með elleftu og síðustu umferð. Mótið hefur sjaldan verið jafn sterkt og þátttaka þeirra Jóns L. Árnasonar og Jóhanns Hjartarsonar mörgum skákáhugamanninum mikið gleði- efni. Þeir félagar hafa átt sína spretti en æfingaleysi þeirra einkennir þó heildarbraginn á taflmennsku þeirra. Jóhann hefur merkilegt nokk ekki gert neitt jafntefli, að- eins unnið eða tapað. Í fimmtu um- ferð má segja að hann hafi galopn- að Íslandsmótið með góðum sigri á Hannesi Hlífari Stefánssyni. En í kjölfarið hafa fylgt tvö töp. Minni spámenn flokksins hafa veitt stór- meisturunum þónokkuð margar skráveifur. Sigurður Daði Sigfússon vann Jóhann, Einar Hjalti Jensson lagði Henrik Danielsen og Lenka Ptacnikova hefur náð hreint undra- verðum árangri gegn stórmeistur- unum en hún er með 2.5 vinning af þremur gegn Hannes Hlífar, Hjörvar Steini Grétarssyni og Henrik!! Hreint ótrúlegt en kemur sossum ekki svo á óvart þegar litið er til þess að Lenka býr yfir gríðarlega góðum skilningi á skák og leggur mikla baráttu í hverja einustu skák. Hjörvar Steinn og Héðinn Stein- grímsson eru þeir skákmenn sem hafa sýnt mestan stöðugleika í mótinu og leiða með 5,5 vinning af 7 mögulegum, 1,5 vinningi á undan Hannesi Hlífari sem er þriðji. Næstu skákir verða afar spennandi og ljóst að baráttan stendur milli Hjörv- ars og Héðins. Svo skemmtilega vill til að þeir mætast einmitt í síðustu umferðinni í skák, sem að öllum líkindum verður hrein úrslitaskák um Íslandsmeistaratitilinn. Hann er ansi verðmætur því með honum tryggir Íslandsmeistarinn sér auk verðlaunafjár sæti í landsliði Íslands og rétt til þátttöku á Evrópumóti einstaklinga á næsta ári. n Spennandi Íslandsmót

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.