Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 60
Helgarblað 22.–26. maí 201560 Fólk GleðileGt sumar 12” til 24” barnareiðhjól, verð frá kr. 25.900,- Frábært úrval reiðhjóla og aukahluta • Mikið úrval af reiðhjólahjálmum Focus Whistler 4.0 29“ ál stell-Tektro Auriga Vökvabremsur- Shimano Deore Afturskiptir- 27 gíra. Kr.119.000 Focus raVeN rooKie DoNNa 1.0 26“ ál stell-Promax V-Bremsur-Shimano 21 gíra Focus raVeN rooKie 1.026“ ál stell-Promax V-Bremsur- Shimano 21 gíra Kr.69.900Kr.69.900 Dalshraun 13 220 Hafnarfjörður Sími:565 2292 Urðu heimsfræg í kjölfar Eurovision n Keppnin hefur verið stökkpallur fyrir suma n Celine Dion stærsta nafnið n Aðrir falla í gleymsku E urovision, eða Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, er haldin í sextugasta skiptið nú í ár og því ansi margar þjóðir sem hafa fagnað sigri í keppninni. Fæstir muna eftir flytjendum sigurlaganna frá ári til árs, enda heyrist oft ekki mikið frá þeim á alþjóðavísu eftir keppnina, þó að þeir séu kannski þekktir í heimalandi sínu. Eurovision hefur þó verið stökkpallur fyrir nokkra einstaklinga sem hafa náð heimsfrægð eftir keppnina. Hér eru nokkur nöfn sem flestir þekkja. n Abba Sænska hljómsveitin Abba samanstend- ur af þeim Benny Anderson, Ann-Frid Lyngstad, Agnethu Fältskog og Björn Ulvaeus. Þau unnu Eurovision-keppnina árið 1974, með laginu Waterloo, og var það fyrsta skipti sem Svíar fóru með sigur af hólmi. En lagið er innblásið af glysrokk senunni í Bretlandi. Abba er sú hljómsveit sem hefur átt hvað mestum vinsældum að fagna eftir þátttöku í keppninni og það má með sanni segja að hún hafi hitt í mark með Waterloo, sem fjallar lauslega um ósigur Napóleóns í orrustunni við Waterloo í Belgíu árið 1815. En það var þó líklega ekki sagnfræðilegur texti sem heillaði Evrópu- búa á sínum tíma, heldur grípandi laglínan sem enginn kemst hjá að fá á heilann eftir fyrstu hlustun. Abba var starfandi í tíu ár, frá 1972 til 1982, og á þeim tíma seldi hljómsveitin yfir 380 milljónir platna um allan heim og voru ítrekað á toppi vinsældalista víða um heim á árunum 1975 til 1982. Johnny Logan Það eru kannski færri sem kannast við hinn írska Johnny Logan, en hann náði þó nokkrum vinsældum eftir að hafa sigrað í Eurovision. Enda gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í keppninni tvisvar og er eini þátttakandinn í sextíu ára sögu Eurovision sem getur státað af því. Logan sigraði í keppninni í fyrra skiptið árið 1980 með laginu What‘s another year. Seinna skiptið var árið 1987 og þá með laginu Hold me now, sem þykir eitt besta Eurovision-lag allra tíma. Þá samdi hann sigurlag Íra árið 1992, Why me? sem Linda Martin flutti. Hann er því einn af þeim tónlistarmönn- um sem hafa verið viðloðandi Eurovision gegnum tíðina. Logan hefur verið mjög virkur sem tónlistarmaður og á ferlinum hefur hann sent frá sér hvorki meira né minna en 40 smáskífur og 19 plötur sem selst hafa víða um veröld. Celine Dion Kanadíska söngkonan Celine Dion keppti fyrir hönd Sviss árið 1988 með laginu Ne partez pas sans moi og bar sigur úr býtum. Hér er um að ræða söngkonu sem hefur án nokkurs vafa náð lengst af öllum þeim flytjendum sem tekið hafa þátt í Eurovis- on. En hvort þátttaka hennar í keppninni var sá stökkpallur sem hún þurfti skal látið ósagt. Hjólin fóru þó að snúast af alvöru hjá henni í tónlistinni skömmu eftir sigurinn og flestir vita hvernig það fór. Dion er án nokkurs vafa sú söngkona sem hefur haft hvað mest áhrif á popp- söngkonur síðari ára og rödd hennar þykir einstök. Hver man ekki eftir titillagi myndarinnar Titanic, My heart will go on, sem grætti hörðustu karlmenni í lok tíunda áratugarins? Dion er í hópi söluhæstu tónlistarmanna allra en tíma, en einstaka plötur hennar hafa selst í yfir 200 milljónum eintaka. Carola Sænska söngkonan Carola Häggkvist náði sér töluvert á strik eftir að hafa unnið Eurovision-keppnina árið 1991 með laginu Fangad av en stormvind. Hún varð til að mynda fyrsti skandinavíski popptónlistar- maðurinn til að troða upp í Kína, árið 1992, en talið er að um 600 milljónir manna hafi þá fylgst með henni í sjónvarpinu. Í kjölfarið sendi hún svo frá sér plötu í Kína. Í seinni tíð hefur Carola fært sig yfir í kristi- lega og gospeltónlist og átt töluverðum vinsældum að fagna sem slík í Evrópu. Carola tók reyndar fyrst þátt í Eurovision árið 1983 og lenti þá í þriðja sæti. Árið 2006 tók hún aftur slaginn fyrir hönd Svíþjóðar með lagið Invincible og lenti í fimmta sæti. Hörkusöngkona þarna á ferð og sannkölluð Eurovision-stjarna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.