Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 62
62 Fólk Helgarblað 22.–26. maí 2015
Komdu
til oKKar
...Eða leigðu lyftu og
gErðu við bílinn sjálf/ur
auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562
Við gerum
Við bílinn
faglegar
Viðgerðir
Vanur þVí að Vera einn
n Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson eignaðist sitt fjórða barn á dögunum
Þ
að er mjög erfitt að vera ekki
alltaf hjá honum en ég flutti
upp á Skaga til að geta verið
nær honum og við hittumst
daglega,“ segir knattspyrnu
maðurinn Garðar Gunnlaugsson
sem eignaðist sitt fjórða barn þann
2. apríl.
Skilinn við barnsmóðurina
Elsti strákurinn er tólf ára, næsti tíu
og eina stelpan í hópnum er átta ára.
Það má því segja að Garðar sé að
safna í heilt knattspyrnulið. „Stóru
systkinin eru mjög stolt af þeim litla.
Hektor, sem er tíu ára, býr hjá mér
og reynir að hitta litla bróður sem
allra mest líka. Sá litli er skemmti
leg blanda af okkur foreldrunum. Ég
var með dökkt hár þegar ég var lítill
og var með hár og mamma hans var
líka með alveg svart hár þegar hún
fæddist.“
Litli strákurinn hefur fengið
nafnið Baltasar Torfi Bergmann en
Garðar og barnsmóðir hans, Alma
Dögg Torfadóttir, hættu saman á
meðgöngunni. „Auðvitað er dá
lítið skrítið að vera ekki saman
þegar barnið er svona lítið en við
erum búin að gera þetta í mikilli
sameiningu. Ég var viðstaddur
fæðinguna og hjálpaði til þar. Ég
var svo hjá henni fyrstu vikuna og
flutti skömmu eftir það aftur upp
á Skaga svo ég gæti verið til staðar
fyrir þau eins mikið og ég get,“ segir
Garðar sem hafði komið sér vel fyrir
í Reykjavík þar sem hann hafði búið
í rúmt ár.
Dóttirin í Búlgaríu
Garðar segir Hektor alsælan að vera
fluttur aftur á Akranes. „Þetta er ein
faldara fyrir okkur, hér eru foreldrar
mínir og liðið sem ég spila með.
Okkur líður rosalega vel hérna og
eins og gefur að skilja er miklu meira
frjálsræði hér en í 101. Ætli ég sjái
Hektor ekki í svona 20 mínútur á
dag. Hann er úti að leika sér allan
daginn, svona eins og maður var
sjálfur á þessum aldri.“
Fyrrverandi eiginkona Garðars,
ísdrottningin Ásdís Rán, var að flytja
aftur til Búlgaríu með Viktoríu dóttur
þeirra. „Ég skutlaði þeim út á flug
völl og það var alveg svakalega erfitt
að kveðja hana. Við Hektor erum
búnir að safna fyrir ferð í október.
Hann tekur virkan þátt í söfnun
inni og leggur fyrir dósapeninga og
afmælis peningana sína. Maður er að
reyna að kenna honum réttu gildin;
að peningar vaxi ekki á trjánum.“
Leitar ekki að kærustu
Garðar er þessa dagana að velta
fyrir sér framtíðinni. „Ég er svona
að skoða hvað ég vil gera og er að
spá í að skrá mig í nám í haust. Ég
á svo lítið eftir í viðskiptafræðinni
og er jafnvel að hugsa um að bæta
við smá áherslu á ferðamál inn
í námið. Það væri mjög gaman,“
segir Garðar sem hefur staðið sig
vel í boltanum það sem af er sum
ars. „Liðinu hefur gengið mjög
vel og sjálfur er ég kominn með
tvö mörk í þremur leikjum,“ segir
hann og bætir við að hann eigi
nóg inni sem fótboltamaður. „Ég
er að vona að mér takist að leika
leik með Hektori en hann æfir á
fullu. Það er alveg raunhæft. Það
væri gaman að fá að spila með
honum. Hann er að standa sig svo
vel og býr yfir mun meiri tækni en
ég gerði á hans aldri, eins og svo
margir krakkar í dag sem geta æft
fótbolta allt árið.“
Aðspurður segist hann ekki vera
að leita að kærustu. „Eflaust kemur
að því að mig langi að eignast mína
fjölskyldu en eins og staðan er í dag
þá líður mér mjög vel. Ég er orðinn
vanur því að vera einn svo ég er
ekki að leita. Ég er bara rólegur, en
svo veit maður náttúrulega aldrei
hvenær ástin bankar upp á.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Ég er bara rólegur,
en svo veit maður
náttúrulega aldrei hvenær
ástin bankar upp á.
Flottir feðgar
Garðar og yngsti
sonurinn. MynD Jón
Gunnar MýrDaL
Saknar
dótturinnar
Viktoría dóttir
Garðars er flutt
út til Búlgaríu
með móður sinni,
ísdrottningunni
Ásdísi Rán.
Skírn Yngsti
sonur Garðars
heitir Baltasar
Torfi Bergmann.
ríkidæmi Garðar
á fjögur börn. Á
myndina vantar
elsta soninn.