Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 47
Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands/FSN SÉRFRÆÐINGUR Í LYFLÆKNINGUM Laus er til umsóknar staða sérfræðings í lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina og starfið gæti hentað 2-3 læknum að deila með sér. Staðan veitist frá 1. júní 2016 eða eftir nánara samkomulagi. FJARÐABYGGÐ ER ÁKJÓSANLEGUR KOSTUR JAFNT Í STARFI OG LEIK: Læknateymið Sérfræðingur í lyflækningum myndar ásamt skurðlækni, svæfingalækni, deildarlækni og heimilislækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT-tæki, ómtæki af nýjustu gerð og rannsóknarstofan er góð. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræði- þjónustu í nærumhverfinu. Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag: leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verkmenntaskóli. Spölkorn er í næsta menntaskóla yfir á Fljótsdalshéraði. Vegalengdir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt. Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er bæði fjölbreytt og fjörugt, hvort sem um er að ræða fótbolta, blak, sund, hestamennsku eða karate. Oddskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði. Æfingagjöld barna þykja hér hagstæðari en víða annars staðar. Samgöngur Ný Oddskarðsgöng munu gjörbylta samgöngum í Fjarðabyggð. Þau opna á næsta ári. Egilsstaðaflugvöllur er í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð. Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað. Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingarþjónustu og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfingalækn- ir, skurðlæknir og deildarlæknir á FSN. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, og það er hlekkur í þjónustu keðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum: heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk FSN sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar 11 talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 1. MAÍ 2016. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðn- ingar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Nánari upplýsingar veita Kristín B. Albertsdóttir, forstjóri, s. 470-3050, kba@hsa.is, Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, petur@hsa.is, Jón H. H. Sen, forstöðulæknir, s. 840-4144, jon@hsa.is og Emil Sigurjónsson mannauðsstjóri, s. 470 3053 og 895 2488, netf. emils@hsa.is. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ Helstu verkefni og ábyrgð eru þátttaka í daglegri læknisþjónustu á deildum umdæmissjúkrahússins og heilsugæslunnar þar. Þetta felur í sér m.a vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega samvinnu (teymisvinnu). HÆFNIKRÖFUR Fullgild sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsókn- um frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Lj ós m . E ÞK

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.