Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 34
194 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
yngra fólk í að leita til læknis og fá að
taka þátt í skimuninni eða óska beint eftir
ristilspeglun. Ennfremur er rétt að taka
fram að í næstu skrefum verður skimun-
arhópurinn stækkaður niður á við í aldri
þannig að þeir sem eru 50-60 ára munu
bætast við á næstu árum. Það er heldur
ekki meitlað í stein að þetta verði eina að-
ferðin sem beitt er.“
Ristilkrabbamein er illvígur sjúkdóm-
ur ef hann kemst á ákveðið stig að sögn
Sunnu og því er gríðarlega mikilvægt að
greina hann sem fyrst. Sjúkdómnum er
skipt upp í fjögur stig og á fyrstu tveimur
stigunum eru líkur á bata mjög góðar ef
tekst að greina sjúkdóminn í tíma. „Sepa-
myndun í ristli er eitt af einkennunum
en það eru ekki allir separ forstig krabba-
meins. Ef um er að ræða krabbameins-
valdandi frumubreytingar í sepum þróast
sjúkdómurinn á sirka 10 árum í ífarandi
krabbamein. Það hefur sýnt sig að lifun er
algerlega háð því á hvaða stigi sjúkdómur-
inn greinist. Á stigi eitt eru 93% líkur á að
hægt sé lækna sjúklinginn. Á stigi tvö eru
líkurnar 50-70% og verða hverfandi litlar á
þriðja og fjórða stigi þegar sjúkdómurinn
hefur þróast yfir í meinvörp.“
Fjölskyldusagan er mikilvæg
„Það er einnig mjög mikilvægt að fólk sé
meðvitað um fjölskyldusögu og ef einstak-
lingur hefur átt foreldra eða nána ættingja
sem fengið hafa ristilkrabbamein er það
alltaf klínísk ábending fyrir ristilspeglun.
Þessi einstaklingur á ekki að bíða eftir að
verða sextugur og fá þá senda hægðaprufu
heldur á hann að fara í skimun með
ristilspeglun 10 árum yngri en náinn ætt-
ingi var við greiningu ristilkrabbameins-
ins. Skilgreiningin á þeim sem er að fara í
skimun með FIT-hægðaprófi er að einstak-
lingurinn sé í svokallaðri meðaláhættu,
það er einkennalaus og á áhættualdri – leit
með hægðaprófi er endurtekin á tveggja
ára fresti hjá markhópi. Ef um er að ræða
fjölskyldusögu er hann með aukna áhættu
þó engin einkenni séu til staðar.“
Ristilkrabbamein er mjög lúmskur
sjúkdómur og einkennin geta leynt á
sér. „Helstu einkennin eru viðvarandi
breytingar á hægðalosun, tregða eða
niðurgangur sem varir vikum saman og er
eitthvað sem sjúklingurinn hefur ekki haft
áður. Blóð í hægðum án augljósra skýringa
þarfnast skoðunar og ristilspeglunar, mælt
er með að allar blæðingar frá endaþarmi
séu teknar alvarlega. Blóðleysi af óþekktri
orsök er einnig ábending og getur stafað
af blæðingum ofarlega í ristli sem skilar
sér í dökkum eða svörtum hægðum. Kvið-
verkir eða krampar í kvið sem sjúklingur
hefur ekki haft áður eru einnig ábending
og hnútur eða fyrirferð í kvið kallar á
tafarlausa skoðun. Þyngdartap og þrek-
leysi geta einnig verið ábending en aðeins
eitt af ofantöldum atriðum er nægileg
ábending um að rétt sé að leita til læknis.“
Sunna segir að lokum að tíminn til
áramóta verði vonandi nýttur til að undir-
búa verkefnið sem best áður en kemur
að sjálfri skimunni með útsendingu
FIT-prufanna og í kjölfarið úrvinnslu
þeirra. „Vinnan við uppsetningu gagna-
grunnanna svo allt verði tilbúið til mót-
töku sýnanna er verkefni þessa árs.“
FÖS T UDAG UR 8 . A PR Í L
Silfurberg
08:30
Setning: Kári Hreinsson, formaður SGLÍ
09:00-12:00
Málþing um líffæraígræðslur
Fundarstjórar: Helgi Kjartan Sigurðsson
og Kári Hreinsson
Kaldalón
12:00-13:00 Hádegisverðarfundur:
Nýjungar í verkjameðferð á Íslandi
Fundarstjóri: Kári Hreinsson
Ríma A og B
13:00-14:30 VÍSINDAERINDI
Fundarstjórar: Jórunn Atladóttir og
Ásgeir Thoroddsen
15:00-16:00 VÍSINDAERINDI
Fundarstjórar: : Þorbjörg Sigurðardóttir
og Fritz Berndsen
Kaldalón
13:00-14:30 VÍSINDAERINDI
Fundarstjórar: Gunnar Mýrdal Einarsson
og Sigurbjörg Skarpbéðinsdóttir
15:00-16:00 VÍSINDAERINDI
Fundarstjórar: Sigurbergur Kárason
og Edda Vésteinsdóttir
16:10-17:00 Veggspjaldakynning
Fundarstjórar: Eiríkur Jónsson
og Gísli H Sigurðsson
L AUG A RDAG UR 9 . A PR Í L
Kaldalón
09:00-11:45
Málþing: Botnlangabólga
Fundarstjórar: Jórunn Atladóttir og Elsa B Valsdóttir
Stemma
08:30-12:10
Málþing: Day case anaesthesia and surgery
Fundarstjórar: Sveinn Geir Einarsson og Sigurbjörg
Jóhanna Skarphéðinsdóttir
Vísa
09:00-11:45
Málþing: Nýjungar í fæðinga- og kvensjúkdóma-
lækningum
Fundarstjóri: Helga Medek
Ríma A
08:30-12:10
Málþing á vegum Fagdeildar
skurðhjúkrunarfræðinga
Fundarstjórar: Helga Hallgrímsdóttir
og Kristín Hlín Pétursdóttir
Ríma B
08:30-12:00
Málþing: Mörg andlit svæfingahjúkrunar
Fundarstjórar: Sigurveig Björgólfsdóttir
og Þórhildur Þórisdóttir
Kaldalón
12:15-13:00
Heiðursfyrirlestur: From Ice to Spice
Andri Wilberg Orrason og Ása Steinarsdóttir
Kaldalón
13:00-14:30
Besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema
14:30 Þingi slitið
19:30 Hátíðarkvöldverður á Hótel Borg
Sameiginlegt vísindaþing í Hörpu 8. og 9. apríl
Skurðlæknafélag Ísland, Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag Íslands, Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Fagdeildir svæfinga- og skurðhjúkrunafræðinga halda: