Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 13
LÆKNAblaðið 2016/102 173
SLL á árunum 2003-2013, eða að meðaltali 14,6 á ári (mynd 1). Ár-
legt nýgengi var að meðaltali 4,55/100.000 en aldursstaðlað árlegt
nýgengi var 3,00/100.000.17 Þegar hópnum var skipt niður eftir
kyni var nýgengi meðal karla á tímabilinu 6,14/100.000 en með-
al kvenna 2,95/100.000. Meðalaldur við greiningu CLL var 70,9 ár
fyrir allan hópinn (miðgildi 71,2 ár), en 69,7 ár hjá körlum og 73,4
ár hjá konum (p=0,064). Gögn um sjúklinga í rannsóknarhópnum
komu frá blóðmeinafræðideild Landspítala (n=134), Krabbameins-
skrá (n=133) og Læknasetrinu (n=62) en flestir sjúklingar voru á
skrá hjá bæði blóðmeinafræðideild og Krabbameinsskrá (mynd 2).
Sjúklingar með greininguna CLL voru alls 142 (88,2%) en 19
(11,8%) fengu greininguna SLL á vefjasýni. Af rannsóknar hópnum
voru 133 (82,6%) skráðir í Krabbameinsskrá, en skrána skorti upp-
lýsingar um 28 sjúklinga (17,4%). Aðeins einn af þeim 28 sjúk-
lingum sem ekki fundust á lista Krabbameinsskrár hafði fengið
CLL-greiningu með rannsókn vefjasýnis, en 25 höfðu greinst með
frumuflæðisjárrannsókn og tveir með beinmergsstroki.
Kannað var með hvaða hætti CLL-greining sjúklinga var
staðfest. Í rannsóknarhópnum var greining staðfest með flæði-
sjárrannsókn hjá 134 (83,2%) en gerð var vefjarannsókn (á bein-
merg og/eða eitilvef) hjá 114 (70,8%). Í 8 tilfellum af þessum 114
var ekki hægt að staðfesta CLL út frá vefjasýninu sem tekið var.
Sjúkdómurinn var þá staðfestur með öðrum aðferðum, oftast með
flæðisjárrannsókn. Fyrsta greining var gerð með flæðisjárrann-
sókn hjá 76 sjúklingum, með vefjagreiningu og flæðisjárrannsókn
hjá 49 sjúklingum en eingöngu var gerð vefjagreining hjá 29 sjúk-
lingum (mynd 3). Ef vefjagreining og flæðisjárrannsókn voru gerð-
ar með minna en 10 daga millibili, var hvort tveggja skilgreint sem
fyrsta greining. Í fáum tilvikum virtist greining gerð einungis með
mergstroki (n=6) eða blóðstroki (n=1).
Sjúkraskrár voru rýndar til þess að afla upplýsinga um sjúk-
dómseinkenni/-teikn við greiningu (tafla I). Upplýsingar um sjúk-
dómseinkenni fundust fyrir 151 sjúkling (93,8%), þar af voru ein-
kenni hugsanlega tengd CLL til staðar hjá 67 (44,4%) en ekki hjá 84
einstaklingum. B-einkenni (hiti, megrun, nætursviti) voru til stað-
ar hjá 29 (19,2%). Tafla II sýnir niðurstöður helstu blóðrannsókna
hjá rannsóknarhópnum við greiningu. Upplýsingar um fjölda
eitilfrumna í blóði við greiningu fundust hjá 152 (94,4%) sjúkling-
um og var meðalfjöldi eitilfrumna 20,6x109/L (miðgildi 10,7x109/L).
Áhættustigun á borð við Rai/Binet eru enn víða notuð við mat
á sjúkdómsstigi CLL. Upplýsingar um eitla- eða miltisstækkun,
eitilfrumutalningu og blóðhag úr sjúkraskrá voru notaðar til þess
að reikna út Rai-stig fyrir sjúklinga þýðisins. Nægar upplýsingar
fengust til útreiknings Rai-stigs fyrir 133 af 142 CLL sjúklingum,
en 19 höfðu SLL (tafla III). Flestir CLL-sjúklinga höfðu lágt Rai-stig
(stig 0, n=72) en færri meðalhátt (stig 1-2, n=21) eða hátt Rai-stig (stig
3-4, n=40) við greiningu.
R A N N S Ó K N
Mynd 3. Aðferð við fyrstu greiningu CLL.
Mynd 2. Rannsóknarhópurinn. Upplýsingar um sjúklinga greinda með CLL/SLL á
tímabilinu fengust frá Krabbameinsskrá (n=133), blóðmeinafræðideild Landspítala
(n=134) og Læknasetrinu í Mjódd (n=62).
Tafla II. Niðurstöður blóðrannsókna við greiningu. Viðmiðunargildi voru fengin úr
þjónustuhandbók rannsóknarsviðs Landspítala.
Meðal-
tal
Mið-
gildi
Lægsta
gildi
Hæsta
gildi
Viðmiðunar-
gildi
Hvít blóðkorn (x109/L) 27,0 16,2 4,4 537,6 4,0-10,5
Hemóglóbín
(g/L)
Karlar 136,8 139 65 181 134-171
Konur 132,4 134 90 161 118-152
Blóðflögur (x109/L) 219 219 25 389 150-400
Eitilfrumur (x109/L) 20,9 10,1 0,4 526,0 1,1-4,0
Albúmín (g/L) 41 42 28 51 34-45
Kreatínín (µmól/L) 91 84 47 377 60-100
Þvagsýra (µmól/L) 368 359 170 684 180-480
Laktat dehýdrógenasi (U/L) 244 198 38 861 105-205
Tafla III. Útreiknað Rai-sjúkdómsstig 133 sjúklinga með CLL og tími að með-
ferð. Ekki var tölfræðilegur munur á meðaltíma að meðferð hjá sjúklingum með
meðalhátt eða hátt stig, en þeir sem höfðu lágt Rai-stig við greiningu CLL fengu
lyfjameðferð marktækt síðar (p=0,01).
Rai
stig
Lýsing stigs Fjöldi
sjúklinga
Áhætta
Rai-stigs
Meðaltími að
meðferð (ár)
Stig 0 Fjölgun eitilfrumna 72 Lág 2,5
Stig 1 Fjölgun eitilfrumna +
stækkaðir eitlar
16
Meðalhá 0,5
Stig 2 Fjölgun eitilfrumna +
stækkað milta/lifur
5
Stig 3 Fjölgun eitilfrumna +
rauðkornafæð
25
Há 0,9
Stig 4 Fjölgun eitilfrumna +
blóðflögufæð
15