Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 41
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
birtingarmyndin ólík. Spurningin um
lögleiðingu kannabis kemur oft fram. Í því
samhengi hefur verið bent á að með því að
lögleiða efnið og þannig draga úr glæpum
tengdum sölu efnisins myndi kostnaður
samfélagsins vegna heilsuspillandi áhrifa
þess aukast með aukinni almennri neyslu.
Þetta er því flókið mál.“
Á vefsíðunni má lesa um áhrif kanna-
bis á lungun og Arnar segir erfitt að skilja
á milli kannabis og tóbaks í því efni.
„Kannabisreykingar hafa áhrif á
lungun og þó er erfitt að skilja á milli
áhrifa kannabis og tóbaks þar sem lang-
flestir sem reykja kannabis reykja líka
tóbak og þessum efnum er líka yfirleitt
blandað saman. Kannabis getur valdið
berkjubólgu í lungum og mörg skaðlegu
efnin í kannabis eru þau sömu og í tóbaki.
Langvinn lungnateppa og lungnakrabba-
mein er þekkt meðal kannabisnotenda en
það hefur reynst mjög erfitt að greina á
milli áhrifa tóbaksins og kannabisefnanna.
Líklega eru áhrif þess ekki jafnmikil og
tóbaks.“
Kannabis sem lyf
„Notkun kannabisefna sem lyfs er einnig
mikið í umræðunni og má gróflega skipta
því í tvo flokka. Annars vegar er kanna-
bis reykt og hins vegar hefur verið búið
til lyf úr kannabis með því að einangra
kannabínóðan THC. Það er tekið í töflu-
eða úðaformi og fólk ruglar þessu tvennu
oft saman þegar talað er um kannabis sem
lyf. Rannsóknirnar sem hafa verið gerð-
ar á þessum efnum eru ekki sérstaklega
sannfærandi. Flestar hafa rannsakað áhrif
þess á ógleði í kjölfar krabbameinslyfja-
meðferðar og á langvinna verki. Engin
samanburðarrannsókn hefur verið gerð
á kannabínóðum og nýrri ógleðistillandi
lyfjum. Rannsóknir á gagnsemi þess að
reykja kannabis við ógleði og uppköst-
um eru illa gerðar og ekki hægt að draga
ályktun út frá þeim. Tilfellum hefur verið
lýst þar sem kannabis hefur verið gagnlegt
sem viðbótarmeðferð fyrir krabbameins-
sjúklinga en ekki eitt og sér við aukaverk-
unum krabbameinslyfja. Að mínu mati
þyrfti að rannsaka þetta mun betur til að
hægt sé að mæla með því sem meðferð.“
Arnar segir textann á síðunni vera í
stöðugri endurskoðun eftir því sem upp-
lýsingar bætast við.
„Grunntextinn liggur á síðunni og ég
mun í samstarfi við hópinn sem stendur
að þessu reyna að fylgjast með nýjustu
rannsóknum á þessu sviði og bæta við
upplýsingum eftir því sem þær koma
fram. Síðan hef ég verið beðinn að koma
í skóla, bæði félagsmiðstöðvar og fram-
haldsskólana, og ræða þetta við nemendur
og það er alveg sjálfsagt eftir því sem ég
hef tíma og tök á. Ég hef ánægju af því.
Langflestir taka mjög vel í þetta og þó ég
hafi fengið einstaka neikvæð skilaboð á
facebook er varla ástæða til að gera veður
útaf því. Hugmyndin er sú að heilbrigðis-
starfsfólk og í rauninni allir sem telja sig
þurfa á upplýsingunum að halda geti nýtt
sér síðuna. Ég viðurkenni að mér finnst
erfitt að einfalda hlutina mjög og kannski
er textinn á köflum full fræðilegur en þá
eru allar ábendingar vel þegnar.“
„Staðreyndin er einfaldlega sú að við erum að sjá ungt fólk leggjast inn á geðdeild með geðrof sem rekja má til kannabisneyslu,“ segir Arnar Jan Jónsson sem hefur unnið efnið á vef-
síðunni kannabis.is
LÆKNAblaðið 2016/102 201