Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2016/102 193 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R sem ég framkvæmdi meðal meltingar- lækna hér og fékk 75% svarhlutfall, leiddi í ljós að þeir vildu allir skima en vildu að leitin færi fram með ristilspeglun en ekki með hægðaprufu. Það er hins vegar dýrt að ristilspegla og skimun með þeirri að- ferð fyrir markhópinn sem um ræðir (allir Íslendingar á aldrinum 50-75 ára) er nán- ast óframkvæmanleg af þeim ástæðum. Einnig skiptir máli að líklegast eigum við ekki nægilega marga sérfræðinga á þessu sviði til að anna slíkri skimun. Landlækn- ir mælti með að þrengja aldurshópinn í fyrstu skimun í 60-69 ára en það eru engu að síður 32.000 einstaklingar. Reynsla erlendis frá af skimun með ristilspegl- un hefur einnig leitt í ljós að aðeins um 20% þeirra sem kallaðir eru skila sér, en hins vegar eru heimtur allt að 70% þegar skimað er með FIT-hægðaprufu. Við vitum auðvitað ekki fyrirfram hvernig svörunin verður hér en yfirleitt er þátt- tökuhlutfall gott í rannsóknum og hóp- leitum hér á landi. Mitt faglega mat var að skimun með hægðaprufu væri hentugasta leiðin til að standa að þessu hér á Íslandi, líklegri til góðrar þátttöku og til að finna þá einstaklinga sem þarf að sinna fljótt. Þessi leið hefur einnig verið valin í ná- grannalöndum okkar, Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi. Reynsla þeirra er sú að þessi skimun leitar mjög mark- visst að þeim sem eru í brýnni þörf fyrir ristilspeglun. Í Bandaríkjunum hefur tíðk- ast að ráðleggja ristilspeglun en ekki hef- ur verið um formlega innköllun að ræða. Það er hins vegar mjög dýrt að senda alla í ristilspeglun þegar fyrirfram er vitað að flestir þurfa í rauninni ekki á slíkri rann- sókn að halda. Kosturinn við ristilspeglun er svo aftur sá að með henni er hægt að gera hvorttveggja, greina forstigseinkenni sjúkdómsins og um leið er hægt að fjar- lægja sepa og senda í rannsókn. Hún er því bæði greiningarleið og fyrirbyggjandi aðgerð. Ristilspeglun er þó ekki óbrigðul aðferð og ekki með öllu hættulaus. Á hinn bóginn er hægðaprófið ekki heldur óbrigðul greiningaraðferð því vitað er að sumar forstigsbreytingar blæða ekki og þá mun skimunin ekki ná til þeirra einstak- linga. Hægðapróf er líklegra til að greina krabbamein en litla sepa. Blæðingar í ristli geta líka stafað af öðrum orsökum en sep- um en það mun ekki koma ljós fyrr en við speglunina. Við höfum í rauninni farið í gegnum nákvæmlega sama ferlið varðandi skimun og átt hefur sér stað víðast hvar annars staðar. Allir eru sammála um að rétt sé og gagnlegt að skima fyrir þessum sjúkdómi en víða greinir menn á um hvaða leið eigi að velja. En það er mjög mikilvægt að halda vel utan um alla þætti skimunarinnar til að hægt verði að meta árangurinn til lengri tíma.“ Lúmskur og illvígur sjúkdómur „Markmið hópleitar er að draga úr ný- gengi og dánartíðni sjúkdóms,“ segir Sunna. „Til eru slembaðar rannsóknir á árangri skimunar með hægðaprófi og þær sýna ótvírætt að í kjölfarið dregur úr dánartíðni. Þessi markmið nást ekki nema tryggt sé að sjúklingurinn taki þátt svo þátttökuhlutfallið er forsenda árangurs af skimuninni. Það má spyrja hvers vegna aldurs- hópurinn hafi verið þrengdur svona innan markhópsins og ein ástæðan er ein- faldlega sú að við ráðum ekki við meiri fjölda á þessu stigi. Við vitum einnig að þessi aldurshópur, 60-69 ára, er viðkvæm- ur og við gerum ráð fyrir að minnst 8% reynist jákvæð fyrir blóði í hægðum og þannig í brýnni þörf fyrir ristilspeglun. Samkvæmt rannsóknum má gera ráð fyrir að hjá einstaklingum með jákvætt FIT muni í 40% tilvika finnast separ og for- stigseinkenni og þar að auki allt að 10% með krabbamein á mismunandi stigum. Þrátt fyrir þessi aldursmörk er mikilvægt að benda á að það er ekkert sem hindrar „Það eru allir sammála um mikilvægi þess að skima fyrir ristilkrabbameini,“ segir Sunna Guðlaugs- dóttir verkefnisstjóri og sérfræðingur í meltingar- sjúkdómum.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.