Fréttatíminn - 22.04.2016, Síða 34
Yndislegu foreldrar. Bestu þakkir
fyrir bréfið og ég sé að þið eruð
yndislegir foreldrar sem látið
ykkur umhugað um þroska dóttur
ykkar og viljið leggja ykkur fram.
Því skuluð þið aldrei hætta og
dóttir ykkar er lánsöm að eiga
ykkur að. Hins vegar er þekking á
þroska barna ekki meðfædd og því
er óendanlega mikilvægt að leita
sér upplýsinga og aðstoðar eins og
þið eruð að gera núna.
Hvað er „eðlilegt“
Svörin frá leikskólanum ykkar eru
hárrétt. Þriggja ára barn er oftast
komið með flest málhljóðin en alls
ekki öll. Þau eru mörg og miserfið
og hljóðin sem fylgja R-S-Þ eru þau
sem börn ná síðast tökum á eins
og þið hafið séð hjá dóttur ykkar.
Allt upp undir fimm ára aldurinn
er fullkomlega aldurssvarandi að
barn sé enn að glíma við þau hljóð
og R-ið getur meira að segja verið
ókomið hjá fimm ára börnum. Loks
er HN framburður almennt ekki
kominn hjá leikskólabörnum og
fjölmargir unglingar segja meira
að segja N í staðinn fyrir HN. Sem
sagt, það er engin hætta á ferðum
með framburðinn hennar en fylgist
áfram með og verið í samráði við
leikskólann sem ræður ykkur heilt.
Hvað er málþroski?
Svo skiptir máli að muna að fram-
burðurinn einn og sér er aðeins
hluti málþroskans. Orðaforðinn,
skilningur á töluðu máli og áhugi
á að tjá sig eru ásamt mörgu öðru
hluti málþroskans og dóttir ykkar
er greinilega á réttu róli hvað þetta
varðar. Munið bara að máltöku-
skeiðið stendur frá fæðingu og upp
að kynþroskaaldri. Ykkur er full-
komlega óhætt að treysta þess-
um stórkostlega, innbyggða
hæfileika sem máltakan er og
öll börn, alls staðar í heim-
inum, fylgja reglum mál-
tökunnar. Við þvingum ekkert
fram, hvorki í framburði né „réttri“
málnotkun. Á ákveðnum aldri
segja þau „sofaði“ en ekki „svaf“
og „fótar“ í stað „fætur“ – þarna er
máltökuaflið að kenna grunnreglur
og því breytum við ekki.
Leiðréttum ekki
Tjáning barnsins skiptir sköpum.
Leiðréttingar grafa undan sjálfs-
trausti barnsins og það verður
hrætt við að nota orðin sín. Eins
hjálpar lítið að leiðrétta „í felum“
með að endurtaka orð og setningar
barnsins á „réttan“ hátt. Hrósið
barninu og skiljið hvað það meinar
þótt að tjáningin sé takmörkuð og
njótið bæði framburðar og mál-
notkunar hvers stigs enda er fátt
meira heillandi að morgni en smá-
mælt barn sem „ðofaði ðvo vel í
ðúminu ðínu“. Til málörvunar er
svo besta leið foreldra að vera góð-
ar málfyrirmyndir, tala við barnið,
beygja sig niður til barnsins og ná
augnsambandi við það, lesa bæði
einfaldar og flóknar bækur með
og fyrir barnið, endursegja sögur
og spjalla og syngja og þylja þulur.
Þannig hafa börn numið mál frá
örófi alda og gera enn.
Hættið nú að hafa áhyggjur og
einbeitið ykkur að því að njóta
þessarar yndislegu stúlku sem lífið
hefur fært ykkur.
Magga
Pála
Uppeldisáhöldin
Sendið Möggu Pálu spurningar á
maggapala@frettatiminn.is og
hún mun svara í næstu blöðum.
„ðofaði ðvo vel
í ðúminu ðínu“
Hæ kæra Magga Pála!
Dóttir okkar á við dálitla framburðarörðugleika að stríða. Hún er
þriggja ára og talar frekar vel að öðru leyti, hefur góðan orðaforða
og gerir sig vel skiljanlega. En það eru r-in og s-in sem hljóma eigin-
lega eins. Það má því segja að hún sé nokkurn veginn smámælt, því
bæði s og r hljóma hjá henni eins og ð. Við höfum ráðgast við leik-
skólann sem segir að hún sé ung og að þetta séu erfiðustu hljóðin
svo að það borgi sig að gefa þessu 1-2 ár í viðbót áður en við förum
að hugsa um talkennslu eða slíkt. En málið er að við hjónin erum
ekki alveg samtaka um hvernig sé best að taka á þessu heima. Ég
vil helst ekki að þetta fari á sálina á henni, að hún sé eitthvað mál-
hölt, og er því að reyna að gera leik úr tunguæfingunum og því sem
leikskólakennarinn hennar ráðlagði og reyna að veita henni þessa
þjálfun svona hálfgert án þess að hún viti af því. En pabbi hennar
hins vegar leiðréttir hana í sífellu til að reyna að fá hana til að
heyra munin á ðððð-hljóði og rrrr-hljóði. Við höfum rifist um þetta
og hans sjónarmið er að fullorðnir eigi að leiðbeina börnum þegar
þau gera rangt og ég er í sjálfu sér sammála því að öðru leyti en
þessu, því ég vil ekki að henni finnist hún sífellt vera að gera rangt
af því að hún ræður ekki við einhver málhljóð.
Hvaða sýn hefur þú á þetta, kæra Magga Pála?
Mikið úrval af trjáklippum og greinaklippum.
Einnig fyrirliggjandi trjákurlarar - hentugir í garðinn og í sumarbústaðinnn.
Trjáklippur - greinaklippur
ÞÓR FH
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016