Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 36
Garðar
Dagný Skarphéðinsdóttir
nýtur sín í garðinum heima
í Kópavogi og sækir sér
fróðleik um garðyrkju á
Facebook
„Við erum mikið garðfólk. Mað-
urinn minn smíðar og slær grasið
og ég dúllast í öllu hinu. Svo eru
börnin með okkur í þessu, sex ára
dóttir mín veit alveg hvað lyngrós
og garðalúpína er,“ segir Dagný
Skarphéðinsdóttir, yfirhönnuður á
auglýsingastofunni Árnasynir.
Dagný og f jölskylda hennar
fluttu á Digranesheiði í Kópavogi
fyrir tveimur árum og hafa látið
til sín taka í garðinum. „Þetta er
fyrsti alvöru garðurinn sem ég á.
Hann var í órækt þegar við tókum
við honum, þarna voru risastór úr
sér vaxin tré og grasið var ójafnt.
Við byrjuðum á því að jafna lóðina,
rifum upp gras, hækkuðum undir-
lag og lögðum þökur og sáðum. Þá
tókum við niður tvö flennistór tré
sem voru á miðri lóðinni og bætt-
um við plöntum eins og enginn væri
morgundagurinn.“
Dagný segir að framkvæmdir
haldi áfram hjá fjölskyldunni í
sumar og nú eigi að setja upp heitan
pott og smíða pall. „Þetta tekur allt
sinn tíma, það er mikilvægt að læra
á garðinn og sjá hvar besta skjólið
er, hvaða plöntum líður best hvar.
Það er heljarinnar kúnst að finna
réttu staðina og ég er dugleg að færa
plöntur.“
Dagný er ein 22 þúsund Íslend-
inga sem er meðlimur í Facebook-
hópnum Ræktaðu garðinn þinn.
Hún segir þennan hóp einstaklega
gagnlegan. „Ég elska þessa síðu og
fer þarna inn daglega. Maður veðr-
ast allur upp við lesturinn, þarna er
fólk að deila plöntum sín á milli og
andrúmsloftið er rosa gott.“
Hvaðan kemur þessi garðyrkjuáhugi
hjá þér?
„Þetta hefur alltaf verið í kringum
mig. Alveg síðan ég var krakki.
Mamma átti fullt hús af plöntum og
amma og dætur hennar voru með
gróðurhús þegar ég var lítil með
allskonar rósum og fleiru. Ég fékk
sjálf ekki almennilegan áhuga fyrr
en ég eignaðist garð en þá kolféll ég
líka. Ég elska þetta í dag. Og stofu-
plöntur líka, ég er sjúk í þær. Ég
reyni líka að lengja sumarið með
því að forrækta inni hjá mér. Nú er
ég að forrækta bóndarósir og fúsí-
ur.“
Hvað er það sem heillar þig við garð-
ræktina?
„Ég elska mest að sjá eitthvað
blómstra. Blómstrandi plöntur eru í
uppáhaldi, ég er ekki sjúk í það sem
er sígrænt en ég er „sökker“ fyrir
öllu sem blómstrar. Það verður svo
litrík og lifandi – og fallegt.“ | hdm
Elska að sjá garðplönturnar blómstra
Dagný Skarphéðinsdóttir bíður þess nú, eins og landsmenn allir, að sumarið komi
en þá getur hún látið til sín taka í garðinum. Hún er hrifnust af plöntum sem
blómstra. Í sumar er stefnan sett á að smíða pall og koma upp heitum potti.
Myndir | Rut
„Þetta tekur allt sinn
tíma, það er mikilvægt að
læra á garðinn og sjá hvar
besta skjólið er, hvaða
plöntum líður best hvar.“
36 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016