Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 11.06.2016, Síða 14

Fréttatíminn - 11.06.2016, Síða 14
Að horfast í augu við harminn Stephen Jenkins er með meistaragráðu í guðfræði frá Harvard háskóla og meistara- gráðu í félagsráðgjöf frá háskól- anum í Toronto. Hann hefur byltingarkennda sýn á harm og dauða í Norður-Ameríku. sjá: orp- hanwisdom.com „Fókusinn á vinnustofunni er á sútun skinna en um leið munum við horfast í augu við þetta hrun hins staðbundna og þorpsvit- undarinnar og hvaða áhrif það hefur á okkur og heiminn,“ segir Elín Agla sem telur algjörlega nauðsynlegt að horfast í augu við þann harm sem fylgir því að sjá sveitarfélögin deyja út. „Þegar ég kom fyrst í Árneshrepp minnti samfélagið mig á ömmu og afa, þeirra persónur og gildin sem þau stóðu fyrir sem manneskjur. Með Jenkins munum við stúdera þessa þorpsvitund í sagnfræðilegu ljósi, með þeim tilgangi að reyna að sjá undirrót þess sem er að gerast í heiminum í dag.“ Vigtar fisk og yrkir sem bóndi „Ég bjó hér í þrjú ár með fyrrver- andi manninum mínum og við átt- um saman dóttur, Jóhönnu Engil- ráði. Þegar við svo fluttum aftur suður saknaði ég þess mjög að vera hérna svo við dóttir mín komum aftur fyrir tveimur árum,“ segir Elín sem hefur síðan gegnt starfi hafnarstjóra í Norðurfirði þar sem 22 bátar eru á strandveiðum. Í starfinu felst meðal annars að vigta allan þann fisk sem kemur í land og keyra vörur um bryggjuna á lyftara. Þegar Elín er ekki niðri á bryggju yrkir hún ljóð og er þjóðmenningar- bóndi. „Þegar ég flutti hingað aft- ur árið 2014 var fólk forvitið að vita hvers vegna í ósköpunum ég væri að koma aftur. Þá voru hér engir atvinnumöguleikar, eins og eru hér í dag, og ég var einstæð móðir og bíllaus. Fólk var að spyrja mig og nágranna mína hvað ég væri eigin- lega að gera hér. Ég gat ekki svarað því sjálf með góðu móti því ég hafði engan titil en ég vissi samt að ég væri að reyna að gera eitthvað. Þá þýddi ég orðið menningarleg sjálf- bærni yfir í þjóðmenningu en svo vildi ég bæta við einhverri sögn svo starfsheitið hljómaði eins og ég væri að gera eitthvað og þannig bætt- ist bóndi við. En svo er merking orðsins breytileg dag frá degi svo ég þarf ekki að standa skil á því við neinn, enda er enginn að borga mér fyrir að vera þjóðmenningarbóndi.“ Mikilvægast að fá fólk Þegar Elín Agla flutti til Reykjavík- ur fór hún í framhaldsnám í um- hverfis-og auðlindafræði, með því markmiði að skoða menningarlega sjálfbærni í Árneshreppi. „Eftir á að hyggja held ég að það hafi verið yfirvarp til að komast hingað aftur, en líka vegna þess að ég hef mjög djúpa ástríðu fyrir því að reyna að skilja hvað er að gerast hérna. Niðurstaða meistararitgerðarinn- ar er einfaldlega sú að ég f lutti hingað aftur. Listamenn myndu kannski kalla þetta gjörning en ég kalla þetta venjulegt líf því það sem viðheldur lifandi þjóðmenningu í litlum samfélögum er að fólk flytji þangað. Peningar og voðalega fínn vegur myndu ekki gera jafn mikið fyrir þetta svæði og fólk. Það allra mikilvægasta er að fá hingað fólk,“ segir Elín Agla sem hefur skipulagt vinnustofu um þorpsvitund og sút- un skinna í samstarfi við hinn víð- fræga Stephen Jenkins í lok júní þar sem tekist verður á við harm- inn sem fylgir því að sjá samfélag hverfa en um leið verður reynt að virkja menninguna í hversdegin- um. (sjá nánar til hliðar) „Við vilj- um viðhalda þessari menningu og þessu samfélagi sem man svo langt aftur og sem við getum lært svo margt af. Ég hugsa um það nán- ast á hverjum degi hvers vegna við viljum öll að Árneshreppur lifi en eigum samt svo erfitt með að fram- kvæma það sem þarf til. En bestu spurningarnar eru auðvitað þannig að það er ekki hægt að svara þeim á einfaldan hátt heldur glímum við við þær eins og ráðgátu.“ Stephen Jenkins.Vinnustofan verður í Trékyllisvík dagana 21.-24. júní. Dóttir Elínar Öglu, Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, skemmtir sér í Krossneslaug. Við förum í sund á nánast hverjum degi allan ársins hring – hvort sem er í sól og blíðu, snjóstormi, norðurljósum eða stjörnubjörtum vetrarkvöldum. Meðal þess sem starf hafnarstjórans felur í sér er að vigta allan þann fisk sem kemur í land og keyra hann um á lyftara. „Listamenn myndu kannski kalla þetta gjörning en ég kalla þetta venjulegt líf því það sem viðheldur lifandi þjóðmenningu í litlum samfélögum er að fólk flytji þangað.“ Kynnir: Heimili í sólinni á Spáni Komdu og spjallaðu við okkur á Centerhotel Plaza Og fáðu bæklingana okkar frítt! 11. og 12. júní Frá kl. 10:00 til 18:00 Aðalstræti 4 – 101 Reykjavík Skráðu þig hér: www.medlandspann.is 14 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 11. júní – 12. júní 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.