Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 32
„Það langbesta við Norðurland
er náttúrulega að þar er alltaf
gott veður,“ segir Hrafnhild-
ur Tryggvadóttir, bókasafns-
fræðingur hjá Landsvirkjun,
sem er uppalin í Bárðardal.
Hrafnhildur flutti til Reykjavík-
ur þegar hún fór í nám í Háskóla
Íslands og er ekki enn farin frá
Reykjavík. „Ég sakna auðvitað
fjölskyldunnar, foreldra minna
og systkina og óska þess oft
að það væri aðeins styttra að
skreppa í heimsókn. Það sem
ég sakna helst að heiman er að
sitja við eldhúsborðið fram eftir
kvöldi.“
Hrafnhildur er mikil útivist-
arkona og nýtir dalinn sinn og
nærsveitir vel hvenær sem tæki-
færi gefst. Eitt sem hún miss-
ir alls ekki af er fjögurra skóga
hlaupið. „Það er stórskemmtilegt
hlaup um fjóra skóga, Þórðar-
staðaskóg, Reykjaskóg, Lundskóg
og Vaglaskóg. Það eru margar
vegalengdir í boði, leiðin er fal-
leg og svo er mjög vel að öllu
staðið.“
„Ég mæli líka með útilegu í
Vaglaskógi, það er sérstaklega
góð fjölskylduskemmtun og gam-
an að kíkja svo í göngu upp á
Hálshyrnu, sem er í Fnjóskadal.
Hún er rétt við tjaldstæðið og
hentar vel fyrir flest allt göngu-
fólk. Svo er auðvitað hægt að
kíkja á Goðafoss.“
„Það er mikið af góðum
sundlaugum á Norðurlandi en
mín uppáhaldslaug er á Stóru-
-Tjörnum í Ljósavatnsskarði, þar
sem ég var í skóla. Þar sullaði
maður heilmikið í gamla daga.
Þetta er lítil laug en afskaplega
skemmtileg, hönnuð af Manfreð
Vilhjálmssyni arkitekt, líkt og
skólinn. Eftir sundið myndi ég
svo fara í bíltúr um Bárðardal,
sem er mjög fallegur, og fara að
Aldeyjarfossi. Það verða allir að
sjá Aldeyjarfoss með sínu fallega
stuðlabergi. Svo myndi ég fá mér
kaffi eða einhverja hressingu í
Kiðagili.“ | hh
…ferðir 8 | amk… laugardagur 11. júní 2016
Indíana Hreinsdóttir, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, er inn-fæddur Akureyringur sem þekkir bæinn og sveitina í kring betur en hægri höndina
á sér. amk fékk hana til að mæla
með tíu týpískum akureyrskum
hlutum sem aðkomufólk ætti ekki
að láta fram hjá sér fara þegar það
heimsækir bæinn.
1. Fjöruferð
Hér eru margar fjörur en sú besta
fyrir fjölskyldufólk er fjaran við
Gásir, vestan megin í Eyjafirðin-
um. Það er hægt að keyra næstum
alveg niður í fjöruna og svo er stutt
í áhugaverðar miðaldarústir.
2. Sundlaugin á Akureyri
Hefur verið ein besta sundlaug
landsins um árabil og mun örugg-
lega tróna á toppnum þegar fram-
kvæmdum lýkur á næsta ári (alla-
vega að mati okkar Akureyringa).
3. Menningarbærinn
Fjöldi safna er á Akureyri og
nágrenni. Nægir að nefna Flug-
safn Íslands, Davíðshús, Iðnað-
arsafnið, Listasafnið, Minjasafnið,
Mótorhjólasafnið, Nonnahús og
Safnasafnið á Svalbarðseyri. Lista-
gilið stendur einnig alltaf fyrir
sínu með galleríum, vinnustofum,
skemmtilegum hönnunarbúðum,
já eða bara hressum börum og
veitingahúsum.
4. Miðbærinn
Það er eitthvað við göngugötuna á
Akureyri sem heillar. Grasbalinn
á miðju torginu er svo tilvalinn
staður til að njóta íss í brauði og
fylgjast með norðlenska rúntinum,
sem þó má muna sinn fífil fegurri.
5. Hvalaskoðun
Eyjafjörður virðist fullur af hvöl-
um og nægt er framboð er af bát-
um sem bjóða upp á spennandi
hvalaskoðun. Einn þeirra fer alla
leið til Grímseyjar, sem er upplif-
un út af fyrir sig.
6. Kjarnaskógur
Hvort sem þú vilt taka göngutúr,
skokk, grilla undir grillskýlinu,
spila blak, busla í læknum eða
leyfa krökkunum að leika sér á
fjölbreyttum leikvöllum er Kjarna-
skógur alltaf málið. Algjör úti-
vistarparadís rétt utan við bæinn.
7. Sushi-pizza
Það má enginn heimsækja Akur-
eyri án þess að smakka sushi-pít-
suna á Rub. Besta uppfinning í
heimi.
8. Hjólabrautin
Hjólabrautin í Kjarnaskógi hefur
slegið í gegn. Fjölbreytt braut með
allskyns óvæntum hólum og hæð-
um. Brautin er fyrir þá hörðustu.
9. Lystigarðurinn
Á góðviðrisdegi er fátt dásam-
legra en að dvelja í Lystigarðinum
en þar má finna allar plöntur sem
vaxa á Íslandi og ilmurinn í garðin-
um er eftir því. Ef það er verulega
heitt í veðri má dýfa tánum ofan
í tjarnirnar og svo er um að gera
að kíkja á Café Laut sem er í miðju
garðsins.
10. Sólsetur
Í júní sest sólin rétt eftir mið-
nætti við enda Eyjafjarðar svo
þessi lengsti fjörður landsins
verður rauðgullinn. Gerist ekki
fallegra.
Bárðardalur
Aldeyjarfoss.
Sundlaugin Stóru-Tjörnum.
Fjögurra skóga hlaupið.
Vaglaskógur.
Kiðagil.
Að horfa á
hvali úr laug-
inni í Hrísey
„Ég skora á alla sem eru ferða-
lagi að heimsækja Hrísey, þeir
verða ekki sviknir af því,“ segir
Kristín Alfreðsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík. Kristín ólst upp í Hrís-
ey en flutti til Akureyrar árið
1989 og svo til
Reykjavíkur árið
1996. Það fyrsta
sem kemur upp
í huga hennar,
þegar hún hugs-
ar til æskuslóð-
anna, er sund-
laugin.
„Ég man ekki
eftir mér öðru-
vísi en í sundi.
Laugin var alltaf lokuð yfir vetr-
artímann en um leið og sumarið
kom þá fór maður varla upp úr
henni. Hún er á svo góðum stað
við fjöruborðið og það er fátt
betra en að liggja þar á góðum
degi og horfa á fjöllin í kring eða
jafnvel hvalina leika sér úti í sjó.“
„Júllabúð er hætt en Hrís-
eyingar tóku sig saman og stofn-
uðu hlutafélag og reka búðina
áfram svo það er hægt að nálg-
ast einhverjar vörur. Svo er nýr
veitingastaður, Verbúð 66, þar
sem hægt er að borða, rétt við
tjaldstæðið. Svo eru líka söfn í
eyjunni, hákarlasafn og Holt.“
„Ég fer oft heim og heimsæki
vini mína. Þá fer ég í sund og svo
niður í fjöruna og fylgist með
fuglalífinu. Fuglaáhugafólk getur
líka farið í fuglaskoðunarhúsið
og fylgst þar með fuglunum. Svo
er hægt að leigja far með trakt-
ornum, fá að heyra af sögu eyj-
unnar og kíkja svo á handverks-
markaðinn niður á bryggju.“ | hh
Aldeyjarfoss og kaffi í Kiðagili
Þessu máttu ekki
missa af á Akureyri
Indíana Hreinsdóttir, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, mælir með því að allir heimsæki Akureyri
og njóti alls þess sem bærinn hefur upp á að bjóða
Hrísey
Sundlaugin.
Fuglarnir.
Handverks-
markaðurinn.
Veitingastað-
urinn.
Byggðasöfnin
og traktorinn.