Fréttatíminn - 11.06.2016, Qupperneq 42
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Hin ungverska Évi Bácsi, jóga- og ketil-bjöllukennari, kom fyrst til Íslands fyrir um tíu árum og starf-
aði þá meðal annars á kúabúi þar
sem hún slasaðist illa. Þegar hún
var að jafna sig á meiðslunum fór
hún að sækja jógatíma hjá Jóhönnu
Karlsdóttur í Sporthúsinu og fann
mjög fljótt hvað jógað gerði henni
gott.
Jógað heillaði strax
„Jógaði hjálpaði mér að jafna
mig á meiðslunum og sársaukinn
dvínaði hratt, en ég hafði verið
mjög kvalin,“ segir Évi sem byrj-
aði einnig að stunda ketilbjöllu-
æfingar meðfram jóganu og árið
2010 fékk hún kennararéttindi
í ketilbjöllum. En hún vildi læra
meira og geta miðlað þekkingu
sinni til annarra. Hún varð sér
því út um jógakennararéttindi í
Tælandi árið 2012. „Jógað heillaði
mig alveg og ég hef lifað og hrærst
í þessum heimi síðan ég kynnist
fyrstu æfingunum.“
Síðan Évi fékk kennararéttindi
hefur hún kennt jóga um allan
heim, meðal annars á Íslandi fyrir
nokkrum árum, en er nú komin
aftur til landsins með spennandi
æfingar í pokahorninu sem hún
ætlar að kenna í Sporthúsinu
næsta mánuðinn eða svo.
Lúmskt krefjandi tímar
Évi kann vel sig á Íslandi, enda á
hún marga íslenska vini, eftir að
hafa búið hér í sjö ár. Hún talar
líka svolitla íslensku en segist þó
vera feimin við það. „Það er mjög
erfitt,“ segir hún feimnislega við
blaðamann á þokkalegri íslensku,
þegar hann hvetur hana til að æfa
sig. Svo skiptum við aftur yfir í
enskuna.
„Þó ég sé sjálf kennari þá er ég
alltaf að læra eitthvað nýtt og ég
er dugleg að notfæra mér ýms-
ar nýjungar í tímunum sem ég
kenni. Þá nýti ég mér ýmislegt úr
ketilbjölluæfingunum þegar ég
kenni jóga. Ég legg áherslu á að
tímarnir mínir séu krefjandi en ég
vil að þeir séu það á lúmskan hátt,
þannig fólk átti sig ekki á því hve
erfiðar æfingarnar eru. Mér finnst
líka mikilvægt að tímarnir séu
skemmtilegir.“
Évi segist í raun kenna jóga
með frjálsri aðferð og hún er
aldrei búin að ákveða fyrirfram
hvaða æfingar hún ætlar að fara
í gegnum í hverjum tíma. Engir
tveir tímar eru eins og fólk veit
aldrei hverju á hverju það á von.
„Þegar ég kem inn í salinn finn ég
hvernig orkan er og les í fólkið.
Ég reyni að miða æfingarnar út
frá því hvernig ég upplifi fólkið á
staðnum. Þess vegna skipulegg ég
ekki tímana fyrirfram. Það get-
ur verið mjög ögrandi fyrir fólk
að vita ekki hvað það er að fara
að gera, en ég vil helst fá fólk til
að stíga aðeins út fyrir þæginda-
hringinn sinn. Samt þannig að því
líði vel. Fólk þarf bara að koma
í tímana með opinn huga og sjá
hvað gerist. Það er líka það sem
jóga snýst um.“
Hay Max er lífrænn salvi sem hamlar því að frjókorn komist inn í nef
og augu. Hay Max er náttúruleg lausn sem hentar öllum
Unnið í samstarfi við Icecare
Hay Max er áhrifaríkur, lífrænn og
lyfjalaus frjókornatálmi fyrir þá
sem þola illa frjókorn. Hann hefur
fengið fjölda viðurkenninga, meðal
annars frá bresku astma- og
ofnæmissamtökunum. Hann er
einfaldur í notkun og kemur í veg
fyrir að frjókorn komist inn í líka-
mann. Hay Max er framleiddur
úr hágæða, vottuðum lífrænum
efnum, bývaxi, ilmkjarnaolíum,
aloe vera og sólblómaolíu og er
vottaður fyrir grænmetisætur.
Með því að koma í veg fyrir að of
mikið magn frjókorna berist inn
í líkamann er hægt að forðast
óþægindi sem sumir verða fyrir
vegna frjókorna, svo sem hnerra
og kláða í augum, hálsi og eyrum.
Hay Max virkar fyrir soninn
„Annar tvíburinn minn var alltaf
hnerrandi. Þegar við fórum í frí var
hann stöðugt hnerrandi og með
hor,“ segir Sonja Dögg Ólafsdóttir.
„Ég ákvað að fara í apótek til að
athuga hvort eitthvað væri til
handa svona litlum krílum sem
þyldu illa frjókorn. Ég valdi Hay
Max með aloe vera. Ég bar þetta
á soninn og það var eins og hendi
væri veifað, hnerrinn hætti. Ég er
núna alltaf með Hay Max í tösk-
unni og ber á báða strákana þegar
við erum úti í náttúrunni.“
Alltaf með Hay Max
Jón Páll Pálmason, þjálfari í
knattspyrnu, hefur góða reynslu
af notkun Hay Max. „Þar sem ég
er að þjálfa fótbolta er ég mikið
úti á sumrin. Ég hef verið mjög
pirraður í augunum þegar frjó-
kornin eru sem mest í loftinu. Ég
ákvað að prófa Hay Max og smurði
því í kringum augun og við nasirn-
ar. Það var eins og við manninn
mælt, ég fann mikinn mun á mér
og er núna alltaf með dósina á mér
þegar ég er úti. Ég mæli hiklaust
með Hay Max
fyrir þá sem þola
illa frjókorn.“
Lyfjalaus salvi
Hay Max-salvinn
er lyfjalaus sem
þýðir að syfja er
ekki ein auka-
verkana. Hay
Max hentar
ófrísk-
um konum, konum með barn á
brjósti og börnum. Salvinn er bor-
inn vandlega á svæðið umhverfis
hvora nös nokkrum sinnum á dag á
meðan á frjókornatímabilinu stend-
ur. Einnig má setja salvann aðeins
inn í nasir og í kringum augu.
Eru frjókornin að trufla þig á sumrin?
Hay Max: Lausn við
frjókornaofnæmi.
Einfaldur í notkun,
salvinn er borinn á svæði
umhverfis hvora nös og
augu ef vill. Inniheldur
hágæða lífræn efni.
Vottaður fyrir grænmetis-
ætur. Lyfjalaus og hentar
öllum. Kemur í veg fyrir
hnerra, kláða í augum,
hálsi og eyrum.
…heilsa
kynningar
18 | amk… laugardagur 11. júní 2016
Ég legg
áherslu á að
tímarnir mínir séu
krefjandi en ég vil að
þeir séu það á lúmsk-
an hátt, þannig fólk
átti sig ekki á því hve
erfiðar æfingarnar
eru. Mér finnst líka
mikilvægt að tímarn-
ir séu skemmtilegir.
Évi Bácsi
jóga- og ketilbjöllukennari
Kennir jóga með frjálsri aðferð
Évi Bácsi kennir óhefðbunið jóga í Sporthúsinu í sumar. Hún kynntist jóga eftir að hafa slasað sig
illa í vinnu á íslensku kúabúi
Les í fólkið Évi miðar æfingarnar í hverjum tíma út frá orkunni sem kemur frá fólkinu í salnum. Mynd/Rut
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
www.veidikortid.is
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
Claudio Lopes - Gas
olino - Laura M
50% afsláttur
Jil Sander umgjarð
ir frá:
17.500 kr.
Fullt verð: 35.000 kr
50% afsláttur