Fréttatíminn - 01.07.2016, Qupperneq 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016
Niðurstöður Brexit-kosn-
inganna í Bretlandi og þing-
kosninganna á Spáni draga
fram djúpstæðan klofning
innan samfélaga á Vestur-
löndum, sem hefur dýpkað
frá efnahagshruninu 2008.
Þessar kannanir kristalla
ólíka afstöðu kynslóðanna til
samfélagsmála. Í Bretlandi
vildi meirihluti unga fólksins
tilheyra Evrópusambandinu
en eldra fólkið alls ekki. Á
Spáni vill unga fólkið knýja á
um kynslóða- og siðaskipti í
stjórnmálum en gamla fólkið
stendur vörð um gömlu valda-
flokkana og óbreytt ástand.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Þótt hér séu tekin dæmi af þessum
tveimur löndum fer því fjarri að
þessi kynslóðagjá sé bundin við Bret-
land og Spán. Hún hefur víða opnast
á nýliðnum árum. Í Bandaríkjunum
sópaði málflutningur Bernie Sand-
ers til sín fylgi dómókrata undir þrí-
tugu á meðan Hillary Clinton átti
elstu árgangana með húð og hári.
Í Vestur-Evrópu hafa kannanir sýnt
meiri ótta hinna eldri við slæm áhrif
innflytjenda og flóttamanna á sam-
félagsgerðina en meðal hinna yngri.
Þótt þjóðernissinnaðir hægri flokk-
ar hafi yfirleitt lítinn stuðning með-
al eftirlaunaþega sækja þeir víðast
mun meira fylgi til eldri miðaldra en
til yngra fólks.
Að hluta til má skýra mismunandi
afstöðu aldurshópanna til ólíkrar
stöðu stærstu borganna og hinna
dreifðari byggða, smábæja og smá-
borga. Stórar og millistórar borgir
eru þau efnahagssvæði sem dreg-
ið hafa til sín flest fólk og þar sem
mesta aflið er í atvinnulífi, samfélagi
og menningu.
Landsframleiðsla á mann í
London og París er 20 og 25 pró-
sent hærri en í Bretlandi og Frakk-
landi. Og framleiðslan í borgunum
vex jafnt á þétt á meðan stór land-
svæði í þessum löndum hafa búið
við stöðnun og hrörnun árum og
áratugum saman. Landsframleiðsla
á mann í Wales, þar sem meirihlut-
inn vildi út úr Evrópusambandinu,
er rétt um þriðjungur af því sem er
í Skotlandi og Norður-Írlandi, þar
sem íbúarnir kusu að vera áfram í
sambandinu, og aðeins fjórðungur
af því sem er í stór-London. Það er
álíka mikill munur og á Íslandi og
Egyptalandi.
Ungir horfa fram, gamlir aftur
Þótt peningar séu vissulega ekki
allt gefur landsframleiðsla til kynna
afl viðkomandi svæða. Það er ólíku
saman að jafna að búa á svæði þar
sem margt gengur upp og tímarnir
virðast vera að breytast til góðs eða á
svæði þar sem fátt gengur upp, fyrir-
tæki draga saman framleiðslu, fólki er
sagt upp, draumar komast ekki flug
og flest virðist vinna á móti fólki.
Þessi skil á aðstöðu fólks setja mark
á afstöðu þess til samfélagsmála. Ungt
fólk á vaxtarsvæðum horfir óhrætt til
framtíðar og fagnar henni. Í því felst
ekki að það sé sátt við allt í samfé-
laginu, en það óttast ekki framtíðina.
Það vill hafa áhrif á hana og gera hana
helst sem ólíkasta fortíðinni.
Eldra fólk á stöðnunarsvæðum
hefur ekki sama tilefni til að fagna
framtíðinni. Reynslan hefur kennt
18–29 ára 30–49 ára 50–67 ára 68+ ára
Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin
Framsóknarflokkurinn Vinstri græn
Viðreisn
Björt framtíð
Píratar
Skipting þingsæta miðað við niðurstöður
nýjustu könnunar MMR á fylgi flokkanna
frá því í byrjun mánaðarins og greiningu
hennar eftir aldurshópum.
Miðað við síðustu könnun MMR á fylgi
flokkanna er reginmunur á afstöðu aldurs
hópa til stjórnmálaflokkanna. Ríkisstjórn
arflokkarnir tveir njóta þar aðeins um 24
prósent fylgis hjá fólki undir þrítugu en
51 prósent fylgis hjá 68 ára fólki og eldra.
Píratar, Björt framtíð, Viðreisn og aðrir
nýir flokkar utan fjórflokksins njóta um 55
prósent fylgis meðal fólks undir þrítugu en
aðeins 19 prósent meðal fólks á eftirlauna
aldri.
Þegar fylgi flokkanna eftir aldri er deilt
niður á þingheim koma í ljós fjögur ólík þing.
Á þingi fólks undir þrítugu myndi saman
lagður þingstyrkur Vinstri grænna og Pírata
vera 39 þingmenn, öruggur meirihluti til
róttækra breytinga á samfélaginu og stofn
unum þess. Ríkisstjórnarflokkarnir hefðu
þarna aðeins 17 þingmenn, meira en helm
ingi færri en í dag og Samfylkingin myndi
þurrkast út. Björt framtíð og Viðreisn hefðu
samanlagt 8 þingmenn.
Á þingi foreldrakynslóðanna, fólks á aldr
inum 30 til 49 ára, næðu Píratar og Vinstri
græn ekki meirihluta heldur þyrftu að taka
Viðreisn inn í stjórnina til að ná 33 manna
meirihluta. Ríkisstjórnarflokkarnir fengju 22
þingmenn ef foreldrakynslóðin fengi að ráða
og Samfylking 6.
Þing fólks á aldrinum 50 til 67 ára, fólks
á heimilum þar sem börnin eru flutt að
heiman, myndi gefa ríkisstjórnarflokkunum
25 þingmenn. Í þessum hópi hefur Samfylk
ingin hljómgrunn, en hann myndi skaffa
Samfylkingunni 10 þingmenn. Þessi megin
stofn gömlu flokkanna, Framsókn, Sjálfstæð
isflokkur og Samfylking, nyti því 32 þing
manna meirihluta á meðan nýju flokkarnir
með Vinstri grænum fengju 31 þingmann.
Þing ellilífeyrisþega myndi tryggja núver
andi ríkisstjórnarflokkum 32 þingmanna
meirihluta. Á þessu þingi væru Píratar fá
mennasti þingflokkurinn, því hvorki Björt
framtíð né Viðreisn næðu inn manni.
Ríkisstjórnin heldur velli hjá ellilífeyrisþegum
18–29
ára
30–49
ára
50–67
ára
68+
ára
Á þessum kökum má sjá aldurssamsetningu fylgjenda stjórnmálaflokkanna,
samkvæmt könnun MMR. Þarna kemur fram að Samfylkingin er sá flokkur
sem hlutfallslega hallar mest að eldra fólki. Um 65 prósent stuðningsmanna
Samfylkingarinnar eru 50 ára eða eldri, 60 prósent framsóknarmanna, 48
prósent sjálfstæðismanna, 45 prósent viðreisnarfólks og 43 prósent fylgj-
enda VG. Það er nærri hlutfalli þessa hóps meðal kjósenda, en um 42 pró-
sent kjósenda eru 50 ára eða eldri. Hjá Pírötum er hins vegar 31 prósent
fylgjenda yfir fimmtugt og aðeins 20 prósent af þeim fáu sem styðja Bjarta
framtíð.
Um 23 prósent kjósenda eru undir þrítugu. Meðal samfylkingarfólks er
þessi hópur hins vegar aðeins 7 prósent, 13 prósent meðal framsóknarfólks,
16 prósent hjá sjálfstæðismönnum og 22 prósent hjá VG, sem er sá flokkur
sem speglar best aldurssamsetningu þjóðarinnar. Fólk undir þrítugu er fjöl-
mennara hlutfall hjá stuðningsfólki nýju flokkanna. Hjá Viðreisn telur það 29
prósent af heildinni, 36 prósent hjá Pírötum og 40 prósent hjá Bjartri fram-
tíð, en sá flokkur á eiginlega bara hljómgrunn meðal yngstu kjósendanna.
Samfylkingarfólk elst allra
Aldursskipting fylgjenda stjórnmálaflokkanna, samkvæmt könnun MMR.
Sjálfstæðis
flokkurinn
Píratar
Vinstri
Græn
Sam
fylkingin
Framsókn
Viðreisn
Björt
Framtíð
Ekki hægri og vinstri
heldur ungir og gamlir
Niðurstaða Brexit, kosninganna á Spáni og að sumu leyti forsetakosningarnar á Íslandi
sýna illbrúanlega gjá milli kynslóðanna á Vesturlöndum.
Ungt fólk á vaxtar
svæðum horfir
óhrætt til framtíðar
og fagnar henni. Í
því felst ekki að það
sé sátt við allt í sam
félaginu, en það ótt
ast ekki framtíðina.
Það vill hafa áhrif á
hana og gera hana
helst sem ólíkasta
fortíðinni.