Fréttatíminn - 01.07.2016, Page 54
Íslensku sumrin gæta bæði verið köld og blaut. Það er bara staðreynd sem við Ís-lendingar verðum að lifa með. Staðalbúnaðurinn í
útileguna er því ekki endilega
bikiní og stuttbuxur þó vissulega
sé gott að hafa það með líka. En
betra er að hafa varann á og hafa
með hlýjar og vatnsheldar flíkur.
Þær munu að öllum líkindum nýt-
ast meira en þessar fyrrnefndu.
Allavega ef þú ert á nokkurra daga
ferðalagi og gistir í tjaldi. Það er
meira að segja hægt að tolla í tísk-
unni og samt klæða sig eftir veðri.
Vertu töff í útilegunni
Það er ekki mjög smart að vera að krókna úr kulda í útilegunni. Klæddu
þig frekar eftir veðri því það kemur alltaf betur út heldur út en hitt.
Ullarpeysur
Þær þykja alltaf smart. Það
er nefnilega hægt að prjóna
í öllum stærðum og gerðum
með því mynstri sem hug-
urinn girnist. Ef þú kannt að
prjóna eða þekkir einhvern
sem kann að prjóna geturðu
látið útbúa peysu alveg eftir
þínu höfði og máli. Þú munt
elska að klæðast þessari flík í
útilegunni og tískustuðullinn
þarf ekkert að falla.
Ullarponsjó
Tískuflík sem gott er að
sveipa um sig á svölum
sumarkvöldum. Kostur-
inn við ponsjóið er að
það getur líka nýst sem
teppi. Svo kemur þessi
flík bara svo einstak-
lega vel út með falleg-
um stígvélum.
Húfa
Hlý og góð húfa er oft það
sem munar um til að halda
almennilega á sér hita. Enda
fer mikil uppgufun hita út
um höfuðið. Við viljum fanga
þennan hita og halda honum
í líkamanum. Það er ekki töff
að vera kalt. Þess vegna er
alltaf flott að vera með húfu,
hvernig sem hún lítur út.
Regnponsjó
Kannski ekki mjög falleg flík en það er
yfirleitt hægt að pakka henni vel saman
í poka sem fylgja með og því auðvelt að
hafa hana í töskunni og taka upp þegar
fer að rigna. Svo þegar hættir að rigna
þá hristir maður einfaldlega bleytuna af
henni og setur aftur í veskið. maður er
kannski ekki töff akkúrat meðan rign-
ir, en maður er heldur ekki töff hund-
blautur og niðurrigndur.
Stígvél
Nauðsynlegt að eiga slík á
Íslandi og þau koma sér vel í
útilegu. Nú er meira að segja
víða hægt að fá stígvél sem
líta út eins og hátískuskór,
fyrir þá sem það vilja. Hinir
geta fengið sér skrautleg og
falleg stígvél í öllum regnbog-
ans litum. Það er allt leyfilegt
þegar kemur að stígvélum.
Það eina sem skiptir máli er
að þau haldi vatni og drullu.
…tíska
kynningar
18 | amk… FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2016
Þar sem ekkert
SLES er í
Masterline sjampóinu
þá freyðir það minna
en „hefðbundin“
sjampó sem nota
SLES.
Unnið í samstarfi við
Halldór Jónsson ehf.
Masterline hár- vörurnar eru allar án parabena og búið er að betrumbæta formúluna
enn frekar.
Áherslan er áfram lögð á góð
innihaldsefni sem veita hárinu mýkt
og skínandi fallega áferð.
Masterline vörulínan er í hæsta
gæðaflokki og framleidd á Ítalíu
og rómuð fyrir gæði á góðu verði.
Masterline fæst í stórmörkuðum,
en vörurnar eru þróaðar í samstarfi
við hárgreiðslumeistara og stand-
ast fyllilega samanburð við dýrari
vörur á markaði.
Gæðavörur á góðu verði
Við vöruþróun var einblínt á að
framleiða gæðavöru með
einstökum stíl. Masterline
vörurnar eru afrakstur
mikilla rannsókna
og gæðaprófana til
að tryggja notend-
um vellíðan og gæði.
Vörurnar eru ofnæm-
isprófaðar og standa
fyllilega undir merkinu –
Made in Italy.
Efnin skipta máli
Þar sem ekkert SLES er í
Masterline sjampóinu þá freyðir
það minna en „hefðbundin“ sjampó
sem nota SLES. Þetta þýðir alls
ekki lakari gæði, heldur þvert
á móti. Sífellt fleiri
kjósa vörur eins og
Masterline þar sem
höfuð-
áherslan er á
mildari innihalds-
efni. Sjampóin
innihalda s.s.
engin paraben,
SLES – SLS, eða
sílikon. Masterline
næringin inniheldur
engin paraben og ekkert
Isothiazolinones.
Sjampóið og næringin eru með
pumpu sem er einstaklega þægi-
legt og hármaskarnir koma í krukk-
um sem endast lengi.
Hárvörur Masterline vörulínan er í hæsta gæðaflokki og framleidd á Ítalíu og rómuð fyrir gæði á góðu verði.
Sjampóin inni-
halda s.s. engi
n
paraben, SLES
–
SLS, eða síliko
n.
Heilbrigt og fallegt hár skiptir máli
Masterline hárvörurnar eru gæðavörur á góðu verði.