Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.07.2016, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 29.07.2016, Blaðsíða 20
smakkað. Þeir eru lífrænt ræktaðir og fallegir, afbrigðin eru fjölmörg og koma víða að. „Hér er alltaf gott veður og gróska, jafnvel þó það sé súld í bænum,“ seg- ir Tómas Ponzi brosandi á hlaðinu í Brennholti. Þarna þreifar hann sig áfram í garðyrkjutilraunum sínum, vegur og metur ýmis afbrigði afurð- anna enda eru aðstæður góðar. Í Brennholti er sjálfrennandi heitt vatn sem nýtist til upphitunar gróðurhúss og í sundlaug sem faðir hans kom upp á sínum tíma. Önnur ræktun fer fram undir berum himni eða undir lágum burstahúsum sem skýla plöntum frá veðri og vindum. Í arf frá pabba Tómas segir augljóst að hann hafi fengið garðyrkjuáhugann í arf frá föð- ur sínum sem starfaði á árum áður hjá hinu virta Guggenheim safni í New York, en fluttist til Íslands á sjö- unda áratugnum með fjölskyldunni. „Faðir minn var vel á undan sinni samtíð,“ segir Tómas. „Hann sagði skilið við neyslusamfélagið og gerði fjölskyldu sinni kleift að lifa í tengsl- um við náttúruna innihaldsríku og listrænu lífi. Ég man eiginlega fyrst eftir mér í kringum tómata. Þá hef ég líklega verið á þriðja aldursári og þetta var í sveitinni í Connecticut. Þegar pabbi var að vinna á safn- inu bjuggu foreldrar mínir oft á óð- ali Hans Richter, þýska myndlistar- mannsins og dadaistans. Við fengum að vera í gömlum hænsnakofa og þarna ræktaði pabbi sinn garð. Hann vildi fá góðar afurðir fyrir fjölskyldu sína og ræktaði eiginlega allt sem honum datt í hug. Þaðan man ég eft- ir lykt af graskerjum og maískólfum sem sóttir voru af akrinum og settir beint í pottinn til suðu. Við tíndum líka sveppi og jarðhnetur og til eru myndir af mér og litlu systur minni þar sem við erum nakin innan um tómatplönturnar. Rauðir tómat- ar allt um kring. Ég man stemn- inguna í kringum þetta og ekki síst lyktina.“ Frá New York til Íslands Frank Ponzi kynntist Guðrúnu Tómasdóttur, móður Tómasar, í New York þar sem hún var við söngnám. Árið 1963 flutti fjöl- skyldan til Íslands og þá var Tómas fjögurra ára. Frank hafði þá þegar hrifist að landi og þjóð, til dæmis af lífinu norður í Mý- vatnssveit þar sem hluti tengda- fjölskyldunnar bjó. Leiðin lá í Mosfellsdal þar sem Frank og Guðrún festu kaup á landi sem á þeim tíma kostaði ekki mikið, „líklega á við eitt sófasett,“ giskar Tómas á. Þarna í holtinu byggði Frank Ponzi kofa inn í brekku og síðan flutti fjöl- skyldan að fullu úr Reykjavík í dalinn árið 1968. Fljótlega var líka byggt lítið gróðurhús úr plasti og þar voru strax ræktaðir tómatar sem síðan voru seldir í kaupfélaginu í Mosfellssveit. „Faðir minn sagði því skilið við stórborgarlífið og heimslistina og gerðist að hluta til sjálfsþurftarbóndi hér uppi á Íslandi. Þetta var samt menningarheimili þar sem margir komu með erlenda gesti til að sýna þeim hvernig hægt væri að búa í nátt- úrunni á Íslandi, í lítilli sjálfbærri menningarparadís.“ Frank Ponzi starfaði reyndar líka við forvörslu hér á landi, til dæmis við Þjóðminjasafnið og vann líka við að verja þann merka arf sem Kjar- val og fleiri listamenn skildu eftir sig. Sjálfur hélt hann eina sýningu í Bogasalnum í Þjóðminjasafninu en þrátt fyrir góðar viðtökur gafst hann upp á því að sýna Íslendingum list sína og snéri sér að forvörslu og líf- inu í sveitinni með fjölskyldunni. „Ég er sjálfur í raun alinn upp við tómata- rækt, keyrði til dæmis út tómata- sendingar þegar ég hafði aldur til,“ segir sonurinn Tómas. Ættardjásn og harðir Rússar Það er sterk listræn og skapandi taug í Tómasi Ponzi, eins og hann á ættir til. Á síðustu árum, eftir störf við tölvu- tækni og forritun og við myndlistina, hefur hann í auknum mæli snúið sér að garðyrkjunni sjálfur. „Fyrir um sjö árum ákváðum við Björk Bjarnadóttir, búkona mín, að koma hingað í dalinn og taka við Brennholti. Það var eftir að pabbi lést og móðir móðir mín orðin ein. Tómatahúsið sem ég mundi eft- 20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016 Ættardjásn í tómatalandi Ekki langt frá Gljúfrasteini kúrir Brennholt. Þar búa nú Tómas Ponzi og Björk Bjarnadóttir ásamt kettinum Mola (Molafi Jónssyni), tíu landnáms- hænum og um 100 þúsund býflugum. Um helgar kemur þangað líka Guðrún Tómasdóttir, 91 árs, til að dvelja hjá syni sínum Tómasi. Guðrún og eiginmaður hennar, banda- ríski listfræðingurinn, forvörðurinn og lista- maðurinn Frank Ponzi, komu sér fyrir í Brenn- holti fyrir um hálfri öld. Í Brennholti er hægt að bragða á tómöt- um. Það eru tómat- ar sem slá út alla þá sem sá sem þetta skrifar hefur áður „Mig langar að reyna að fá sem mest út úr lífinu og til þess dugir ekki endilega best að nota rökhugs- unina. Innsæið dugir oft betur,“ segir Tómas Ponzi. Hér er hann við rússneska tómatafbrigðið S.Otbor1, en annars heita þau afbrigði fjölbreyttum nöfum: Andarungi, 0-33 (vísað í hitastigið á selsíus sem afbrigðið dafnar í) og Boney M, en rússneskir garðyrkjumenn hafa greinilega kunnað að meta sitt diskó. „Við þurfum að teygja okkur aftur til baka og velta fyrir okkur matvælagerð upp á nýtt. Tengjast moldinni.“ Tómas og systir hans Margrét Ponzi með uppskeruna í Brenn- holti árið 1967. Þúsundþjalasmiðurinn Tómas Ponzi ræktar alls kyns tómata í Brennholti í Mosfellsdal. Tómas segir að garðyrkjan og þessi merki- legi ávöxtur, tómaturinn, kenni honum margt um lífið og tilveruna. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.