Fréttatíminn - 05.08.2016, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016
Sakamál Par flúði íbúð sína
sem stóð í ljósum logum
eftir að nágranni hringdi á
slökkviliðið. Í ljós kom að
parið var í töluverðri fíkni-
efnaneyslu.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Það kom smá reykur inn til okk-
ar, en að öðru leyti skemmdist
ekki mikið,“ segir Stefán Björn
Karlsson sem býr við Skólagerði
í Kópavogi en hann komst í hann
krappan eftir að eldur kviknaði
í íbúð fyrir neðan hann síðasta
sunnudag. Kona var úrskurðuð í
gæsluvarðahald vegna málsins,
en sú er fædd árið 1978 og er hún
grunuð um íkveikju. Maður sem
býr í íbúðinni ásamt konunni
bað Stefán um að hringja ekki á
slökkviliðið á sama tíma og íbúðin
stóð í ljósum logum. Ástæðan var
einföld; finna mátti vísbendingar
um harða fíkniefnaneyslu á heim-
ilinu.
„Það fundust nálar þarna inni.
Þau eru ansi harðir fíklar,“ segir
Stefán Björn sem býr ásamt unn-
ustu sinni á efri hæðinni í húsinu
sem er í friðsælu hverfi í Kópavogi.
Parið fyrir neðan er tæplega fer-
tugt og leigir íbúðina af einstak-
lingi sem tengist karlmanninum
fjölskylduböndum.
Stefán segir að hann hafi orðið
var við reykinn um kvöldið. Hann
forðaði sé út ásamt unnustu og
tveimur köttum. Þegar þau voru
farin út sáu þau að neðri íbúðin
stóð í ljósum logum.
„Þau báðu mig um að hringja
ekki á slökkvilið og vildu reyna að
slökkva eldinn sjálf,“ segir Stefán
sem leist ekki á blikuna, enda hans
eigið heimili í húfi.
„En þau réðu ekkert við þetta,“
segir Stefán sem hunsaði beiðni
þeirra og hringdi á aðstoð, en
minnsta kosti þrír voru í íbúðinni
þegar eldurinn kom upp.
„Slökkviliðsmennirnir voru
ótrúlega fljótir á svæðið,“ segir
hann um viðbragðstíma slökkvi-
liðsins. Það er ljóst að við-
bragðstíminn skipti sköpum, enda
urðu ekki miklar skemmdir á íbúð
Stefáns. Það er þó ljóst að miklar
skemmdir urðu í íbúð parsins.
Stefán segir að parið hafi verið
með gest í heimsókn og flúðu þau
öll af vettvangi áður en slökkvilið
og lögregla komu á svæðið. Konan,
sem var húsráðandi, snéri hins-
vegar til baka skömmu síðar og var
hún þá umsvifalaust handtekin.
Í samtali við Gunnar Hilmars-
son, aðalvarðstjóra lögreglunnar í
Kópavogi, kemur fram að ýmislegt
bendi til þess að um íkveikju hafi
verið að ræða en upphaflega voru
þrjár konur handteknar í tengslum
við málið, en að lokum var kona,
sem bjó í íbúðinni, úrskurðuð í
gæsluvarðhald.
„Það er þó óljóst enn sem komið
er, tæknideildin er ekki enn búin
að skila sinni vinnu,“ segir Gunn-
ar. Þrjár íbúðir eru í húsinu. Það er
því ljóst að mikil hætta var á ferð.
Konan er enn í haldi, en þetta var í
annað skiptið síðan 2008, sem það
kviknaði í íbúðinni. Í fyrra skiptið
var talið að um slys hefði verið
að ræða og snéri málið þá ekki að
sömu konu og er í haldi nú.
Þurftu að þrífa íbúðir ólympíufara aftur
Íþróttir Átta íþróttamenn
keppa fyrir Íslands hönd á
ólympíuleikunum sem verða
settir í dag. Að mörgu er að
huga, enda verið að koma
á laggirnar sextán þúsund
manna ólympíuþorpi.
Valur Grettisson
vg@frettatiminn.is
„Það hefur gengið vel að koma sér
fyrir, en þrifin voru tekin í nefið
eftir að á það var bent að það þyrfti
að þrífa íbúðirnar betur,“ segir
Líney Rut Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands. Fyrstu íþrótta-
mennirnir komu til Ríó í Brasilíu
um síðustu helgi, en leikarnir verða
settir í dag, föstudaginn 5. ágúst.
„Íbúðirnar eru allar nýjar, og
voru ekkert endilega sóðalegar,
það átti bara eftir að gera svona
fínhreingerningu,“ segir Líney.
Hún segir skipuleggjendur hafa
brugðist hratt og vel við ábending-
um íslenska hópsins og tóku verk-
efnið „í nefið“ eins og hún orðaði
það sjálf.
Nokkuð neikvæð umræða
hefur verið um undirbúning
ólympíuleikanna og segir Líney að
það megi líklega útskýra með því
að það sé verið að koma saman 16
þúsund manna ólympíuþorpi. Ým-
islegt gangi á í slíkum framkvæmd-
um. „Þetta er þokkalegasta bæj-
arfélag á íslenskum mælikvarða,“
bætir hún við.
Alls keppa átta íþróttamenn
fyrir Íslands hönd á ólympíuleik-
unum, flestir í sundi og frjálsum
íþróttum. Hrafnhildur Lúthers-
dóttir, Anton Sveinn McKee og
Eygló Ósk Gústafsdóttir keppa
öll í sundi. Irina Sazonova keppir
í fimleikum, Þormóður Jónsson
keppir í júdó og Ásdís Hjálmsdótt-
ir, Aníta Hinriksdóttir og Guðni
Valur Guðnason keppa í frjálsum
íþróttum.
„Þeir sem verða lengst verða á
þriðju viku hér í Ríó,“ segir Líney,
það er því ljóst að það er mikilvægt
að það fari vel um ólympíufarana.
Líney segir mikið umstang í kring-
um leikana og að gríðarlega mikil
vinna sé fyrir höndum. Meðal
annars funda fararstjórar hópanna
á hverjum degi með skipuleggjend-
um leikanna.
Ísland er með hinum Norður-
landaþjóðunum í ólympíuþorpinu,
sem myndi teljast þokkalegasta
bæjarfélag á íslenskan mælikvarða.
Hrafnhildur Lúth-
ersdóttir er ein af
ólympíuförunum.
Þetta voru harðir fíklar
– nálar inni í íbúðinni
Íbúðin var nokkuð illa farin, en lítið sást á húsinu sjálfu og ljóst að betur fór en á horfðist.Mynd | Rut
Stefán Björn Karls-
son býr fyrir ofan
parið og hringdi á
slökkviliðið þrátt
fyrir mótmæli.
Jón Gunnar Kristjánsson bjó
í Svíþjóð nær alla sína ævi, en
faðir hans er íslenskur.
Áfram í varðhaldi vegna morðs
Sakamál Varðhald yfir karl-
manni sem er grunaður um
að vera viðriðinn morðið á
Jóni Gunnari Kristjánssyni
þann 18. júlí síðastliðinn,
verður framlengt að því er
fram kemur í svörum lög-
reglunnar í Stokkhólmi.
Jón var stunginn margsinnis í
Akalla hverfinu í Stokkhólmi. Ekki
er ljóst hvað átti sér stað en þar
er ólöglegt tjaldsvæði þar sem
ógæfufólk heldur oft til, að því er
fram kom í sænskum fjölmiðlum.
Lögreglan telur að gerendurn-
ir séu að minnsta kosti tveir, en
vitni hafa lýst því að árásarmað-
urinn hafi viðhaft einhver orð um
dulkóðuð gögn.
Jón Gunnar var læknanemi til
skamms tíma og tveggja barna
faðir. Hann var 35 ára þegar hann
lést.
www.husgagnahollin.is
558 1100
Þú finnur útsölubæklinginn
á www.husgagnahollin.is Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
ÚTSALA
Sumar
afsláttur
60%Allt að
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Ljós- og dökkgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 231 × 140 × 81 cm 89.990 kr. 119.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
30%
ÖLL SMÁVARA
FRÁ IVV
SALLY
Hægindastóll PU-leður
Litir: Brandy, brúnn
og svartur.
29.990 kr. 39.980 kr.
AFSLÁTTUR
25%
KIRUNA
U-sófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökkgrátt
slitsterkt áklæði. Stærð: 301 × 200 × 78 cm
179.990 kr. 239.990 kr. AFSLÁTTUR
25%
ÚTSALAN
Sumar
afsláttur
LOKAVIKAN
70%
Allt að