Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 05.08.2016, Page 10

Fréttatíminn - 05.08.2016, Page 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Hún býður mér inn, hellir upp á kaffi og segir að það sé liðin tíð að konur auglýsi í einkamáladálk- um eftir kynnum við fjárhagslega sjálfstæða menn. Það séu margar kynlífssíður á Facebook fyrir fólk sem er að leita eftir kynlífssam- böndum við hitt kynið, til dæmis síðan, Bólfélagar, 24/7 kynlíf. Hún hafi einfaldlega búið sér til falsk- an Facebook-aðgang og sótt um að fá að ganga í hópinn. Málið sé að velja passlega ögrandi mynd. Það sé engin þörf á því að segja neitt um vændi eða bjóða sig til sölu. Karl- arnir renna einfaldlega á lyktina. „Það liðu ekki fimm mínútur áður en skilaboðin fóru að hrúgast inn,“ segir hún. „Það er gríðarleg eftir- spurn. Eftir tvo daga var ég komin með 400 einkaskilaboð frá mönn- um sem vildu kaupa vændi. Sumir fóru hægt í sakirnar og fikruðu sig áfram með almennu spjalli. Aðrir spurðu bara beint, hvort ég væri til sölu eða hvort ég væri laus. Mér fannst þetta svolítið yfirþyrmandi fyrst en síðan vandist ég þessu. Sumar konur eru alveg með á nót- unum, ég hef séð statusinn, ég er laus í kvöld$ inni á þessum kynlífs- síðum. Í dæmigerðu íslensku kapphlaupi Árið 2014 fór hún á varanlega ör- orku í kjölfar alvarlegrar líkams- árásar sem hún varð fyrir árið 2009. Árásarmaðurinn var dæmd- ur fyrir árásina en hann bar því við að hún hefði verið í annarlegu ástandi og veitt mótspyrnu þegar hann ætlaði að koma henni til að- stoðar. „Fyrir árásina var í ég þessu dæmigerða íslenska kapphlaupi, vann alltof mikið, bæði með aðal- starf og aukavinnu, enda fráskilin með þrjú börn í skóla og skuldir,“ segir hún. „Ég var í klessu líkam- lega eftir árásina. Það brotnuðu mörg rifbein og það kom gat á ann- að lungað. Ég var í rúst andlega og þjáðist af ofsakvíðaköstum eft- ir þetta enda bætti ekki úr skák að það var náinn ættingi sem átti í hlut. Þá fékk ég slæmt höfuðhögg og greindist með alvarlegan taugasjúk- dóm í kjölfar árásarinnar.“ Hún segist hafa verið misnot- uð kynferðislega árum saman sem barn og eftir árásina hafi það allt saman komið upp á yfirborðið án þess að hún fengi neitt við ráðið. „Á þessum sama tíma var ég að berjast við að halda í íbúðina mína í kjölfar hrunsins.“ Það tók hana átján mánuði eftir stöðuga endur- hæfingu að komast á fætur aftur og á þeim tíma fór hún að drekka ótæpilega. „Ég var ofsalega reið og það var mikill sársauki innra með mér. Ég var ekki úti á djamminu, ég var meira að drekka heima hjá mér, en sem betur fer leitaði ég mér hjálpar. Ég hef ekki drukkið í mörg ár. Ég tók heilsuna í gegn og mataræðið, fór að vinna sjálfstætt og náði að halda mér á floti. En ekki löngu síðar kom bakslagið. Ég þjáð- ist af áfallastreituröskun og fór að fá ofsakvíðaköst. Þá greindist ég með alvarlegan taugasjúkdóm sem rekja mátti til höfuðhöggs sem ég hlaut í árásinni. Ég var send aftur í endur- hæfingu og var því komin aftur á byrjunarreit.“ 20 til 30 menn á mánuði Hún er með háskólamenntun og segist hafa haft ágætlega launuð störf fyrir líkamsárásina. Það var ekki fyrr enn í vor að hún fór að reyna fyrir sér í vændi: „Ég tek tuttugu þúsund fyrir skiptið,“ segir hún. „Yfirleitt tekur þetta um korter til tuttugu mínútur, stundum vilja þeir vera aðeins lengur og ég leyfi það. Ég hitti þá bara á dagvinnu- tíma, aldrei á kvöldin eða um helg- ar. Með því að afgreiða um 20 til 30 menn á mánuði hef ég um hálfa milljón í tekjur, skattfrjálsar.“ „Ég get hjálpað börnunum mín- um í lífinu og líka föður mínum sem er mikill sjúklingur. Ég hef ekkert samviskubit, að gera það sem ég geri. En mér finnst auðvitað ógeðslegt að vera sett í þessa stöðu. En ég gat ekki lifað af fjörutíu þús- und krónum á mánuði eins og mér var uppálagt að gera. Ég get ekki unnið fulla vinnu en hálfa vinnu myndi ég vel ráða við en þá taka þeir bæturnar. Og hver ætlar líka að ráða mig í hálfa vinnu eftir að hafa verið frá vinnu í mörg ár. Það er nógu erfitt að fá vinnu þegar mað- ur er orðinn rúmlega 50 ára. Ég var einfaldlega föst í ömurlegri fátækt- argildru og skömmin var meiri en þegar ég fór að stunda vændið. Ég gat ekkert gert nema sökkva dýpra og dýpra.“ Þegar hún er spurð hvenær hún hafi farið að hugleiða að fara út í vændi, segir hún að það hafi alltaf blundað í sér löngun til að vita hvernig þetta væri. „Einn kunn- ingi minn, sem ég umgekkst mikið á tímabili, hafði orð á því að ég væri vinsæl hjá karlmönnum og gæti ör- ugglega haft mikið upp úr því að selja mig ef ég færi út í það. Ég svar- aði því ekki en hugsaði stundum um þetta. Ekki að fara að selja mig, heldur af hverju hann sagði þetta. Mér fannst það spennandi.“ Gef mér tíma í smá spjall Hún segir að skömmin sem fylgi fátæktinni sé síst minni en sú sem fylgi vændinu. Það langi alla til að geta hjálpað börnunum sínum og tekið þátt í samfélaginu. Það sé erfitt að vera sú sem þarf að af- þakka allt, vegna þess að það eru ekki til peningar fyrir neinu. Varla mat. „Fyrir konu á mínum aldri, er það einfaldlega ömurlegt.“ Hún segist vita um fleiri konur í sömu stöðu sem stundi vændi þar sem þær geti ekki framfleytt sér öðruvísi. Hún segist vita um konu sem stundi þetta með vitund og vilja mannsins síns. Hún sé öryrki en hann hafi lent í því að missa vinnuna. Þau þurfi á peningunum að halda og hún sé mjög vinsæl. Kona um fimmtugt, sem varð öryrki eftir alvarlega líkamsárás, tók þá ákvörðun í vor að fara að stunda vændi til að framfleyta sér og geta hjálpað börnum sínum áfram í lífinu. „Það er stór hópur kvenna í minni stöðu, það er miklu meira um þetta en fólk gerir sér almennt í hugarlund,“ segir hún þegar hún tekur á móti mér með brosi, þar sem hún býr, í venjulegri blokkaríbúð í úthverfi, lítil, dökkhærð með opið og tjáningarríkt andlit. „ÞAÐ ER STÓR HÓPUR KVENNA SEM ÞARF AÐ SELJA SIG“ Ég var einfaldlega föst í ömurlegri fátæktargildru og skömmin var meiri en þegar ég fór að stunda vændið. Ég gat ekkert gert nema sökkva dýpra og dýpra.“ Mynd | Esben Bøg Jensen

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.