Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 05.08.2016, Síða 42

Fréttatíminn - 05.08.2016, Síða 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Í kjallara á Hverfisgötu leynist versl- unin Musteri Agans sem sameinar týnd áhugamál að sögn eigandans Ágústs Hlyns Þórissonar. ,,Og reynd- ar er þetta líka búð í kringum áhuga- málin mín: frisbígolf, veggjalist og bretti.” Ágúst byrjaði að reka verslunina í nóvember síðastliðnum en honum þótti vanta búð sem sérhæfði sig í varningi fyrir frisbígolf og veggjalist sérstaklega. ,,Það er skrítið að ég sé sá eini á höfuðborgarsvæðinu sem sel frisbídiska en þetta er að mínu mati vinsælasta iðkunin í sumar. Það eru tíu frisbígolfvellir á höfuborgar- svæðinu og fyrir utan mig þá er bara einn strákur í Hafnarfirði sem selur frisbí en hann er ekki einu sinni með sérstaka opnunartíma. Svo er það þetta með veggjalistina. Mér fannst svo leiðinlegt að borg eins og Reykja- vík, þar sem allir eru að missa sig yfir götulist, byði ekki upp á vörur fyrir þá iðju. Þess vegna tók ég málin bara í mínar hendur.” Hann segir búðina stækka og stækka enda bíður hann óþreyju- fullur eftir nýrri sendingu af Penny- -hjólabrettum þessa dagana en merkið er það heitasta í dag að hans sögn. Ágúst segir nafn búðarinnar ,,Musteri Agans” vekja ákveðna forvitni gesta og gangandi en það eigi sér ákveðna sögu. ,,Þetta er setning úr kvikmyndinni Nóa Al- binóa þegar pabbi hans segir við Nóa: "Stundvísi er lykillinn að must- eri agans, Nói minn." Við vinirnir vorum þrettán ára þegar við heyrð- um þessa setningu og fannst hún svo djúp að við notuðum hana óspart og setningin stóð lengi á blaði sem hékk á herbergishurðinni minni. Það kom því ekkert annað nafn til greina þegar ég opnaði búðina.” Þess má geta að Ágúst vinnur sem þjónn á Laundromat í hálfu starfi á móti búðarrekstrinum. ,,Maður þarf kannski ár í viðbót áður en maður getur verið hérna í fullu starfi því þó það sé mikið að gera á sumrin er það öðruvísi á veturna.” | bg Týndu áhugamálin í Musteri Agans Frisbígolf vinsælasta sumaríþróttin „Stundvísi er lykillinn að musteri agans, Nói minn.“ Mynd | Rut Það er samkynhneigðu mönnunum í Nor- ræna húsinu, fram- kvæmdastjóranum og eiganda AALTO Bistro veitingastaður hússins, að þakka að öllu er til tjaldað fyrir Hinsegin dagana. Boðið verður upp á hýran brunch, litríkan í framsetningu. „Um er að ræða óbeisl- aða framsetningu, bleikan djús og blómagleði, meira segja fær smjörið á brauðið liti. Ferskir ávextir, túnfisksalat, nýbakað brauð og jógúrt með heimalöguðu múslí og bleikur djús,“ segir Sveinn Kjartansson yfirkokkur. „Gangan hefst rétt hjá okkur við Vatns- mýrarveg. Því er mikil stemning á staðnum, fólk getur setið úti og komið sér í gírinn fyrir gönguna.“ Hafdís Erla Hafsteinsdóttir segir íþrótta- hreyfinguna þurfa að búa til öruggt um- hverfi fyrir fólk að koma út úr skápnum. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Ég er sjálf fyrrum landsliðsmanneskja í sundi en kom ekki út úr skápnum fyrr en ég hætti í íþróttinni um tvítugt. Án þess að ég hafi beint hætt vegna kynhneigðar minnar leið mér samt aldrei eins og ég gæti komið út á meðan ég væri í íþróttinni,“ segir Hafdís Erla Hafsteinsdótt- ir sagnfræðingur, en hún heldur í dag fyrirlestur á Hinsegin dögum undir yfirskriftinni „Af hverju urðu íþróttir hómófóbískar?“ Nokkrum árum eftir að Hafdís hætti í landsliðinu í sundi fór hún að stunda íþróttir með hinsegin íþrótta- félaginu Styrmi og upplifði þá í fyrsta sinn að geta ver- ið hinsegin og íþróttakona samtímis. „Það eru til ógrynni dæma um að fólk komi út með kynhneigð sína eftir að það hættir í íþróttum. Íþrótta- hreyfingin þarf að búa til öruggt umhverfi fyrir fólk að koma út úr skápnum, en staðan er ekki sú í dag.“ Oft er talað um íþróttir sem síðasta vígi réttinda- baráttu hinsegin fólks, en hvers vegna ætli íþróttirn- ar þróist hægar en aðrir vettvangar þegar kemur að þessu? „Þetta snýst í raun ekki um íþróttirnar sjálf- ar heldur umgjörðina í kringum þær. Það er ekk- ert hómófóbískt í eðli sínu við að sparka í bolta eða hlaupa hratt. Það er menningin í kringum þær sem þarf að breytast.“ Hafdís segir mikilvægt að viðurkenna að íþróttir séu pólitískar: „Oft er talað um íþróttir eins og þær standi fyrir utan samfélagið, en í raun geta íþróttir verið spegill á misrétti sem viðgengst í samfélaginu.“ Fyrirlesturinn fer fram á sama degi og ólympíuleik- arnir í Ríó eru settir. Hafdís segir það viðeigandi enda leikarnir oft verið umdeildir fyrir að traðka á mann- réttindum fólks. Margir hafa til dæmis gagnrýnt að Brasilía, þar sem fátækt er mikil, haldi leika sem krefj- ast þess að yfirvöld eyði stórum fjárhæðum í að undir- búa komu ógrynni gesta ólympíuleikana í stað þess að hlúa að almennum borgurum Ríó. „Það er alltaf talað um að ólympíuleikarnir eigi að stuðla að friði og bræðralagi, en samt látið viðgangast að traðkað sé á mannréttindum fólks í undirbúningi leikanna.“ Sjálf hefur Hafdís tekið þátt í svokölluðum Gay Games og Out Games, sem eru alþjóðleg mót hinseg- in fólks sem eru sniðin í mót ólympíuleikanna. Sjálf segist hún hafa haft efasemdir um gildi leikanna áður en hún tók þátt og hélt að leikarnir væru einhver viðurkenning á að hinsegin fólk þyrfti að vera sér á parti því það væri ekki jafn gott í íþróttum: „Leikarn- ir snúast hins vegar um sýnileikann og að geta verið íþróttamanneskja og hinsegin á sama tíma. Ekki í íþróttum á virkum dögum og hinsegin um helgar, eins og veruleiki margra er nú.“ Hýr stemning í Norræna húsinu Caitlyn Jenner vann gullverðlaun í frjálsum íþróttum á ólympíuleik- unum 1976 Megan Rapinoe, fótbolti Orlando Cruz, box Matthew Mitcham, vann gull- verðlaun í dýfingum á ólympíuleik- unum 2008 „Við erum með ýmislegt á prjón- unum, næsta sumar ætlum við til dæmis að ganga Kristínartinda á Skaftafelli,“ segir Kristín Guðmunds- dóttir, ein sjö Kristína sem hittust á miðvikudagskvöldið á einskonar stofnfundi vinahóps sem skipaður er eingöngu stelpum sem heita Kristín. Þó kjarni hópsins sé sjö stelpur er markmið hans að fjölga Kristínum smám saman, til dæmis með fundi þar sem hver Kristín býður með sér einni Kristínu til viðbótar. Eins er í bígerð fundur þar sem Kristínarnar hitta hóp af strákum sem allir heita Kristinn. Kristín hefur alltaf þekkt nokkrar nöfnur sínar hér og þar, en hópur- inn varð til þegar Kristín sagði tveim samstarfskonum, sem jafnframt eru nöfnur hennar, frá hópi Ragnheiða sem hittist reglulega. „Sama kvöld stofnuðum við Kristínar-grúppu á Feisbúkk og skipulögðum stofn- fund. Á stofnfundinum þekkti ég allar Kristínarnar en nokkrar þeirra voru að hittast í fyrsta sinn,“ segir hún, og er ekki frá því að Kristínum komi jafnvel betur saman en öðru fólki: „Við vorum allavega sammála um alla hluti á fundinum og erum hressar og skemmtilegar.“ Í slíkum hópi verður þó ekki um- flúið að nokkur ruglingur verði í hópnum: „Það voru þónokkur augnablik á stofnfundinum þegar einhver kallaði á Kristínu og allar litu við. Í hópspjallinu okkar á Face- book getur líka verið erfitt að sjá hvaða Kristínar hafa séð skilaboð frá manni, þar sem stendur alltaf bara „Seen by Kristín, Kristín, Kristín“,“ segir Kristín glettin og greinilegt er að vinahópurinn verður með þeim skemmtilegri sem fyrirfinnast. Vináttan Því fleiri Kristínar, því betra „Það er ekk- ert hómó- fóbískt í eðli sínu við að sparka í bolta eða hlaupa hratt.“ Íþróttamanneskja á virkum dögum, hinsegin um helgar Fyrirlestur Hafdísar fer fram klukk­ an 12 í dag í Iðnó við Vonarstræti. Frægir hinsegin ólympíufarar Sex Kristínanna á góðri stundu. ÖFLUGRI EN HEFÐBUNDNAR OME GA-3 OLÍUR TM Bioglan Calamari Healthy May V4.indd 1 23/05/2014 16:23 Rannsóknir sýna að Omega-3 olía: • Stuðlar að heilbrigðari heilastarfsemi • Bætir minni og einbeitingu • Vinnur gegn elliglöpum • Er nauðsynleg fyrir eðlilegan þroska og starfsemi líkamans Útsölustaðir: Fæst í öllum helstu apótekum, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Heimkaup.is og Heilsutorgi Blómavals www.balsam.is Calamari Gold inniheldur einstaklega mikið af Omega-3 (DHA): • 5 x meira af omega-3 (DHA) en þorskalýsi • 3 x meira af omega-3 (DHA) en fiskiolía

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.