Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 48
Orðin Akureyringur Hilda Jana flutti til Akureyrar fyrir tuttugu árum til að snúa blaðinu við.
Akureyringar tóku henni opnum örmum og hún heillaðist af bænum. Mynd | Auðunn Níelsson
Gerði það sem hana langaði til
„Ég ætlaði aldrei að starta ein-
hverju rosalegu. Ég var einfaldlega
að drepa tímann þangað til ég færi
að gera eitthvað allt annað. Þannig
að ég gerði bara nákvæmlega það
sem mig langaði að gera. Ef mig
langaði á Súlur á fjórhóli, þá gerði
ég bara innslag um það og ef mig
langaði í hvalaskoðun, þá gerði ég
það. Ég var bara að hafa gaman af
þessu og smám saman áttaði ég mig
á því að einhver væri að horfa. Það
er kannski það krúttlega við þetta.
Ég var aldrei að rembast við að ná
til einhverra.“
Hilda Jana bendir á að gildis-
matið á N4 sé ekki endilega að ná
sem mest krassandi fyrirsögn held-
ur snúist það miklu meira um „feel
good“ sjónvarp. Þá skiptir atvinnu-
og viðskiptalíf ekki meira máli en
skósmiðir og kvennakórar. Þetta
gerir það að verkum að kynjahlut-
föll viðmælenda stöðvarinnar er
nánast jafnt. „Þegar matið á hvað
á erindi í sjónvarp og hvað ekki, er
þetta ekki þetta gamalgróna frétta-
mat og þá breytast kynjahlutföll-
in sjálfkrafa,“ útskýrir Hilda Jana.
Þar fyrir utan eru tvær konur sem
stýra stöðinni, en við hlið Hildu
Jönu í rekstrinum, er María Björk
Ingvadóttir.
Hugsar stundum hvað ef?
Þó langt sé liðið frá því Hilda Jana
sagði skilið við neysluna hugsar hún
stundum til baka – hvað ef? Þetta
hefði nefnilega allt geta farið miklu
verr. „Þegar ég var svona ung þá
fannst mér ég ódauðleg. Mér fannst
það mjög dramatískt þegar fólkið í
kringum mig var að missa sig yfir
veseninu í mér. En þegar maður er
sjálfur komin með börn á þessum
aldri, sér öll sjálfsvígin, slysin og
„óverdósin“, þá gerir maður sér bet-
ur grein fyrir því að auðvitað hefði
þetta geta farið þannig,“ segir Hilda
Jana, en hennar gömlu neyslufé-
lagar hafa einmitt sumir horfið á
braut langt fyrir aldur fram.
Það er svo sannarlega ekki
þannig að Hilda Jana beri það með
sér með að hún hafi verið í neyslu á
sínum yngri árum. Það hvarflaði til
að mynda ekki að blaðamanni að
hún ætti sér slíka sögu, en það var
google sem benti á það. Hilda Jana
fór nefnilega í opinskátt viðtal um
fíknina þegar hún var aðeins 23 ára
gömul. Og þegar henni er flett upp
á netinu er það fyrsta niðurstaðan
sem kemur upp. „Ég var alltaf í ein-
hverjum blaðaviðtölum því ég ætl-
aði að frelsa heiminn,“ segir hún
og hlær. „Svo þarf ég að eiga þetta
samtal við dætur mínar núna, því
þær geta auðvitað bara gúgglað.
Þetta er samt alls ekkert leyndar-
mál, en bara ekki það eina sem skil-
greinir mig.“
„Drastískt“ inngrip
Hilda Jana segir fólk gjarnan verða
hissa þegar það kemst að fortíð
hennar og henni finnst gott að vita
til þess að þetta sé ekki það fyrsta
sem fólk hugsar þegar það sér hana.
„Ég skammast mín samt alls ekki
fyrir þetta. Mér finnst líka alveg
pínu gaman að geta kannski fyr-
ir verið fyrirmynd fyrir einhvern
sem er 18 ára inni á Vogi og finnst
lífið ómögulegt. Það er mikilvægt
að sá einstaklingur viti að það er til
fólk þarna úti sem var á sama stað,
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Hilda Jana Gísladótt-ir, sjónvarpsstjóri á N4 á Akureyri, hefur á síðustu árum vakið athygli fyrir skemmti-
lega og líflega dagskrárgerð um
allt milli himins og jarðar norð-
an heiða. Hún kemur til dyranna
eins og hún klædd og það kunna
áhorfendur að meta. Margir halda
eflaust að Hilda Jana sé borinn og
barnfæddur Akureyringur, en það
er ekki svo. Tuttugu ár eru síðan
hún tók U-beygju í lífinu og flutti úr
borginni til Akureyrar.
Snéri blaðinu við
„Mig langaði að snúa alveg við blað-
inu og gera allt aðra hluti. Það var
því mjög gott að flytja norður og
byrja frá grunni sem nýja Hilda
Jana.“ Hún var þá tvítug, ólétt af
elstu dóttur sinni og búin að vera
edrú í tvö ár. En á unglingsárunum
sökk hún niður í mikla áfengis- og
fíkniefnaneyslu. Hún náði botnin-
um hratt en spyrnti sér aftur upp
með mikilli og góðri aðstoð frá SÁÁ.
„Mamma og pabbi voru flutt
norður og ég vissi ekkert hvað ég
átti að gera við þetta barn sem ég
var að fara að eignast. Ég ákvað
því að elta þau norður og biðja þau
um að kenna mér að skipta á bleyj-
um og fleira. Svo féll ég bara fyrir
Akureyri og fór aldrei til baka. Að
flytja norður smellpassaði inn í líf-
ið mitt á þeim tíma, þegar ég ætlaði
að einbeita mér að því að vera góð
mamma og hafa fallegt og rólegt í
kringum mig,“ segir Hilda Jana ein-
læg. Þó hún sé ekki fædd og uppalin
á Akureyri þá er hún fyrir löngu
orðin Akureyringur.
„Það var vel tekið á móti mér á
Akureyri og ég fékk tækifæri til að
gera ýmislegt. Fólk þekkti mig ekki
og það var ekki verið að tala um
hvað ég gerði þegar ég var í neyslu.
Ég kom bara hingað ófrísk, fór í
VMA og byrjaði upp á nýtt.“
Flestir með ör úr fortíðinni
Fyrstu árin eftir að Hilda Jana varð
edrú var hún samt mjög upptekin af
því að hjálpa öðrum í sömu stöðu og
hún hafði verið í og fræða ungt fólk.
„Ég var á fullu í jafningjafræðslu og
forvarnarstarfi. Ég ætlaði að verða
ráðgjafi eða sálfræðingur. En þetta
var bara eitthvað sem ég þurfti
að gera á þessum tíma. Nú er ég
bara tiltölulega venjuleg mamma í
Brekkunni á Akureyri,“ segir hún
örlítið kíminn þó undirtóninn sé
alvarlegur. „Ég er svo margt annað
en þetta. Það eru flestir með ein-
hver ör úr fortíðinni og þetta er
eitt af mínum. En ég hugsa alls ekki
mikið um þetta í dag.“
Endaði óvart í sjónvarpi
Hilda Jana byrjaði að starfa í sjón-
varpi um aldamótin og hófst ferill
hennar þar fyrir algjöra tilviljun.
Þá var hún formaður félags stúd-
enta Háskólans á Akureyri. Eitt af
verkefnunum var að kynna skól-
ann. Hún setti sig því í samband
við fjölmiðla, þar á meðal litla sjón-
varpsstöð á Akureyri sem hét Ak-
sjón. „Þeir buðu okkur að vera með
þátt, með því skilyrði að ég myndi
sjá um þáttinn, sem var alls ekki
eitthvað sem ég hafði í huga. En úr
varð að ég gerði hinn epíska þátt,
Háskólahornið, sem var frumraun
mín í sjónvarpi. Í kjölfarið var ég
svo ráðin inn í sumarafleysingar og
þá var ég komin með bakteríuna.“
Aksjón vann á þeim tíma frétt-
ir fyrir Stöð 2 og svo starfaði
Hilda Jana hjá RÚV á Akureyri um
nokkurt skeið. Hún var því aðal-
lega að vinna fréttir fyrstu árin á
ferlinum. Smám saman fór áhugi
hennar á dagskrárgerð hins vegar
að aukast og henni fannst ýmislegt
vanta í fjölmiðlaflóruna. Aftur var
það svo tilviljun sem réði því að hún
fór að starfa við nákvæmlega það.
Erfitt að missa vinnuna
„Ég missti vinnuna á RÚV í
hruninu, sem var mikill
skellur. Þá hélt ég að fjöl-
miðlaferlinum væri lokið.
Ég var komin á bætur og
var eiginlega bara að leita
mér að vinnu í Noregi. Ég
fór í nokkur atvinnuviðtöl
vegna starfa í Noregi, því ég
gat ekki hugsað mér að vera
atvinnulaus. Ég hefði rotnað.
Svo fór ég með skottið á milli lapp-
anna að hitta framkvæmdastjóra
N4, Þorvald Jónsson heitinn, en þá
var búið að vera slökkt á vélunum
hjá þeim í fjóra mánuði. Það fór svo
þannig að ég fékk styrk frá Vinnu-
málastofnun til að gera sjónvarp
á N4 og við kveiktum aftur á vél-
unum.“ Sú tilraun gekk svona líka
vel. Vélarnir hafa verið í gangi síð-
an, sjónvarpsstöðin hefur vaxið og
dafnað og þar starfa nú 18 manns.
„Ég var eini dagskrárgerðarmaður-
inn, með tvo tæknimenn. Ég var á
skjánum 24 tíma á sólahring, 365
daga á ári,“ segir hún og hlær.
Byrjaði upp á nýtt á Akureyri
Hilda Jana sökk hratt í harða neyslu á unglingsárunum en náði sér á strik aftur með góðri aðstoð frá SÁÁ.
Í heilt ár var hún inn og út af meðferðarstofnunum áður en hún komst á beinu brautina.
Hún flutti til Akureyrar í kjölfarið, sem var nákvæmlega breytingin sem hún þurfti.
Ég ætlaði
aldrei að starta
einhverju rosalegu.
Ég var einfaldlega að
drepa tímann þangað
til ég færi að gera
eitthvað allt annað.
Ég var bara að hafa
gaman af þessu. Það
er kannski það krútt-
lega við þetta. Ég var
aldrei að rembast við
að ná til einhverra.
Mig
langaði að
snúa alveg við
blaðinu og ger
a allt
aðra hluti. Það
var því
mjög gott að f
lytja
norður og byr
ja frá
grunni sem ný
ja
Hilda Jana.
en eignaðist flott og gott líf. Ég sjálf
átti fyrirmyndir á sínum tíma sem
sýndu mér að það væri hægt að
snúa við blaðinu,“ segir Hilda Jana
sem er líka mjög þakklát fjölskyldu
sinni og samfélaginu fyrir að hafa
gefið sér annað tækifæri.
„Ég var í heilt ár út og inn af
meðferðarstofnunum og áfanga-
heimilum og eitthvað hefur það
kostað samfélagið. Stundum þarf
bara svona „drastískt“ inngrip og
margar tilraunir, sérstaklega hjá
ungu fólki. En það borgaði sig klár-
lega í mínu tilfelli því ég er búin að
borga mína skatta síðan. Svona ef
maður horfir bara á excel-skjalið,“
segir hún kímin.
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2016
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar haustvörur
streyma inn