Fréttatíminn - 05.08.2016, Síða 51
Unnið í samstarfi við
Hálendisferðir
Það kom yfir fjölskylduna útþrá eitt haustið og við ákváðum að skella okkur til Marokkó. Okkur lang-
aði að prófa að sleppa jólunum
og líka að kynnast öðrum menn-
ingarheimi. Mér fannst þetta
ótrúlega hressandi en líka svo
endurnýjandi, það var eins og
maður hefði verið í burtu í heilt
ár,“ segir Ósk Vilhjálmsdóttir,
myndlistarmaður og ferðafröm-
uður
Ilmandi og iðandi mannlíf
Ósk hefur um árabil skipulagt
ferðir um hálendi Íslands og
getið sér gott orð. Nú býður
hún uppá spennandi ferðir um
Marokkó, sú fyrsta verður nú í
september. Ferðin ber yfirskrift-
ina Ævintýralandið Marokkó og
stendur í tólf daga.
Í ferðinni fá þátttakendur að
kynnast hinni fornu menningar-
borg Fes og nágrenni hennar.
Farið verður í gönguferð um af-
skekktar byggðir í Atlasfjöllun-
um, farangurinn fluttur á milli
staða á múlösnum. Að göngunni
lokinni verður farið til Marrakesh
þar sem ferðalangar fá að njóta
ilmandi og iðandi mannlífs. Að
síðustu verður haldið til hafnar-
bæjarins Essaouira sem heillaði
hippa og menningarvita á sjö-
unda áratugnum. Nánari upplýs-
ingar um ferðaplanið má finna á
heimasíðunni hálendisferðir.is.
Stutt ferðalag yfir í annan
menningarheim
Það þarf ekki að fara langt til
þess að komast í tæri við fram-
andi menningarheim. Aðeins um
klukkutíma flug frá Barcelona
til Fes og við lendum beint inni í
heimi sem minnir á sagnabálkinn
1001 Nótt, að sögn Óskar.
„Hin forna borg Fes með sín-
um þröngu götum hefur ekk-
ert breyst frá miðöldum. Fes er
völundarhús og þar eru engir
bílar. Göturnar svo þröngar að
það er hægt að snerta veggina
beggja vegna ef maður breiðir út
faðminn. Og allir eru eitthvað að
sýsla. Vefarar negla nagla utan á
húsveggi og vefa langa stranga.
Sútarar standa í sútunarkerjum
og lita leður í öllum regnbogans
litum. Þarna hefur næstum því
ekkert breyst öldum saman, við
fáum innsýn í handverk og menn-
ingu á miðalda. Finnum jafnvel
keiminn af evrópskum miðalda-
borgum.
„Hamingjudalurinn" í Háu
Atlasfjöllunum hefur heldur ekk-
ert breyst. Húsin eru búin til úr
hálmi og leir nákvæmlega eins
og tíðkaðist á tímum Krists. Þau
falla inn í landslagið og minna
að því leyti á íslenska torfbæ-
inn. Þar býr fólk í ævafornu ætt-
bálkasamfélagi Berba og ræktar
jörðina af mikilli elju. Menn og
dýr búa saman í húsunum og allt
er beint frá býli.
Berbar eru frumbyggjar í
Marokkó og þeirra menning er
að mörgu leyti ólík menningu
araba. Við hittum heimamenn,
borðum með þeim, förum út á
akurinn og hjálpum til við hús-
verkin. Við heimsækjum barna-
skóla og tölum við börnin. Við
göngum í gegnum sedrusviðar-
skóga yfir fjallaskörð og þræðum
þorpin. Það verður engin samur
eftir heimsókn í Hamingjudalinn,"
segir Ósk.
Furðuveröldin Marrakesh
„Marrakesh er enn ein furðuver-
öldin. Ilmandi, iðandi mannlíf á
hinu fornfræga torgi Jamaa el
Fna er engu líkt; apar og eld-
gleypar, akrobatar, slöngur,
galdrameistarar og sögumenn.
Þarna er 1001 ára gömul leik-
sýning sem heldur endalaust
áfram. Í Marrakesh er tilvalið að
Spennandi ferðir um
ævintýralandið Marokkó
Ósk Vilhjálmsdóttir heillaðist af Marokkó í sinni fyrstu heimsókn þangað.
Hún skipuleggur 12 daga ferð um Marokkó núna í september og er með fleiri ferðir í undirbúningi.
Ævintýraland Ósk Vilhjálmsdóttir heillaðist af Marokkó í sinni fyrstu ferð þangað. Hún skipuleggur nú spennandi ferðir þangað. Næsta ferð verður í september en þá fer Ósk með 10-15 manna hóp í tólf daga ævintýraferð.
skella sér á matreiðslunámskeið
og elda „tajin" með heimamönn-
um, heimsækja kaktusagarðinn
sem Yves Saint Laurant gerði
frægan, drekka nýpressaðan
avocadósafa, kaupa reykelsi og
ilmolíur. Svo er gaman að fara út
fyrir bæinn og heimsækja viku-
legan sveitamarkað Berba sem
fáir ferðamenn þekkja.
Og ekki má gleyma hafnarbæn-
um Essaouira. Það er frískandi að
koma að sjónum eftir ferðalagið
uppí fjöllin. Finna svalandi haf-
goluna leika um sig, stinga sér í
sjóinn og baða sig í sólinni."
Góðir gestgjafar
Ósk segir Marokkó ekki vera
þjakað af túrisma en heimamenn
séu þó vanir ferðamönnum og
taki vel á móti þeim. Þeir eru
góðir gestgjafar. „Ég fæ aldrei
nóg af þessu landi. Þarna er
mögnuð náttúra en svo miklar
andstæður. Það er t.d. víða álíka
langt að fara á skíði uppi í Atlas-
fjöllum og í sólbað á ströndinni.“
Þessi tólf daga ferð verð-
ur dagana 16. til 27. september
næstkomandi. Þá segir Ósk enn-
fremur að í undirbúningi sé lengri
ferð um páskana á næsta ári,
eyðimerkurferð með hirðingjum í
mars á næsta ári og hugsanlega
enn ein ferðin í árslok.
Allar nánari upplýsingar
má fá á heimasíðunni,
www.halendisferdir.is.
…haustferðir kynningar7 | amk… FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2016
Í ferðinni fá
þátttakendur
að kynnast hinni
fornu menningar-
borg Fez og nágrenni
hennar. Þá er farið í
þriggja daga göngu-
ferð um afskekktar
byggðir í Atlasfjöll-
unum undir leiðsögn
innfæddra sem
flytja farangurinn á
múlösnum.